Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 61

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA 30 læknar útskrifaðir frá Háskóla íslands Pað er fastur liður á hverju ári að fundarsalur LÍ fyllist af verðandi læknum. Þetta gerðist 20. júní síð- astliðinn þegar 30 nýir læknar undirrituðu læknaeið- inn í bókina góðu sem geymir nöfn allra íslenskra lækna sem útskrifast hafa frá árinu 1932. Daginn eftir fengu þeir skírteini upp á það að hafa lokið almennu læknisprófi. Við þessa árlegu athöfn bauð Læknafélag íslands nýútskrifaða lækna velkomna í stéttina og hlýddu þeir á ávörp Sigurbjörns Sveinssonar formanns LI, Reynis Tómasar Geirssonar deildarforseta lækna- deildar Háskóla íslands, Elínborgar Bárðardóttur úr stjórn LR og Sigurðar Guðmundssonar landlæknis. Eins og við á við þetta tækifæri miðluðu hinir reynd- ari læknar þeim óreyndu úr viskubrunni sínum og brýndu fyrir þeim að vera trú köllun sinni og hafa það ætíð hugfast að sjúklingurinn er sá sem allt snýst um. „Glatið ekki forvitninni og hæfileikanum til að dást að hlutum," var boðskapur formannsins til nýju læknanna og hann bætti því við að þau ættu að reyna fremur að vera menn en læknar. Þótt fyrir því séu engin vísindaleg rök mætti ætla að hæfileikar til að læra læknisfræði gangi í erfðir. Sú sem bestum árangri náði á lokaprófum og telst því vera dúx í árganginum 2003 heitir Eygló Ósk Þórðar- dóttir. Hún er dóttir Þórðar Óskarssonar yfirlæknis á Landspítalanum. Fyrir góðan námsárangur hlaut hún í verðlaun ICD-10 sjúkdómaflokkunina sem þýðandinn, Örn Bjarnason læknir, afhenti henni. Ekki luku allir þeir sem hófu nám í þessum ár- gangi læknisprófi og í hófinu var Ástu Bragadóttur sem hlaut einkunnina 10 í skriflegri læknisfræði af- hentur þríkross til minningar um Sigríði Reynisdótt- ur sem lést snemma árs 2002. Hefur árgangurinn stofnað sjóð til minningar um Sigríði og hefur hann þann tilgang að styðja læknanema til að stunda nám og rannsóknir erlendis. Að loknum ávörpum og verðlaunaafhendingum gerðu gestir sér að góðu veitingar sem Læknafélagið bauð upp á. -ÞH Hlýtt á boðskap Reynis Tómasar Geirssonar deildarforseta lœknadeildar Háskóla Islands. Eygló Ósk Pórðardóttir dúx árgangsins undirritar lœknaeiðinn. Utskriftarhópurinn Eftirtaldir luku embættispróf í læknisfræði 21. júní 2003: Arnar Þór Rafnsson Ása Eiríksdóttir Ásta Bragadóttir Ásta Eir Eymundsdóttir Benedikt Kristjánsson Birgir Már Guðbrandsson Bjarni Þór Eyvindsson Eygló Ósk Þórðardóttir Gísli Engilbert Haraldsson Hafsteinn Ingi Pétursson Hannes Jón Lárusson Haukur Björnsson Helga Elídóttir Helga Eyj ólf sdóttir Hjalti Guðmundsson Hulda Birna Eiríksdóttir Ingunn Jónsdóttir Jóhanna Guðrún Pálmadóttir Júlíus Ingólfur Schopka Kristbjörg Sveinsdóttir Kristinn Örn Sverrisson Páll Sigurgeir Jónasson Páll Svavar Pálsson Rúnar Guðmundur Stefánsson Signý Vala Sveinsdóttir Snorri Freyr Donaldsson Stefán Haraldsson Theódór Skúli Sigurðsson Valtýr Stefánsson Thors Þorsteinn Hreiðar Ástráðsson Læknablaðið 2003/89 617

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.