Læknablaðið - 15.07.2003, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA
30 læknar útskrifaðir frá
Háskóla íslands
Pað er fastur liður á hverju ári að fundarsalur LÍ
fyllist af verðandi læknum. Þetta gerðist 20. júní síð-
astliðinn þegar 30 nýir læknar undirrituðu læknaeið-
inn í bókina góðu sem geymir nöfn allra íslenskra
lækna sem útskrifast hafa frá árinu 1932. Daginn eftir
fengu þeir skírteini upp á það að hafa lokið almennu
læknisprófi.
Við þessa árlegu athöfn bauð Læknafélag íslands
nýútskrifaða lækna velkomna í stéttina og hlýddu
þeir á ávörp Sigurbjörns Sveinssonar formanns LI,
Reynis Tómasar Geirssonar deildarforseta lækna-
deildar Háskóla íslands, Elínborgar Bárðardóttur úr
stjórn LR og Sigurðar Guðmundssonar landlæknis.
Eins og við á við þetta tækifæri miðluðu hinir reynd-
ari læknar þeim óreyndu úr viskubrunni sínum og
brýndu fyrir þeim að vera trú köllun sinni og hafa
það ætíð hugfast að sjúklingurinn er sá sem allt snýst
um. „Glatið ekki forvitninni og hæfileikanum til að
dást að hlutum," var boðskapur formannsins til nýju
læknanna og hann bætti því við að þau ættu að reyna
fremur að vera menn en læknar.
Þótt fyrir því séu engin vísindaleg rök mætti ætla
að hæfileikar til að læra læknisfræði gangi í erfðir. Sú
sem bestum árangri náði á lokaprófum og telst því
vera dúx í árganginum 2003 heitir Eygló Ósk Þórðar-
dóttir. Hún er dóttir Þórðar Óskarssonar yfirlæknis á
Landspítalanum. Fyrir góðan námsárangur hlaut
hún í verðlaun ICD-10 sjúkdómaflokkunina sem
þýðandinn, Örn Bjarnason læknir, afhenti henni.
Ekki luku allir þeir sem hófu nám í þessum ár-
gangi læknisprófi og í hófinu var Ástu Bragadóttur
sem hlaut einkunnina 10 í skriflegri læknisfræði af-
hentur þríkross til minningar um Sigríði Reynisdótt-
ur sem lést snemma árs 2002. Hefur árgangurinn
stofnað sjóð til minningar um Sigríði og hefur hann
þann tilgang að styðja læknanema til að stunda nám
og rannsóknir erlendis.
Að loknum ávörpum og verðlaunaafhendingum
gerðu gestir sér að góðu veitingar sem Læknafélagið
bauð upp á. -ÞH
Hlýtt á boðskap Reynis
Tómasar Geirssonar
deildarforseta lœknadeildar
Háskóla Islands.
Eygló Ósk Pórðardóttir
dúx árgangsins undirritar
lœknaeiðinn.
Utskriftarhópurinn
Eftirtaldir luku embættispróf í læknisfræði 21. júní 2003:
Arnar Þór Rafnsson
Ása Eiríksdóttir
Ásta Bragadóttir
Ásta Eir Eymundsdóttir
Benedikt Kristjánsson
Birgir Már Guðbrandsson
Bjarni Þór Eyvindsson
Eygló Ósk Þórðardóttir
Gísli Engilbert Haraldsson
Hafsteinn Ingi Pétursson
Hannes Jón Lárusson
Haukur Björnsson
Helga Elídóttir
Helga Eyj ólf sdóttir
Hjalti Guðmundsson
Hulda Birna Eiríksdóttir
Ingunn Jónsdóttir
Jóhanna Guðrún Pálmadóttir
Júlíus Ingólfur Schopka
Kristbjörg Sveinsdóttir
Kristinn Örn Sverrisson
Páll Sigurgeir Jónasson
Páll Svavar Pálsson
Rúnar Guðmundur Stefánsson
Signý Vala Sveinsdóttir
Snorri Freyr Donaldsson
Stefán Haraldsson
Theódór Skúli Sigurðsson
Valtýr Stefánsson Thors
Þorsteinn Hreiðar Ástráðsson
Læknablaðið 2003/89 617