Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 35
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÞRÓUNARAÐSTOÐ c S SOMALIA Lukt) Victoria — ... lnt«rn«tional boundary — Provlnco boundary ■k National capital • Provlnca capital ■ » Rallroad —— Road INDIAN OCEAN Korl af Kenýa. Höfuð- borgin Nairóbí er sunn- arlcga í landinu, miðja vegu milli Indlandshafs og Viktoríuvatns, ekki langtfrá landamœrum Tansaníu. lækningavörum sem þau geta haft með sér. Að dvölinni lokinni verða þessar vörur svo skildar eftir. Meðal þess sem þau hyggjast laka með eru smokkar sem nýst geta til forvarna gegn HIV sem er mesta heilbrigðisvandamál Afríku. „Við höfum löluverða reynslu af kynfræðslu meðal unglinga hér á landi á vegum Ástráðs, for- varnastarfs læknanema. Við höfum heimsótt vel- flesta framhaldsskóla landsins og rætt við nemend- ur í lífsleiknitímum og árangurinn er sjáanlegur af þessu starfi, klamydíutilfellum hefur fækkað og sömuleiðis ótímabærum þungunum og fóstureyð- ingum unglingsstúlkna,“ segja þau og vitna til orða Reynis Tómasar Geirssonar og Jóns Hjaltalíns Ólafssonar því til staðfestu. Þau gera sér þó grein fyrir að erfiðara geti verið að koma boðskapnum til skila í Kenýa þar sem fáfræði og ranghugmyndir um sjúkdóma og smitleiðir þeirra eru útbreiddar. „Við getum hins vegar kynnt starfsfólki heilsu- gæslustöðvanna aðferðir okkar og aðstoðað það við að koma á fót svipuðu verkefni meðal skjól- stæðinga sinna,“ segja þau. Opnarvonandi dyr Þetta verður í fyrsta sinn sem íslenskir læknanemar taka þátt í þessu verkefni norsku samtakanna en það er að heyra á fimmmenningunum að áhugi læknanema á að sinna hjálparstarfi í þróunarríkj- unum sé vaxandi. „Já, viðhorfin eru að breytast. Nú eru níu lækna- nemar í hjálparstörfum í Afríku og Asíu og annar eins fjöldi tekur þátt í stúdentaskiptum á vegum al- þjóðanefndar læknanema. Þetta er töluvert stærri hópur en var fyrir nokkrum árum. Vonandi verður þessi ferð okkar til þess að auka áhuga læknanema á að taka þátt í slíku starfi,“ segja þau. Þau segjast víðast hvar hafa fengið afar já- kvæðar viðtökur þegar þau leituðu eftir stuöningi og framlögum til ferðarinnar. „Vonandi getum við farið klyljuö af varningi," segja þau og nefna til sögu ýmis fyrirlæki, auk Landspítalans. Og eins og áður segir styrkir Læknafélag íslands þau til fararinnar með því að greiða helming fargjaldsins. En hvað vakti fyrir stjórn félagsins með þessum stuðningi? „Fyrstu viðbrögð okkar voru undrun og ánægja með að til væru læknisefni sem vildu leggja svona ferð á sig,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson formað- ur. „En möguleikar íslenskra lækna til að starfa í þróunarlöndunum hafa oft verið til umræðu í hópi lækna. Þar hafa menn spurt sig hvort ástæða væri fyrir félagið að vera með svipaða starfsemi og læknafélög í nágrannalöndunum, til dæmis í Bretlandi og á Norðurlöndunum þar sem rík hefð er fyrir slíku starfi. Stöku læknar hafa sinnt slíku starfi og jafnvel fórnað stórum hluta starfsævi sinn- ar sem er aðdáunarvert. Læknafélag íslands hefur hins vegar ekkert lagt af mörkum til slíks starfs en þarna sáum við mögu- leika á að opna þessar dyr. Þetta unga fólk getur síðan orðið súrdeig meðal íslenskra lækna þegar þau koma heim reynslunni ríkari og leitt til frekara starfs á þessu sviði. Ég hef satl að segja meiri trú á að unga fólkið geti ýtt þessu starfi af stað heldur en skarfar eins og ég,“ sagði formaðurinn. 602 Læknablaðið 2005/91 Hraðprofin okkar? Þau virka greinilega! Seinkun greiningar á bláæðasegareki getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þegar tíminn skiptir máli getur Clearview Simplify D-dimer hraðprófið aðstoðað við útilokun á segamyndun í djúpbláæðum og lungnablóðreki á innan við 10 mínútum 1. Clearview Simplify D-dimer combined with a validated pre-test probability score helps to risk stratify patients suspected of DVT/PE (Annals Emergency Med 2003 42:266-76) _______ tu C earview Greinilega öðruvísi. Greinilega betra. Þegar tími og gæði skipta öllu máli... Nákvæmt D-dimer hraðpróf Þungun • Frjósemi Kynsjúkdómar Smitsjúkdómar • Fíkniefni Hjarta og æðar Unipath Limited, Bedford, MK44 3UP, UK Tei: 01234 835000 • Fax: 01234 835009 Dreifingaraðili: Logaland lækningatæki Símar: 551 2804 / 552 9080 Netfang: logaland@logaland.is www.logaland.is www.clearview.com ■*p inverness medical professional diagnostics
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.