Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 24
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUN í AUGNBOTNUM
alla miðju sjónhimnunnar er síðan lokastigið. Vot
ellihrörnun er skæðari sjúkdómur borið saman við
þurra að því leyti að sjónskerðing gerist mjög hratt
og niðurstaðan oft lakari sjón með stærra blint
svæði miðlægt í sjónsviði.
Orsakir og áhættuþættir hrörnunar
í augnbotnum
Orsakir hrörnunar í augnbotnum eru ekki þekktar
en ýmsar tilgátur hafa verið lagðar fram. Líkur
hafa verið leiddar að galla í erfðamengi. Nýleg
íslensk rannsókn sýndi fram auknar líkur á skyld-
leika tveggja einstaklinga með þurra ellihrörnun
sem bendir til þess að um erfðagalla geti verið
að ræða (5). Önnur rannsókn sýndi fram á aukna
fylgni ellihrörnunar milli tvíbura samanborið við
rnaka þeirra (6). Af öðrum þáttum sem skoðaðir
Mynd 3. „Drusen" íaugnbotni.
hafa verið má nefna súrefnisskort í sjónhimnu,
afbrigðilega nýæðamyndun og augnbotnahrörnun
sem bólgusjúkdóm (7).
Nokkrir áhættuþættir hafa verið greindir og
er aldur sá mikilvægasti. Aðrir áhættuþættir eru
hár blóðþrýstingur, ættarsaga og reykingar. Ýmis
einkenni í auga eru tengd aukinni áhættu á votri
ellihrörnun en þau eru mjúk drusen og litþekju-
breytingar í makúlu sem og vot ellihrörnun í hinu
auganu (8, 9).
Faraldsfræði
Samkvæmt rannsókn er birtist í Læknablaðinu
1992 reyndist helmingur þeirra er greindist með
ellihrörnun í augnbotnum vera með þurra hrörnun
og 40,6% með vota hrörnun (10).
í nýlegum greinum úr Reykjavíkurrannsókninni
kemur fram að algengi og nýgengi ellihrörnunar í
augnbotnum er svipað því sem gerist í hinum
vestræna heimi, með nokkrum undantekningum
(5). Erlendis er vot ellihrörnun hjá fólki 70 ára og
eldri mun algengari en þurr hrörnun á seinni stig-
um (geographic atrophy) með hlutfallið 2/1 en á
íslandi er þessu öfugt farið með hlutfallið 3/1, það
er þrír sjúklingar með þurra hrörnun fyrir hvern
einn með vota hrörnun (5).
Klínísk einkenni
Algengustu einkenni votrar hrörnunar eru aflögun
á sjón og minnkuð sjónskerpa. Með tímanum leið-
Mynd 2. Þversnið í gegn-
um miðgróf og nýœða-
myndun undir sjónhimnu
við ellihrörnun.
592 Læknablaðið 2005/91