Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA
43 nýir læknar útskrifast frá læknadeild HÍ
Karlaveldið innan læknastéttar er að hrynja,
það fór ekki milli mála við útskrift nýrra lækna
um Jónsmessuna. Að vísu hafa karlar vinninginn
í röðum nýju læknanna, þeir eru 23 á móli 20
konum, en þetta verður í síðasta sinn sem svo er.
Frá og með næsta ári verða konur fleiri í hverjum
árgangi og ef taka á mið af umsóknum um inn-
göngu í læknadeild á þessu vori breytast kynja-
hlutföllin hratt í deildinni. Að þessu sinni þreyttu
130 konur inntökupróf en einungis 54 karlar.
Af þeim 43 sem útskrifuðust í ár eru sex með II.
einkunn, 35 með I. einkunn og 2 með ágætiseink-
unn. Dúxar eru Hilmir Ásgeirsson með 9,38 og
Sólrún Melkorka Maggadóttir með 9,13.
Að vanda bauð Læknafélag Islands útskrift-
arhópnum til samsætis daginn fyrir útskrift. Þar
voru bornar fram veitingar og nýir læknar undir-
rituðu læknaeiðinn og hlýddu á vísdóm og hollráð
sér eldri kollega. Þeir sem ávörpuðu hópinn að
þessu sinni voru Sigurbjörn Sveinsson formaður
LÍ, Stefán Sigurðsson forseti læknadeildar, Jón
Snædal formaður Siðfræðiráðs LÍ og Margrét
Georgsdóttir formaður Félags kvenna í lækna-
stétt. Loks greindi Hulda Eiríksdóttir frá störfum
Hér að ofan er Sigurbjörn Sveinsson formaður LI búinn
að afhenda dúxinum Hilmi Ásgeirssyni viðurkenningu en
á neðri myndinni spjallar Stefán Sigurðsson deildarforseti
við nýútskrifaðan lœkni.
Nýútskrifaðir lœknar hlýða
á boðskap kolleganna og
undirrita eiðstafinn.
Minningarsjóðs læknanema sem stofnaður var árið
2003 til minningar um Sigríði Reynisdótlur lækna-
nema sem hefði átt að útskrifast það ár en lést
meðan á námi stóð. -ÞH
Embættispróf í læknisfræðí 25, júní 2005
Agnar Bjarnason
Anna Margrét Jónsdóttir
Arnfríöur Henrysdóttir
Arnþór Heimir Guöjónsson Luther
Ágúst Hilmarsson
Bjarni Geir Viðarsson
Brynja Ármannsdóttir
Einar Þór Bogason
Einar Þór Hafberg
Elías Þór Guðbrandsson
Elín Anna Helgadóttir
Eva Jónasdóttir
Guömundur Otti Einarsson
Guðmundur Fr. Jóhannsson
Guðný Stella Guðnadóttir
Guðrún Jónsdóttir
Hallgerður Lind Kristjánsdóttir
Helga Margrét Skúladóttir
Helgi Karl Engilbertsson
Hermann Páll Sigbjarnarson
Hildur Þórarinsdóttir
Hilmir Ásgeirsson
Hlynur Georgsson
Hulda Rósa Þórarinsdóttir
Ingibjörg Hilmarsdóttir
Janus Freyr Guðnason
Jenna Huld Eysteinsdóttir
Jens Kristján Guðmundsson
Jóhanna Gunnarsdóttir
Jón Torfi Gylfason
Matthildur Sigurðardóttir
Oddur Ingimarsson
Óttar Geir Kristinsson
Ragna Hlín Þorleifsdóttir
Sigríður Bára Fjalldal
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir
Sólrún Melkorka Maggadóttir
Steinar Björnsson
Steinunn Arnardóttir
Trausti Óskarsson
Viktor Davíð Sigurðsson
Þórður Þórarinn Þórðarson
Örvar Gunnarsson
Læknablaðið 2005/91 607