Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CODEX ETHICUS Endurskoðun Codex Ethicus Siðareglur lækna endurspegla hugsunarhátt og hefðir þeirra sem stéttar. Pótt sum atriðin breyt- ist ekki í áranna rás hafa önnur tilhneigingu til að sveigjast eftir tíðaranda og aðstæðum. Þær siðareglur sem við búum við núna í Læknafélagi íslands hafa ekki tekið neinum umtalsverðum breytingum í hálfan annan áratug. Stjórn LI ákvað því í byrjun árs 2004 að fram skyldi fara endurskoðun á Siðareglum lækna, Codex Ethicus. Stjórnin skipaði þriggja manna nefnd undir forystu Ásdísar Rafnar hrl., fyrrum framkvæmdastjóra félagsins, en auk hennar sátu í nefndinni Tómas Zoega, fyrrum formaður Siðfræðiráðs LI og Einar Oddsson þáverandi formaður ráðsins. Nefndin skilaði tillögu sinni að endurskoðuðum siðareglum til stjórnarinnar sem ákvað að senda tillöguna til Siðfræðiráðs til umfjöllunar. Siðfræðiráð skipa: Jón Snædal formaður, Arna Rún Óskarsdóttir, Ástríður Stefánsdóttir, Benedikt Ó. Sveinsson, Guðlaug Þorsteinsdóttir, Kristín Sigurðardóttir og Sveinn Kjartansson. Tillögur nefndarinnar voru talsverðar og vörð- uðu innihald, uppbyggingu og innra samræmi. Siðfræðiráðið var í flestum grundvallaratriðum sammála en gerði nokkrar breytingar til viðbótar og skilaði svo af sér til stjórnar LÍ í apríl síðast- liðnum og verða tillögurnar lagðar fyrir aðalfund í haust til umræðu og afgreiðslu. Það gefst tæplega rúm til þess þá að fara nákvæmlega yfir þessar breytingar en auðvitað gefst færi á umbótum ef þurfa þykir. Það er því mikilvægt að allir læknar sem láta sig siðareglur félagsins einhverju skipta skoði þær vel og komi á framfæri hugmyndum að breytingum fyrir aðalfund eða á honum. Þær breytingar sem lagðar eru til verða ekki tíundaðar hér en minnst á nokkur atriði sem taka efnislegum breytingum. Læknar eru því hvattir til að skoða tillögurnar á netinu og mynda sér skoðun. • Skírskotað er til laga og reglugerða sem sam- þykkt hafa verið frá því síðasta endurskoðun fór fram, svo sem lög um réttindi sjúklinga, persónuvernd og ákvæði um starfsumhverfi lækna. • Ákvæði úr lögum um réttindi sjúklinga rata inn í siðareglurnar efnislega, svo sem réttindi þeirra til að fá upplýsingar og einnig réttindi þeirra að fá ekki upplýsingar ef þeir ákveða svo. Ennfremur hvernig fara skuli með upp- lýsingar sem viðkomandi sjúklingur getur vegna heilsu sinnar ekki meðtekið. • Nýr seinni hluti á 6. grein: „Læknir sem tekur þátt í vísindarannsókn skal gæta þess að allar rannsóknarniðurstöður, sem hafa þýðingu fyrir sjúkdómsgreiningu, meðferð og forvamir, verði birtar. Birting niðurstaðna skal almennt fara fram á vettvangi læknisvísindanna.“ • í 10. grein er nýtt ákvæði: „Læknir skal hafa það hugfast að náin persónuleg kynni við sjúkling geta haft áhrif á dómgreind hans og faglegt sjálfstæði. Læknir ætti því almennt að forðast að bera ábyrgð á læknismeðferð náinna vandamanna sinna, ekki síst þegar um langvarandi og alvarlega sjúkdóma er að ræða. Ótilhlýðilegt er að læknir stofni til kyn- ferðislegs sambands við sjúkling sem hann hefur til meðferðar." • Ákvæði um vísun sjúklinga frá einum lækni til annars eru stytt og einfölduð en þau þóttu full smámunasöm. • Til viðbótar stuttri grein er hljóðar svo og verður óbreytt: „Læknir má auglýsa starf- semi sína að því marki, sem landslög leyfa.“ bætist: „Við kynningu á læknisþjónustu skal veita nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingar og hafa öryggi þeirra að leiðarljósi sem leita eftir þjónustunni. Kynni læknir sjálfan sig og starfsemi sína á vefsíðum eða með öðrum hætti skal hann birta siðareglur lækna með aðgengilegum hætti.“ • Ákvæði um að læknar og fjölskyldur þeirra skuli fá þjónustu endurgjaldslaust hjá öðrum læknum er felld niður. Röksemdafærsla fyrir þessum breytingum og þær tillögur sem skilað var til stjórnar LI eru á neti Ll' www.lis.is Til glöggvunar verða tillögurnar birtar aðskildar eins og þær hafa komið fram frá nefnd stjórnar LÍ annars vegar og frá Siðfræðiráði hins vegar. Jón Snædal jsnaedal@landspitali. is Höfundur er formaður Siðfræðiráðs Læknafélags íslands. Læknablaðið 2005/91 609
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.