Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / KRABBAMEINSRANNSÓKNIR
Norrænu krabbameinsfélögin verja
hundruðum milljóna til rannsókna
Norrænu krabbameinsfélögin samþykktu nýlega
sameiginlega stefnumörkun um að eíla krabba-
meinsrannsóknir á næstu fimm árum. Fjármagni
að heildarupphæð fimm milljónum evra, eða tæp-
lega 400 milljónum íslenskra króna, verður ráðstaf-
að í rannsóknir á árunum 2006-2010. Er þetta um-
talsvert hærri upphæð en félögin hafa áður varið
sameiginlega til slíkra rannsókna.
Krabbameinsfélögin í Finnlandi, Noregi, Sví-
þjóð, Færeyjum og á íslandi leggja áherslu á að
ráðamenn og stjórnvöld á norrænum og evrópsk-
um vettvangi geri sér glögga grein fyrir mikilvægi
þess að rannsóknir njóti stuðnings og hvetja til
þess að opinberir aðilar leggi aukið fé af mörkum
líkt og félögin hafa gert.
Faraldsfræði krabbameina
Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja rannsókn-
ir á faraldsfræði krabbameina til þess að auka
skilning á orsökum og tíðni krabbameins og gangi
sjúkdómsins. Það er grundvöllur þess að þróa ár-
angursríkar og markvissar forvarnir gegn krabba-
meini. Áætlað er að 85% af öllu krabbameini stafi
af neikvæðum áhrifum umhverfis og lífshátta.
Sérstakar orsakir eru nú þekktar fyrir 35% þess
krabbameins sem greinist.
Heilsubætandi aðgerðir
og endurhæfing sjúklinga
Annað áherslusvið norrænu krabbameinsfélag-
anna er rannsóknir á heilsubætandi aðgerðum.
Aukinn skilningur á þessu sviði er lykilatriði til
þess að þróa áhrifaríkar forvarnir. Auk þess þarf
aukna vitneskju um hvernig best er að skipuleggja
endurhæfingu krabbameinssjúklinga. Þetta er
mikilvægt þar sem æ fleiri sjúklingar læknast eða
lifa lengur eftir að hafa greinst með krabbamein.
Krabbameinsfélögin kalla eftir norrænum rann-
sóknum á sviði endurhæfingar krabbameinssjúk-
linga sem eiga að ná til sálrænna, félagslegra og
líkamlegra þátta í tengslum við greiningu, meðferð
og það að lifa með krabbamein.
Framtíðaraðgerðir
Sérstök áhersla verður lögð á rannsóknartengd
verkefni eins og að fylgjast með, skrá og greina
upplýsingar og gögn (til dæmis tíðni og dánartíðni
krabbameina, lifun eftir greiningu krabbameins).
Framfarir við sjúkdómsgreiningu og meðferð eru
stöðugar. Söfnun gagna og upplýsinga, greining
þeirra og mat á þróuninni mun skapa þekkingu sem
er nauðsynleg til að vísa á þá þætti sem þarfnast úr-
bóta. Einnig verður veittur stuðningur til þjálfunar
vísindafólks og annarra áhugaverðra verkefna sem
tengjast aðgerðum varðandi krabbamein.
Samstarf síðan 1949
Félögin hafa starfað saman innan vébanda Nor-
rænu krabbameinssamtakanna (Nordic Cancer
Union, NCU) síðan 1949 að því að bæta þekkingu
og skilning á krabbameinssjúkdómum. Þau vinna
að forvörnum, krabbameinsmeðferð og endurhæf-
ingu og ýta undir árangursríka beitingu hennar á
Norðurlöndunum. Mikilvægur þáttur samstarfsins
er að örva og fjármagna norrænar krabbameins-
rannsóknir. Fjárhagslegum stuðningi er miðlað
með rannsóknarstyrkjum sem samtökin annast.
Ákvarðanir um styrkveitingar byggjast á kröfum
um gæði rannsókna og faglegt mat. Mat á verk-
efnum sem styrkt eru og framgangi þeirra og nýt-
ingu rannsóknarniðurstaðna á Norðurlöndunum
verður eflt á þessu fimm ára tímabili.
Norðurlöndin eru einstakt kjörsvæði fyrir rann-
sóknarsamstarf og skráningu krabbameins. Þar
eru sérstök skilyrði til þess að sinna víðtækum lýð-
grunduðum rannsóknum sem geta gefið almennar
vísbendingar fyrir aðrar þjóðir. Þetta má gera með
því að nýta hina mörgu vönduðu gagnagrunna og
skrár sem er að finna á Norðurlöndum. Ibúar eru
tiltölulega einsleitur hópur sem nemur um 25 millj-
ónum manna og það gefur líka kost á einstökum
samanburðarrannsóknum.
Krabbameinsfélag íslands hefur jafnan séð um
að birta auglýsingar um styrkveitingar á vegum
norrænu samtakanna í Læknablaðinu, á háskóla-
vefnum og á innra neti Landspítala, auk heimasíðu
Krabbameinsfélagsins www.krabb.is
Væntanlega verður auglýst eftir umsóknum um
ofangreinda styrki á næsta ári.
Guðrún
Agnarsdóttir
gudrunag@krabb. is
Höfundur er læknir og for-
stjóri Krabbameinsfélags
íslands.
Læknablaðið 2005/91 613