Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 39

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚTSKRIFT NÝRRA LÆKNA 43 nýir læknar útskrifast frá læknadeild HÍ Karlaveldið innan læknastéttar er að hrynja, það fór ekki milli mála við útskrift nýrra lækna um Jónsmessuna. Að vísu hafa karlar vinninginn í röðum nýju læknanna, þeir eru 23 á móli 20 konum, en þetta verður í síðasta sinn sem svo er. Frá og með næsta ári verða konur fleiri í hverjum árgangi og ef taka á mið af umsóknum um inn- göngu í læknadeild á þessu vori breytast kynja- hlutföllin hratt í deildinni. Að þessu sinni þreyttu 130 konur inntökupróf en einungis 54 karlar. Af þeim 43 sem útskrifuðust í ár eru sex með II. einkunn, 35 með I. einkunn og 2 með ágætiseink- unn. Dúxar eru Hilmir Ásgeirsson með 9,38 og Sólrún Melkorka Maggadóttir með 9,13. Að vanda bauð Læknafélag Islands útskrift- arhópnum til samsætis daginn fyrir útskrift. Þar voru bornar fram veitingar og nýir læknar undir- rituðu læknaeiðinn og hlýddu á vísdóm og hollráð sér eldri kollega. Þeir sem ávörpuðu hópinn að þessu sinni voru Sigurbjörn Sveinsson formaður LÍ, Stefán Sigurðsson forseti læknadeildar, Jón Snædal formaður Siðfræðiráðs LÍ og Margrét Georgsdóttir formaður Félags kvenna í lækna- stétt. Loks greindi Hulda Eiríksdóttir frá störfum Hér að ofan er Sigurbjörn Sveinsson formaður LI búinn að afhenda dúxinum Hilmi Ásgeirssyni viðurkenningu en á neðri myndinni spjallar Stefán Sigurðsson deildarforseti við nýútskrifaðan lœkni. Nýútskrifaðir lœknar hlýða á boðskap kolleganna og undirrita eiðstafinn. Minningarsjóðs læknanema sem stofnaður var árið 2003 til minningar um Sigríði Reynisdótlur lækna- nema sem hefði átt að útskrifast það ár en lést meðan á námi stóð. -ÞH Embættispróf í læknisfræðí 25, júní 2005 Agnar Bjarnason Anna Margrét Jónsdóttir Arnfríöur Henrysdóttir Arnþór Heimir Guöjónsson Luther Ágúst Hilmarsson Bjarni Geir Viðarsson Brynja Ármannsdóttir Einar Þór Bogason Einar Þór Hafberg Elías Þór Guðbrandsson Elín Anna Helgadóttir Eva Jónasdóttir Guömundur Otti Einarsson Guðmundur Fr. Jóhannsson Guðný Stella Guðnadóttir Guðrún Jónsdóttir Hallgerður Lind Kristjánsdóttir Helga Margrét Skúladóttir Helgi Karl Engilbertsson Hermann Páll Sigbjarnarson Hildur Þórarinsdóttir Hilmir Ásgeirsson Hlynur Georgsson Hulda Rósa Þórarinsdóttir Ingibjörg Hilmarsdóttir Janus Freyr Guðnason Jenna Huld Eysteinsdóttir Jens Kristján Guðmundsson Jóhanna Gunnarsdóttir Jón Torfi Gylfason Matthildur Sigurðardóttir Oddur Ingimarsson Óttar Geir Kristinsson Ragna Hlín Þorleifsdóttir Sigríður Bára Fjalldal Sigurbjörg Sigurjónsdóttir Sólrún Melkorka Maggadóttir Steinar Björnsson Steinunn Arnardóttir Trausti Óskarsson Viktor Davíð Sigurðsson Þórður Þórarinn Þórðarson Örvar Gunnarsson Læknablaðið 2005/91 607

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.