Læknablaðið - 15.05.2006, Side 29
FRÆÐIGREINAR / T R E FJ AV EFSLUNGNABÓLGA
Trefjavefslungnabólga tengd
notkun lyfsins amíódarón
Ólafur Á.
Sveinsson’
NÁMSLÆKNIR
Helgi J. ísaksson2
SÉRFRÆÐINGUR í
LÍFFÆRAMEINAFRÆÐI
Gunnar
Guðmundsson1,3
SÉRFRÆÐINGUR í
LYF-, LUNGNA- OG
GJÖRGÆSLULÆKNINGUM
1 Lungnadeild Landspítala
Fossvogi,
2 rannsóknastofu í meina-
fræði, Landspítala Hringbraut,
3 rannsóknastofu í lyfja- og
eiturefnafræði, læknadeild
HÍ.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Gunnar Guðmundsson,
lungnadeild E-7 Landspítala
Fossvogi, 108 Reykjavík.
Sími 543-6876, fax 543-6568
ggudmund@landspitali. is
Lykilorð: liingu, trefja-
vefslungnabólga, auka-
verkanir lyfja, amíódarón.
Sjúkratilfelli og yfirlit
Ágrip
Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að lýsa
sjúkratilfellum trefjavefslungnabólgu sem tengd-
ust notkun lyfsins amíódarón á Islandi.
Efniviður og aðferðir: Aftursæ rannsókn þar sem
upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám árin
1984-2003. Sjúkraskrár voru yfirfarnar og kannaðar
myndgreiningarniðurstöður, vefjafræðilegar nið-
urstöður og meðferð sjúklinga.
Niðurstöður: Lýst er þremur tilfellunr trefjavefs-
lungnabólgu hjá tveimur körlum og einni konu og
greiningu og meðferð þeirra. Gefið er yfirlit yfir
stöðu þekkingar.
Alyktanir: Nauðsynlegt er fyrir lækna að vera
meðvitaðir um að amíódarón getur valdið lungna-
breytingum og að mikilvægt er að fylgjast vel með
sjúklingum sem taka lyfið.
Inngangur
Trefjavefslungnabólga (organising pneumonia) er
sjúkdómsástand í lungum sem skilgreint er með
klínískum einkennum, myndgreiningarrannsókn-
um og vefjafræðilegum breytingum í sameiningu
(1). Klínísk einkenni eru oft hósti, mæði, hækk-
aður líkamshiti og almennur slappleiki. Algengt
er að einkennin hafi verið til staðar í nokkrar
vikur (1,2). Oftast heyrist brak við lungnahlustun.
I blóðrannsóknum koma fram merki um bólgu
með mikilli hækkun á CRP og sökki. Einnig er
aigengt að sjá lækkun á súrefnisþrýstingi í slag-
æðablóðgasamælingum. Lungnarannsóknir sýna
herpu og skerðingu á loftdreifiprófi með kolmón-
oxíði. Myndgreiningarrannsóknir geta sýnt fjöl-
breytt mynstur, til dæmis dreifðar millivefsíferðir,
afmarkaðar lungnablöðruíferðir eða staka hnúða
(2, 3). Vefjafræðileg skilgreining er eftirfarandi: í
fjarlægum (distal) loftvegum eru til staðar sprotar
af græðsluvef sem spannar frá fíbrín seytri til laus-
gerðs bandvefs án kollagens með trefjakímfrum-
um. Oftast eru breytingarnar í lungnablöðrum en
geta einnig verið til staðar í holi berkjunga og kall-
ast það berkjungastífla (4). Petta vefjafræðilega
mynstur er ekki dæmigert fyrir ákveðinn sjúkdóm
eða orsök heldur endurspeglar það ákveðna gerð
af bólgusvari eftir lungnaskaða. Þessi mynd getur
einnig sést sem hluti af vefjasvari í bráðu andnauð-
ar heilkenni (acute respiratory distress syndrome)
og í bólgusjúkdómum eins og æðabólgum (4).
Hægt að flokka trefjavefslungnabólgu eftir
ENGLISH SUMMARY
Sveinsson ÓÁ, ísaksson HJ, Guðmundsson G
Organising pneumonia in connection with
Amíodarone treatment. Case reports
and review
Læknablaðið 2006; 92: 385-8
Objective: The objective of the study was to describe
case reports of organising pneumonia in lceland
induced by the drug amiodarone.
Material and methods: Retrospective study where
information was obtained from clinical charts from
1984-2003. Medical records, imaging studies and
histopathology were re-evaluated.
Results: Described are three case reports of organising
pneumonia associated with amiodarone use in two
males and one female. Diagnostic methods and
treatment are described and current literature is
discussed.
Conclusions: It is important for physicians to be aware
of lung changes that amiodarone can cause and the
importance of monitoring these patients.
Keywords: lungs, organising pneumonia, drug side effects,
amiodarone.
Correspondance: Gunnar Guðmundsson,
ggudmund@landspitali.is
því hvort orsökin er þekkt eða óþekkt eins og
sýnt er í töflu I. Trefjavefslungnabólga hefur
einnig verið kölluð berkjungastífla með trefjavefs-
lungnabólgu (bronchiolitis obliterans organising
pneumonia, BOOP) en nýlega hefur verið mælt
með því að nota frekar trefjavefslungnabólga og
skipta henni í óþekktar (cryptogenic organising
pneumonia) og þekktar orsakir (secondary org-
anising pneumonia) (5). Ein af þekktum orsökum
er lyfið amíódarón sem hefur verið mikið notað
við hjartsláttartruflunum. Tilgangur rannsókn-
arinnar var að lýsa klínískum einkennum, meðferð
og afdrifum sjúklinga á íslandi sem fengið hafa
trefjavefslungnabólgu tengda notkun amíódarón á
tímabilinu 1984-2003.
Efniviður og aðferðir
Um er að ræða aftursæja rannsókn sem náði yfir
tímabilið 1984-2003. Fengin voru sjúkdómsgrein-
ingarnúmer frá sjúkrahúsum, vefjafræðigreiningar
frá rannsóknastofu í meinafræði og upplýsingar
Læknablaðið 2006/92 385