Læknablaðið - 15.05.2006, Síða 31
FRÆÐIGREINAR / T R E FJ AV EFSLUNGNABÓLGA
sýnt er á mynd 3. Það var því talið að hér væri um
amíódarón eitrun að ræða. Hafin var sterameðferð
með 60 mg af prednisólón á dag og sýklalyfjagjöf
hætl. Hann varð fljótt hitalaus en það tók nokkrar
vikur fyrir öndunarbilun að ganga yfir. Maðurinn
var meðhöndlaður með sterum í samtals 10 mán-
uði og engin endurkoma varð af sjúkdómnum.
Sjúkratilfelli II
Um er að ræða áttræðan karlmann með mánaðar-
sögu um einkenni frá öndunarfærum. Einkenni
voru tak fyrir brjósti vinstra mcgin, þyngsli við
öndun og þurr hósti á nóttunni. Einnig hækkaður
líkamshiti. Lungnahlustun leiddi í ljós brak beggja
vegna í lungum. Maðurinn hafði fengið sýklalyf í
tvígang sem hann hafði ekki svarað. I heilsufars-
sögu kom fram að hann hafði sögu um krans-
æðasjúkdóm, ósæðarlokusjúkdóm, hjartabilun og
háþrýsting. Hann hafði verið á amíódarón vegna
gáttatifs. Myndgreiningarrannsóknir sýndu dreifð-
ar íferðir í báðum lungum. Gerð var berkjuspegl-
un og tekin sýni sem sýndu dæmigerðar trefjavefs-
lungnabólgu breytingar og merki um amíódarón
áhrif. Inntaka lyfsins var stöðvuð og í kjölfarið
var hafin meðferð með 40 mg prednisólón á dag.
Varð hann fljótlega einkennalaus frá lungum og
fékk hann stera í alls sex mánuði án endurkomu
sjúkdóms.
Sjúkratilfelli III
Um er að ræða 74 ára gamla konu með sögu
um gáttatif. Fyrir komu hafði sjúklingur verið
með þrálátan hósta og gulgrænan uppgang
og fundið fyrir vaxandi mæði við áreynslu.
Myndgreiningarrannsóknir sýndu dreifðar íferðir
í báðum lungum. Talin vera með lungabólgu og
var sett á sýklalyf. Við það skánaði líðan hennar.
Var með gáttatif og var því meðhöndluð með
amíódarón. Ástand batnaði í tvær vikur en þá
komu öndunarfæraeinkenni með öndunarbilun.
Auknar íferðir sáust í lungum og með berkju-
speglun greindist trefjavefslungnabólga og merki
um amíódarón eitrun. Lyfjagjöf var hætt og stera-
meðferð hafin. Sjúklingur lést úr hjartasjúkdómi
og lungnabólgu fjórum mánuðum síðar.
Umræða
Farið var að nota amíódarón við hjartsláttartrufl-
unum á árunum uppúr 1980. Það var notað við
sleglahraðtakti, sleglatifi og gáttatifi (6). í fyrstu var
lyfið notað í háum skömmtum, eða allt að 1600 mg
á dag. í framhaldinu var lýst fjöldamörgum sjúkra-
tilfellum með ýmiskonar fylgikvillum frá lungum
og læknum urðu Ijósari hættur við notkun lyfsins.
Þá var farið að nota lyfið í lægri skömmtum (100-
400 mg). Við langtímanotkun safnast amíódarón
Mynd 2. Vefjasýni frá lungum með trefjavefslungnabólgu. Örvar benda á lausgerðan
bandvef.
og niðurbrotsefni þess, desmethylamíódarón, upp í Mynd 3. Vefjasýni með
ýmsum vefjum, þar á meðal lungum. Tvö mólikúl af froðuátfrumum (örvar) í
joði eru fyrir hvert mólikúl af lyfinu eða niðurbrots- lungnablöðrum.
efninu og hefur það áhrif á niðurbrot fosfólípíða
í lungum sem leiðir til uppsöfnunar þeirra þar.
Amíódarón og niðurbrotsefni þess eru lengi að
hverfa úr lungum eftir að meðferð er hætt (6).
Læknablaðið 2006/92 387