Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.2006, Side 47

Læknablaðið - 15.05.2006, Side 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SIÐFRÆÐI Þankar um þagnarskyldu Undanfarnamánuðihefurþagnarskyldalæknaverið til umfjöllunar hjá Siðfræðiráði Læknafélagsins. Ástæðan eru aðstæður sem upp hafa komið á viss- um vinnustöðum lækna þar sem félaga hefur greint á um hversu strangt skuli halda í heiðri þessa æva- fornu meginreglu um trúnað við sjúklinga. Öllum læknum er reglan um trúnað og þagn- arskyldu afar mikilvæg og líta margir svo á að hér sé um meginreglu að ræða, sem ekki megi víkja frá. Breyttar þjóðfélagsaðstæður hafa hins vegar knúið löggjafann til að setja lög og reglur sem á tíðum ganga þvert á trúnaðareiðinn um þagnarskyldu og þannig skapast aðstæður sem geta komið okkur læknum í alvarlega samviskuklípu. Besta dæmið um svona aðstæður eru „burð- ardýr”, þeir sem bera eiturlyf innvortis og leita sér lækninga vegna yfirvofandi garnastíflu, en biðja um leið að trúnaði og að þagnarskyldu sé heitið gagnvart lögreglu, en um þetta hefur nýlega verið fjallað í pistli hér í Læknablaðinu. Sum samskipti lækna við sjúklinga eru við- kvæmari en önnur, þar sem mikilvægt er að halda algjörum trúnaði. í þessum flokki eru meðal annars kynsjúkdómar og ótímabærar þunganir unglingsstúlkna. Á þennan trúnað og samskipti reynir oftast hjá heimilislæknum og kven- og kyn- sjúkdómalæknum. Þar sem slík vandamál koma upp, hjálpa lögin að vissu marki. Sé unglingurinn, barnið, innan fjórtán ára aldurs er um refsiverð- an glæp að ræða sem tafarlaust ber að tilkynna barnaverndaryfirvöldum og eða lögreglu og ganga lögin þar ótvírætt framar eið um þagnarskyldu og trúnað. Málið vandast hins vegar þegar um einstakling á aldursbilinu fjórtán til átján ára er að ræða. Ósjaldan koma mæður eða feður með börnum sínum til viðtals og skoðunar á þessunr aldri og vilja vita niðurstöður rannsókna, til dæmis úr kynsjúkdómaræktunum, hvort um þungun sé að ræða og hversu langt gengin og svo frainveg- is. Það er hins vegar alveg klárt að megin þorri þessara unglinga vill vera sjálfstæður og halda þessum upplýsingum leyndum fyrir foreldrum sínum. Hér er greinilega um grátt svæði að ræða þar sem þagnarskyldan og lögin greinir á hvernig tekið skuli á málum. Gott dæmi um þetta er nýlegt baksíðuviðtal í Morgunblaðinu við prófessor og forstöðulækni Kvennadeildar, en þar stendur: ,,Dcemi eru um fóstureyðingar hjá stúlkum án vitn- eskju foreldra”. Þar segir jafnframt: „Dœmi eru um að unglingsstúlkur gangist undir fóstureyðingu hér á landi án þess að foreldrar þeirra viti af en þau til- felli eru hins vegar fátíð... slík tilvik komi helst upp þegar félagslegar aðstœður eru erfiðar hjá barninu eða foreldrum, svo sem við mikla fíkniefnaneyslu eða óreglu og ef lítið eða ekkert samband er milli unglingsins og foreldranna. í slíkum tilfellum verð- um við læknarnir stundum að láta þagnarskyldu og trúnað ganga framar landslögum. Geðlæknar lenda og oft í svipaðri stöðu þar sem sjúklingar upplýsa mál gegn þagnarskyldu og trún- aði. Mál sem oftast lúta að nánasta skjólstæðingi, maka, börnum og ættingjum, en geta líka verið játning á alvarlegum refsiverðum glæp samkvæmt hegningarlögum. Hvar á að draga mörkin? Hver er réttarstaða þeirra lækna, sem þegja yfir upplýs- ingum um refsiverðan glæp? Þetta er vissulega efni til íhugunar. En hvers virði er annars þagnarskylda okkar læknanna, einkum og sér í lagi þeirra sem vinna á heilsugæslustöðvum og stærri spítölum eins og Landspítala. Þar er nú búið að rafvæða allar sjúkraskrár, þar sem læknar og deildarhjúkrunar- fræðingar eiga auðveldan aðgang að viðkvæmum persónuupplýsingum um sjúklinga, sem eru ekki og haf'a aldrei verið þeirra skjólstæðingar. Á þetta hefur reynt að undanförnu þar sem ólíklegustu aðilar voru að hnýsast í einkamál eins af veikum félaga okkar. Hér virðist þarft verk að vinna. Hvað sem líður þægindunum að geta án tafar flett upp upplýsingum um sjúklinga, mega þau þægindi aldrei bera þagnarskyldu og trúnað okkar við sjúk- linga ofurliði. Ég skora á alla félaga í læknastétt að ígrunda þetta mál vel. Koma með tillögur til úrbóta ella spyrna við fótum. Benedikt Ó. Sveinsson ben@centrum.is Þriðji pistill af nokkrum sem liðsmenn Siðfræðiráðs LÍ skrifa um trúnað, þagnarskyldu og ný sjónarmið samfélagsins gagnvart þeim málefnum. í Siðfræðiráði sitja: Jón G. Snædal formaður Arna Rún Óskarsdóttir Ástríður Stefánsdóttir Benedikt Ó. Sveinsson Guðlaug Þorsteinsdóttir Kristín Sigurðardóttir Sveinn Kjartansson Höfundur er kvensjúkdómalæknir. Læknablaðið 2006/92 403

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.