Læknablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SIÐFRÆÐI
Þankar um þagnarskyldu
Undanfarnamánuðihefurþagnarskyldalæknaverið
til umfjöllunar hjá Siðfræðiráði Læknafélagsins.
Ástæðan eru aðstæður sem upp hafa komið á viss-
um vinnustöðum lækna þar sem félaga hefur greint
á um hversu strangt skuli halda í heiðri þessa æva-
fornu meginreglu um trúnað við sjúklinga.
Öllum læknum er reglan um trúnað og þagn-
arskyldu afar mikilvæg og líta margir svo á að hér
sé um meginreglu að ræða, sem ekki megi víkja frá.
Breyttar þjóðfélagsaðstæður hafa hins vegar knúið
löggjafann til að setja lög og reglur sem á tíðum
ganga þvert á trúnaðareiðinn um þagnarskyldu og
þannig skapast aðstæður sem geta komið okkur
læknum í alvarlega samviskuklípu.
Besta dæmið um svona aðstæður eru „burð-
ardýr”, þeir sem bera eiturlyf innvortis og leita sér
lækninga vegna yfirvofandi garnastíflu, en biðja
um leið að trúnaði og að þagnarskyldu sé heitið
gagnvart lögreglu, en um þetta hefur nýlega verið
fjallað í pistli hér í Læknablaðinu.
Sum samskipti lækna við sjúklinga eru við-
kvæmari en önnur, þar sem mikilvægt er að halda
algjörum trúnaði. í þessum flokki eru meðal
annars kynsjúkdómar og ótímabærar þunganir
unglingsstúlkna. Á þennan trúnað og samskipti
reynir oftast hjá heimilislæknum og kven- og kyn-
sjúkdómalæknum. Þar sem slík vandamál koma
upp, hjálpa lögin að vissu marki. Sé unglingurinn,
barnið, innan fjórtán ára aldurs er um refsiverð-
an glæp að ræða sem tafarlaust ber að tilkynna
barnaverndaryfirvöldum og eða lögreglu og ganga
lögin þar ótvírætt framar eið um þagnarskyldu
og trúnað. Málið vandast hins vegar þegar um
einstakling á aldursbilinu fjórtán til átján ára er
að ræða. Ósjaldan koma mæður eða feður með
börnum sínum til viðtals og skoðunar á þessunr
aldri og vilja vita niðurstöður rannsókna, til dæmis
úr kynsjúkdómaræktunum, hvort um þungun sé
að ræða og hversu langt gengin og svo frainveg-
is. Það er hins vegar alveg klárt að megin þorri
þessara unglinga vill vera sjálfstæður og halda
þessum upplýsingum leyndum fyrir foreldrum
sínum. Hér er greinilega um grátt svæði að ræða
þar sem þagnarskyldan og lögin greinir á hvernig
tekið skuli á málum. Gott dæmi um þetta er nýlegt
baksíðuviðtal í Morgunblaðinu við prófessor og
forstöðulækni Kvennadeildar, en þar stendur:
,,Dcemi eru um fóstureyðingar hjá stúlkum án vitn-
eskju foreldra”. Þar segir jafnframt: „Dœmi eru um
að unglingsstúlkur gangist undir fóstureyðingu hér
á landi án þess að foreldrar þeirra viti af en þau til-
felli eru hins vegar fátíð... slík tilvik komi helst upp
þegar félagslegar aðstœður eru erfiðar hjá barninu
eða foreldrum, svo sem við mikla fíkniefnaneyslu
eða óreglu og ef lítið eða ekkert samband er milli
unglingsins og foreldranna. í slíkum tilfellum verð-
um við læknarnir stundum að láta þagnarskyldu og
trúnað ganga framar landslögum.
Geðlæknar lenda og oft í svipaðri stöðu þar sem
sjúklingar upplýsa mál gegn þagnarskyldu og trún-
aði. Mál sem oftast lúta að nánasta skjólstæðingi,
maka, börnum og ættingjum, en geta líka verið
játning á alvarlegum refsiverðum glæp samkvæmt
hegningarlögum. Hvar á að draga mörkin? Hver
er réttarstaða þeirra lækna, sem þegja yfir upplýs-
ingum um refsiverðan glæp? Þetta er vissulega efni
til íhugunar.
En hvers virði er annars þagnarskylda okkar
læknanna, einkum og sér í lagi þeirra sem vinna
á heilsugæslustöðvum og stærri spítölum eins
og Landspítala. Þar er nú búið að rafvæða allar
sjúkraskrár, þar sem læknar og deildarhjúkrunar-
fræðingar eiga auðveldan aðgang að viðkvæmum
persónuupplýsingum um sjúklinga, sem eru ekki
og haf'a aldrei verið þeirra skjólstæðingar. Á þetta
hefur reynt að undanförnu þar sem ólíklegustu
aðilar voru að hnýsast í einkamál eins af veikum
félaga okkar. Hér virðist þarft verk að vinna. Hvað
sem líður þægindunum að geta án tafar flett upp
upplýsingum um sjúklinga, mega þau þægindi
aldrei bera þagnarskyldu og trúnað okkar við sjúk-
linga ofurliði. Ég skora á alla félaga í læknastétt
að ígrunda þetta mál vel. Koma með tillögur til
úrbóta ella spyrna við fótum.
Benedikt Ó.
Sveinsson
ben@centrum.is
Þriðji pistill af nokkrum
sem liðsmenn Siðfræðiráðs
LÍ skrifa um trúnað,
þagnarskyldu og ný sjónarmið
samfélagsins gagnvart þeim
málefnum.
í Siðfræðiráði sitja:
Jón G. Snædal formaður
Arna Rún Óskarsdóttir
Ástríður Stefánsdóttir
Benedikt Ó. Sveinsson
Guðlaug Þorsteinsdóttir
Kristín Sigurðardóttir
Sveinn Kjartansson
Höfundur er
kvensjúkdómalæknir.
Læknablaðið 2006/92 403