Læknablaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 90
MINNISBLAÐIÐ
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir
hundrita til ritstjórnar Lækna-
blaðsins, Hlíðasmára 8,201
Kópavogi. Annað án nafna
höfunda, stofnana og án þakka
sé um þær að ræða. Greininni
fylgi yfirlýsing þess efnis að
allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir
afsali sér birtingarrétti til
blaðsins.
Handriti skal skilað nteð tvö-
földu línubili á A-4 blöðum.
Hver hluti skal byrja á nýrri
blaðsíðu í eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur «g myndir skulu vera
á ensku eða íslensku, að vali
höfunda.
Tölvuunnar inyndir og gröf
komi á rafrænu forrni ásamt
útprenti.Tölvugögn (data) að
baki gröfum fylgi með, ekki
er hægt að nýta myndir úr
PowerPoinl eða af netinu.
Eftir lokufrágung berist allar
greinar á tölvutæku formi með
útprenti.
Sjá upplýsingur unt frágang
fræðilegra greina:
www. laeknabladicl. is/bladid
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. undanfarandi mánaðar
nema annað sé tekið fram.
Ráðstefnur og fundir
2.-3. apríl
London.
Institute of Psychiatry , King's College í Lond-
on heldur þing: Depression:
Brain causes - Body consequences. Skrán-
ing til 14. febrúar. Sjá nánar:
www.iop.kcl.ac.uk/depression
11-13 maí
Nyborg á Fjóni.
Árlegt þing Scandinavian Society for the
study of Diabetes verður haldið í
Danmörku að þessu sinni, sjá nánar:
www.ouh.dk/sssd2007
30. maí - 1. júní
Grand Hótel, Reykjavík.
5. norræna ráðstefnan um rannsóknir
á einhverfu. Upplýsingar og skráning:
www.yourhost.is/nocra2007
13.-16. júní
Reykjavík.
15. þing norrænna heimilislækna, undir heit-
inu: „The human face of medicine in a hi-tech
world“. Sjá nánar:
www.meetingiceland.com/gp2007
27.-30. júní
Reykjavík.
46. ársfundur International Spinal Cord
Society (ISCoS) og samhliða því er 10. þing
Nordic Spinal Cord Society (NoSCoS).
Allar upplýsingar: www.sci-reykjavik2007.org
8-11. ágúst 2007
Askja, nátturufræðahús Háskóla íslands
Heiti: Cerebral amyloid angiopathy: emerging
concepts
heimasíða: www.yourhost.is/caa2007
21.-23. september
Vín, Austurríki.
5. heimsþingið um: Men’s Health and Gender
WCMH
Sjá nánar: www.wcmh.info
Náms- og rannsóknarsjóður
Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna
Náms- og rannsóknarsjóður Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna auglýsir til umsóknar rannsóknarstyrki,
samtals að upphæð kr. 2.000.000.-. Hámarksstyrkur er kr. 600.000,-.
Umsóknum skal skilað til formanns sjóðsins, Ragnars Danielsen, hjartadeild, Landspítala Hringbraut,
fyrir 1. april 2007. [ umsókn skal koma fram heiti verkefnis, nafn ábyrgðarmanns, rannsóknaráætlun og
kostnaðaráætlun.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að ábyrgðarmaður verkefnisins sé félagi í Hjartasjúkdómafélagi íslenskra
lækna. Umsóknir verða metnar af stjórn sjóðsins og tilkvöddum matsmönnum ef þess gerist þörf.
Umsóknir sem hæsta einkunn hljóta verða styrktar. Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að hafna umsóknum ef
þær teljast ekki fulinægjandi.
Allar umsóknir skulu vera samþykktar af Vísindasiðanefnd og vinnsla persónuupplýsinga tilkynnt til
Persónuverndar. Að jafnaði ganga þær rannsóknir fyrir um styrk sem liggja til grundvallar rannsóknartengdu
námi við læknadeild HÍ, (master/doktor), gæöaverkefni eða rannsóknarverkefni unglækna og læknanema.
Reykjavík, 20. desember 2006,
Stjórn Náms- og rannsóknarsjóðs
Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna,
Ragnar Danielsen, formaður
Hróömar Helgason
Karl Andersen
262 Læknablaðið 2007/93