Læknablaðið - 15.11.2007, Síða 9
RITSTJORNARGREINAR
Jóhannes
Björnsson
johbj<Slandspitali. is
Jóhannes Björnsson,
meinafræðingur á Landspítala
og ritstjóri og ábyrgðarmaður
Læknablaðsins
Afangaskýrsla
Lesendur Læknablaðsins munu greina nokkrar
útlitsbreytingar í þessu hefti. Sá sem þetta ritar er
enginn sérstakur fylgismaður breytinga breyting-
anna einna vegna. Sumir eru vafalaust annarrar
skoðunar, og er hugsanlegt að tími einhvers konar
fataskipta sé upp runninn. Sú ritstjórn Læknablaðs-
ins sem lauk ferli sínum í nóvember 2005 breytti
útliti blaðsins verulega og voru allar þær breyt-
ingar til framfara, ekki sízt umbreytingin í A-4
stærð. Önnur nýjung fyrri ritstjórna var sömuleið-
is lofsverð, þ.e.a.s. nýtt listaverk á hverri forsíðu.
Tiltekinn aðili, sérmenntaður á sviðinu, velur for-
síðuna, upplýsir um listamanninn og skýrir verkið
fyrir þeim okkar sem minna mega sín í sjónlista-
deildinni. Undirritaður bíður forsíðunnar í hverj-
um mánuði með nokkurri eftirvæntingu enda ekki
ólíklegt að sum þeirra listaverka sem fyrst birtust
hér gætu öðlazt frægð og útbreiðslu, t.d. að því
marki, að falsarar fengju á þeim augastað. Er þá
sízt verra að geta leitað uppruna og forvarið verk-
ið á forsíðu félagsrits íslenzkra lækna.
Utlitsbreytingarnar nú eru veigaminni en þær
sem fyrr getur. Ritstjórn vill með þeim reyna að
gera efni blaðsins aðgengilegra lesendum en verið
hefur, sérlega með því að bæta og færa út efnisyf-
irlit. Með öðrum breytingum er þess freistað að
auðkenna aðsent efni eftir tegund þess: vísinda-
greinar, yfirlitsgreinar, sjúkratilfelli, annað aðsent
efni, þar með talinn félagslega hlutann. Ritstjórn
óskar eftir og er þakklát viðbrögðum lesenda við
þessum breytingum og gaumgæfir allar tillögur
til framfara.
Heimsóknum á heimasíðu Læknablaðsins
hefur fjölgað umtalsvert undanfarin ár, úr tæplega
35 þúsund árið 2003 í ríflega 105 þúsund árið
2006, þær hafa þannig þrefaldazt á fjórum árum.
Það sem af er árinu 2007 virðist enn um að ræða
verulega fjölgun. Vísindagreinar blaðsins urðu
aðgengilegar á vef National Library of Medicine
á útmánuðum árið 2005 og nú hefur allt fræðiefni
blaðsins allt frá árinu 2000 verið vistað þar. Þótt
að svo stöddu sé ekki tæknilega unnt að aðgreina
heimsóknir innan lands og utan, er óhætt að ætla
að MedLine eigi sinn þátt í fjölgun heimsóknanna.
Greinahöfundar verða í vaxandi mæli varir við al-
þjóðavæðingu Læknablaðsins, fyrst og fremst með
því að erlendir lesendur hafa við þá beint sam-
band. Vitað er um a.m.k. eitt vísindaverkefni með
erlendum aðilum, sem beinlínis er tilkomið vegna
aðgengis erlendra lesenda að Læknablaðinu.
Eins og áður hefur verið á minnzt hefur sitj-
andi ritstjórn eytt umtalsverðum tíma í að setja
fram vinnuramma blaðsins. Nú eiga hverjum
þeim sem sendir efni til blaðsins að vera ljósar
reglur um uppbyggingu, framsetningu og lengd
efnis í hverjum flokki. Ritstjórnin hefur sömuleiðis
skerpt á innri vinnureglum sínum og meðal ann-
ars skilgreint það efni sem Læknablaðið birtir eða
birtir ekki. Læknablaðið á að vera sá vettvangur
þar sem læknar geta reifað og, ef því er að skipta,
rifizt um mál er varða heilbrigðisþjónustu í víðum
skilningi. Óski læknar hins vegar að jafna hver um
annan á einstaklingsgrundvelli verða þeir að leita
til annarra miðla. Allar leiðbeiningar varðandi
innsent efni eru aðgengilegar lesendum blaðsins,
ýmist á prent- eða netútgáfu þess.
í þessu hefti er viðtal við Ara Jóhannesson,
lækni. Alþjóð veit, að þann 19. október sl. hlaut Ari
bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar,
sem veitt eru á samkeppnisgrundvelli fyrir ljóð,
áður óbirt, sem send eru inn undir nafnleynd. Um
það bii fjörutíu ljóðabálkar bárust. Ari og ljóð hans
eru enn eitt dæmi um samtvinnun og skyldleika
les beanx arts við læknisstarfið, en þessi tengsl eru
alda- eða árþúsundagömul og umfram það sem
tilviljun ein myndi valda. Læknablaðið óskar Ara
til hamingju.
Ráðningartíma núverandi ritstjórnar lýkur, með
einni undantekningu (Tómas Guðbjartsson), þann
30. nóvember nk. Einn ritnefndarmaður, Karl
Andersen, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
til áframhaldandi starfa. Karl hefur starfað lengst
allra ritnefndarmanna, eða í átta ár. Ritstjórn öll,
sérlega undirritaður, þakkar Karli samstarfið, ekki
sízt á tímum ritstjórnarumróts fyrir tveimur árum.
Hvort einhverjir núverandi ritnefndarmanna
munu sitja áfram, og þá hverjir, mun útgáfustjórn
blaðsins ákveða á næstu vikum.
LÆKNAblaðið 2007/93 741