Læknablaðið - 15.11.2007, Page 25
Ú R
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
PENNA STJÓRNARMANNA L
Lýðheilsa barna með
heilalömun (cerebral palsy)
Sigurveig
Pétursdóttir
sigurpet@landspitali. is
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Sigurður E. Sigurðsson,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó.
Haraldsdóttir,
ritari
Elínborg Bárðardóttir
Kristján G.
Guðmundsson
Sigurður Böðvarsson
Sigurdís Haraldsdóttir
Þórarinn Guðnason
I pistlunum Urpenna
stjórnarmanna Ll' birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
„Lýðheilsa snýr að því að viðhalda og bæta
heilsu, líðan og aðstæður þjóða og þjóðfélags-
hópa með almennri heilsuvernd, heilsueflingu
,heilbrigðisþjónustu og samfélagslegri ábyrgð.
Lýðheilsustarf byggist á víðtækri samvinnu og
þverfaglegri nálgun og snertir m.a. félagsmál.
Umhverfismál og efnahagsmál."
Framangreind málsgrein er tekin úr kynning-
arbæklingi Lýðheilsustöðvar. Orð þessi leiddu
hug mirtn að málefnum barna með heilalömun
auk margra annarra fatlaðra barna á íslandi.
Börn með heilalömun eru stærsti hópur fatl-
aðra barna með sömu greiningu. Hópurinn er
vissulega með breytileg vandamál, en í hann bæt-
ast árlega um 15 börn. Reikna má því með að til
hans teljist um 250 börn á hverjum tíma.
Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna og annarra með-
ferðaraðila kemur að þjónustu við þennan hóp,
í formi meðferðar, eftirlits og annarrar þjónustu.
Eins og málum er háttað á íslandi í dag er sam-
hæfing þessarar þjónustu á herðum foreldra og
forráðarmanna barnanna. Þau ein eru ábyrg fyrir
að barnið hljóti þá þjónustu sem það þarf og að
ekkert gleymist í frumskógi góðrar þjónustu sem
leynist í þjóðfélaginu.
Á Norðurlöndunum er víðast starfrækt
svokölluð Hæfing barna (Barnhabilitering) sem
fötluð börn eru innrituð í og sér sú stofnun um
skipulagt eftirlit og ýmis meðferðarúrræði. Þar
verða upplýsingar aðgengilegar öllum sem að
þjónustu við barnin koma og þverfagleg starfsemi
skilvirk. Ekki mæðir þar lengur á herðum for-
eldra að hafa allar klær úti til að missa ekki af
neinu.
Haustið 2004 var haldin ráðstefna um Þjónustu
við börn með heilalömun. Voru fengnir þekktir
fyrirlesarar frá Svíþjóð og Kanada og kynntu þeir
starfsemina í heimalöndum sínum þar sem búið
er að sýna fram á að skipulögð eftirfylgd og með-
ferð minnkar verulega fylgikvillum hjá börnum
með heilalömun. Það fyrirbyggjandi starf skilar
svo aftur því að ekki þarf eins dýrar úrlausnir
fyrir þessa einstaklinga og skilar því efnahagsleg-
um ávinningi. Sem sagt: þetta borgar sig!!
I kjölfar ráðstefnunnar var svo unnin skýrsla
sem gerði grein fyrir því sem fram fór þar auk
þess sem gerð var grein fyrir hvernig ástandið
væri á íslandi. Þar fara mörg börn að hluta á mis
við þjónustu sem þau þarfnast, auk þess sem afar
erfitt er að hafa samhæfða eftirfylgni og gæða-
eftirlit sem samræmist nútímaþjóðfélögum.
Skýrslan var síðan afhent þáverandi heilbrigð-
isráðherra á vordögum 2005. Nánast ekkert hefur
til hennar spurst síðan, fyrir utan að ein fyrir-
spurn barst frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi
hana skömmu fyrir kosningar.
Er miður að málefninu hafi ekki verið sýnd
meiri athygli af hálfu heilbrigðisráðuneytisins á
svo löngum tíma. Ekki síst þar sem þetta málefni
passar afar vel inni í það sem ofarlega hefur verði
á baugi, lýðheilsu þjóðfélagshóps og sparnað.
Betur má ef duga skal.
Læknadagar
2008
21.-25. janúar
á Hótel Sögu
LÆKNAblaðið 2007/93 757