Læknablaðið - 15.11.2007, Page 32
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
ALÞJÓÐAFÉLAG L Æ K N A
djt
Jón Snædal sver eið að hollustu sinni íforsetastóli Alþjóðafélags lækna. Formaður stjórnar félagsins, Bandaríkjamaðurinn Edward Hill, þylur eiðmn. Til hægn er
Nachiappan Arumugam læknir frá Malasíu en Jón tekur við forsetaembættinu afhonum.
Jón Snædal forseti Alþjóðafélags lækna
Tákn Alþjóðafélags lækna:
Societas mundi medica AD
MCMXLVII.
Dagana 3.-6. október sl. hélt Alþjóðafélag
lækna 58. aðalfund sinn á Marriott-hótelinu í
Kaupmannahöfn. Helstu tíðindi þaðan eru þau
að Jón Snædal tók formlega við embætti sem for-
seti samtakanna til eins árs, en á fundi félagsins
í Suður-Afríku síðastliðið haust var þetta afráðið
með kosningu fundarins og í hönd fór þarmeð
eins árs skeið sem fól í sér einskonar undirbún-
ing þessa. í sjónmáli eru því ævinlega fráfarandi,
núverandi og verðandi forseti og hefur hver sín
verkefni fyrir félagið. Næsti aðalfundur verður
haldinn í október 2008 í Seúl í Kóreu, og þar
mun ísraelinn Yoram Blachar sem er formaður
ísraelsku læknasamtakannan taka við af Jóni sem
forseti.
Hlutverk forseta er að koma fram fyrir hönd
samtakanna við ýmis tækifæri, sitja fundi og
halda erindi í nafni samtakanna. Hvert emb-
ætti er þó ævinlega litað af þeim skoðunum og
þeirri menntun sem viðkomandi embættismaður
hefur, þannig benti Jón sem er öldrunarlæknir
764 LÆKNAblaðið 2007/93