Læknablaðið - 15.11.2007, Page 36
UMRÆÐUR O G FRETTIR
KLEPPUR í 100 Á R
og fann auðvitað ýmislegt. Kleppur er nefndur
í ýmsum ævisögum og talsvert var fjallað um
hann í dagblöðum. Það lagði mér talsvert til
sjónarhorns sjúklinganna og samfélagsins sem
ég nefndi áðan. Auk þess lá ég að sjálfsögðu yfir
sjúkraskránum og las þær gaumglæfilega. Þar
fartn ég mikið af bréfum frá sjúklingum sem ekki
höfðu verið send heldur sett beint í möppuna.
Mörg þessara bréfa veita innsýn í hugarheim
sjúklinganna."
Óttar segir að ýmislegt hafi komið sér á óvart
við rannsókn á sögu Klepps en einnig hafi ýmsar
hugmyndir hans sjálfs um Klepp fengist staðfest-
ar við þessa rannsókn.
Illir andar og vatnsmeðferð
„Eitt það fyrsta sem maður rekur sig á er hversu
einráðir yfirlæknarnir hafa verið Þeir höfðu í
rauninni algerlega frjálsar hendur um hvaða
meðferð var stunduð á spítalanum og það þýddi
auðvitað líka að þeir réðu því hvaða meðferð var
ekki stunduð. Geðlækningar á íslandi stjórnuðust
fyrst og fremst af hugmyndafræði þeirra tveggja
einstaklinga sem réðu spítalanum fyrstu 50
árin sitt í hvoru lagi og saman um skeið, Þórðar
Sveinssonar og Helga Tómassonar. Þá tekur
Tómas Helgason við og hann hafði vissulega ráð-
andi stöðu en fleiri komu að stjórnun spítalans
í hans tíð svo hann er ekki eins einráður og fyr-
irrennarar hans óumdeilanlega voru. Það sem
kemur mér síðan verulega á óvart er innihald
lækninga Þórðar Sveinssonar. Hann var að mörgu
leyti mjög vel menntaður geðlæknir og stundaði
nám sitt við eitt fremsta geðsjúkrahús Evrópu á
þeim tíma, í Munchen, og lærir þar nútímageð-
lækningar eins og þær voru stundaðar í upphafi
20. aldar. Þegar hann kemur heim virðist hann
taka upp eigin stefnu að miklu leyti, með mik-
illi áherslu á vinnulækningar, að láta sjúklingana
stunda vinnu á spítalanum og var í því sambandi
með umfangsmikinn búrekstur á vegum spítalans
um langt skeið; hann hafði algeran ímugust á
lyfjum og notaði eiginlega engin af þeim lyfjum
sem þá voru til. Hann hafði hinsvegar tröllatrú á
vatnslækningum bæði innvortis og útvortis sem
fólust í því að annaðhvort að láta sjúklinginn
drekka heitt vatn eða sitja í heitu baði. Sumir voru
reyndar líka settir í kalda sturtu í lækningaskyni.
Stundum var sjúklingum ekki gefið neitt annað
en 55 gráðu heitt vatna að drekka í nokkrar vikur
og segja má að þetta hafi verið sveltimeðferð
fremur en vatnsmeðferð. Þessar vatnslækningar
Þórðar áttu sér ekki hliðstæðu annars staðar í
geðlækningum hans samtíma að því er ég best
veit heldur er þetta ævagömul læknisfræði sem
rekja má allt aftur til Hippókratesar."
Þórður Sveinsson var landsþekktur maður og
af honum hafa verið sagðar margar sögur. Hann
var þekktur fyrir andatrú sína, spiritisma, og lá
ekki á þeim áhuga sínum. „Það kemur greinilega
fram í ýmsum skrifum hans og blaðadeilum að
hann hefur látið spíritismann stjórna sér í geð-
lækningunum að talsvert miklu leyti. Hann trúði
því að geðsjúklingar væru haldnir illum öndum
sem þyrfti að reka út og hugmyndir hans um geð-
lækningar virðast mótast af þessum áhuga hans.
Hann notaði mikið orðið "besættelese" um ein-
kenni sjúklinga sinna eða þeir væru haldnir eins
og nú er sagt. Hann trúði því að alkóhólismi staf-
aði af ásókn óæðri vera á sjúklinginn og aðferðir
hans beindust að því að reka út illa anda og óæðri
verur með svelti og svitameðferð. Hann taldi að
með því að láta sjúklinginn svitna væri hann að
ráðast gegn rótum geðveikinnar því að geðsjúkl-
ingar gætu ekki svitnað. Vatnslækningar Þórðar
voru mjög umdeildar og reykvískir læknar lýstu
opinberlega andstöðu sinni við og Þórður átti í
ritdeilum við ýmsa sína um þessi mál."
Óttar segir að vissulega megi sjá ýmislegt já-
kvætt við lækningar Þórðar og sérstaklega hafi
áhersla hans á vinnuþáttöku sjúklinganna verið
af hinu góða. „Sumir líta eirtnig á óbeit hans á
lyfjum sem jákvæðan hlut. En hvað aðrar lækn-
ingar hans varðar þá verður að segjast að hann
var algerlega einn á báti með hugmyndir sínar
og í engum tengslum við það sem menn töldu að
væri réttast og best í geðlækningum þessa tíma."
Má álykta að geðlækningar á íslandi hefðu þróast
á annan veg efannar inaður en Þórður hefði verið við
stjórnvölinn á Kleppi?
„Ég efast ekki um það og ég lýsi þeirri skoðun
minni að danski læknirinn Schierbech sem hafði
mikinn áhuga á því að taka að sér stjórn geð-
spítala hér á landi hefði orðið frábær stjórnandi.
Hann var mikill vísindamaður og hafði mikinn
áhuga á rannsóknum og geðlækningum. Með
Helga Tómassyni, sem ráðinn var yfirlæknir
1930, hefst nýtt tímabil í sögu Klepps en Helgi
var grandvar og góður vísindamaður og kemur
með það allra nýjasta í geðlæknisfræðinni frá
Danmörku. í minningum Jónasar frá Hriflu, sem
var dómsmálaráðherra og átti hvað stærstan þátt
í að ráða Helga að Kleppsspítala, kemur fram að
Helgi hafi neitað að vinna undir stjórn Þórðar
Sveinssonar. Hann hafi talið það fyrir neðan sína
virðingu sem vísindamanns að vinna undir stjórn
manns sem tryði fyrst á fremst á vatn í meðhöndl-
un geðsjúkra. Þetta varð til þess að spítalanum
var skipt í Gamla og Nýja Klepp og Helgi varð
yfir- læknir yfir Nýja Kleppi og Þórður þeim
Gamla. Þetta hefur auðvitað verið mikil niðurlæg-
768 LÆKNAblaðið 2007/93