Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2007, Side 43

Læknablaðið - 15.11.2007, Side 43
UMRÆÐUR O G FRETTIR TILKYNNINGAR Félagsmenn LÍ athugið! Félagatal lækna á vefsíðu LÍ www.lis.is geymir upplýsingar um netföng, símanúmer, heimilis- föng og vinnustaði allra íslenskra lækna. Þessar upplýsingar eru notaðar reglulega til útsendinga á mikilvægum tilkynningum og fleiru sem varðar alla lækna. Árleg punktaúthlutun orlofsvefsins byggir á þeirri reglu að aðeins læknar búsettir á Islandi fái punkta og fer því eftir upplýsingum í félagatali. Auk þess er reglulega látið vita af laus- um orlofskostum í gegnum póstlista vefsins en sá byggir einnig á upplýsingum í félagatali. I núverandi félagatali vantar netföng um 520 félagsmanna og skv. endursendum tölvupóst- um virðast fjölmargir hafa röng netföng skráð. Viðkomandi eiga því á hættu að missa af mik- ilvægum tilkynningum hvort sem er frá skrif- stofu LÍ, sérgreinafélögum eða jafnvel kollegum sjálfum. Hér með er vakin athygli á mikilvægi þess að læknar uppfæri reglulega upplýsingar sínar á vefsíðunni. Félagsmenn geta gert það sjálfir á vefnum undir ,Persónustillingar'. Þetta er bæði auðvelt og fljótlegt í framkvæmd. Auk þess að breyta áðurnefndum upplýsingum geta félags- menn sjálfir vistað af sér mynd og skrifað ,curri- culum vitae'. Ritnefnd hehnasíðu Læknafélags íslands Undirritaðir læknar hafa óskað eftir birtingu þessarar tiikynningar. Hvað er CIME? CIME (Certified Independent Medical Examiner) er viðurkenning sem læknar með sérfræðivið- urkenningu í læknisfræði hljóta eftir að hafa lokið prófi bandarísku læknasamtakanna (AMA) í ör- orkumati. Sérfræðingar, sem teljast hafa nægilega reynslu í sinni sérgrein, að mati ABIME (nefnd á vegum bandarísku læknasamtakanna, American Board of Independent Medical Examiners) ljúka námskeiði og svo prófi í reglum AMA í læknisfræðilegu ör- orkumati (impairment evaluation) til að öðlast þessi réttindi. Námskeiðið fjallar um reglur og framkvæmd læknisfræðilegs örorkumats og er m.a. fjallað ítar- lega um orsakatengsl, sennilega afleiðingu, notk- un miskatafla og annað sem varða framkvæmd slíks örorkumats. Það sem á ensku er kallað impairment er mjög sambærilegt við það sem hér á landi er kallað læknisfræðileg örorka og í skaða- bótalögum er kallað miski. í Bandaríkjunum eru eingöngu þeir læknar, sem lokið hafa þessu námi, viðurkenndir af aðilum máls og dómstólum, til að framkvæma læknisfræðilegt mat á örorku vegna sjúkdóma og slysa. Réttindi þessi gilda í 5 ár eftir prófið, en síðan þarf að endurtaka prófið eða taka námskeið og fara eftir reglum um endurmenntun á þessum tíma, til að viðhalda réttindunum. Eftirtaldir íslenskir læknar hafa lokið CIME prófi. Guðmundur Björnsson endurhæfingarlæknir Guðni Arinbjarnar bæklunarskurðlæknir Magnús Páll Albertsson bæklunar- og handarskurðlæknir Ragnar Jónson bæklunarskurðlæknir Sigurður Thorlacius heila- og taugalæknir LÆKNAblaðið 2007/93 775

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.