Læknablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 43
UMRÆÐUR O G FRETTIR
TILKYNNINGAR
Félagsmenn LÍ
athugið!
Félagatal lækna á vefsíðu LÍ www.lis.is geymir
upplýsingar um netföng, símanúmer, heimilis-
föng og vinnustaði allra íslenskra lækna. Þessar
upplýsingar eru notaðar reglulega til útsendinga
á mikilvægum tilkynningum og fleiru sem varðar
alla lækna. Árleg punktaúthlutun orlofsvefsins
byggir á þeirri reglu að aðeins læknar búsettir á
Islandi fái punkta og fer því eftir upplýsingum í
félagatali. Auk þess er reglulega látið vita af laus-
um orlofskostum í gegnum póstlista vefsins en sá
byggir einnig á upplýsingum í félagatali.
I núverandi félagatali vantar netföng um 520
félagsmanna og skv. endursendum tölvupóst-
um virðast fjölmargir hafa röng netföng skráð.
Viðkomandi eiga því á hættu að missa af mik-
ilvægum tilkynningum hvort sem er frá skrif-
stofu LÍ, sérgreinafélögum eða jafnvel kollegum
sjálfum.
Hér með er vakin athygli á mikilvægi þess
að læknar uppfæri reglulega upplýsingar sínar
á vefsíðunni. Félagsmenn geta gert það sjálfir á
vefnum undir ,Persónustillingar'. Þetta er bæði
auðvelt og fljótlegt í framkvæmd. Auk þess að
breyta áðurnefndum upplýsingum geta félags-
menn sjálfir vistað af sér mynd og skrifað ,curri-
culum vitae'.
Ritnefnd hehnasíðu Læknafélags íslands
Undirritaðir læknar hafa óskað eftir birtingu þessarar tiikynningar.
Hvað er CIME?
CIME (Certified Independent Medical Examiner)
er viðurkenning sem læknar með sérfræðivið-
urkenningu í læknisfræði hljóta eftir að hafa lokið
prófi bandarísku læknasamtakanna (AMA) í ör-
orkumati.
Sérfræðingar, sem teljast hafa nægilega reynslu
í sinni sérgrein, að mati ABIME (nefnd á vegum
bandarísku læknasamtakanna, American Board of
Independent Medical Examiners) ljúka námskeiði
og svo prófi í reglum AMA í læknisfræðilegu ör-
orkumati (impairment evaluation) til að öðlast
þessi réttindi.
Námskeiðið fjallar um reglur og framkvæmd
læknisfræðilegs örorkumats og er m.a. fjallað ítar-
lega um orsakatengsl, sennilega afleiðingu, notk-
un miskatafla og annað sem varða framkvæmd
slíks örorkumats. Það sem á ensku er kallað
impairment er mjög sambærilegt við það sem hér
á landi er kallað læknisfræðileg örorka og í skaða-
bótalögum er kallað miski. í Bandaríkjunum eru
eingöngu þeir læknar, sem lokið hafa þessu námi,
viðurkenndir af aðilum máls og dómstólum, til að
framkvæma læknisfræðilegt mat á örorku vegna
sjúkdóma og slysa. Réttindi þessi gilda í 5 ár eftir
prófið, en síðan þarf að endurtaka prófið eða taka
námskeið og fara eftir reglum um endurmenntun
á þessum tíma, til að viðhalda réttindunum.
Eftirtaldir íslenskir læknar hafa lokið CIME prófi.
Guðmundur Björnsson endurhæfingarlæknir
Guðni Arinbjarnar bæklunarskurðlæknir
Magnús Páll Albertsson bæklunar-
og handarskurðlæknir
Ragnar Jónson bæklunarskurðlæknir
Sigurður Thorlacius heila- og taugalæknir
LÆKNAblaðið 2007/93 775