Læknablaðið - 15.11.2007, Qupperneq 44
UMRÆÐUR O G FRETTIR
ÆVISÖGUR LÆKNA
Ævisögur og endurminningar lækna
Ólafur Þ.
Jónsson
læknir
olibara@mi.is
Bragi
Þorgrímur
Ólafsson
sagnfræðingur
handritadeild
Landsbókasafnsins
Ævisögur og endurminningar eru vinsælt les-
efni hér á landi eins og kunnugt er. Frásagnir af
læknum eru allmargar í þeim flokki og kemur
þar væntanlega ýmislegt til. Margir læknar hafa
lifað viðburðaríku lífi, kynnst fjölda fólks og
aðstæðum þess, barist við alvarlega sjúkdóma
og slys, stundað vísindarannsóknir og átt þátt
í framförum á sviði læknisfræði og heilbrigð-
ismála. Margir hafa gegnt opinberum störfum
og embættum og sinnt margvíslegum félags- og
trúnaðarstörfum. Flestir hafa dvalist erlendis um
lengri eða skemmri tíma við nám og störf og farið
víða um lönd.
Hér á eftir er gerð samantekt á flestu því sem
vitað er um að hafa verið gefið út af þessu efni,
þó innan ákveðinna marka sem gert verður grein
fyrir. Ef til vill er þó eitthvað efni sem hér vantar.
Endurminningar, ævisögur og sjálfsævisögur
Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur hefur
rannsakað íslenskar ævisögur og endurminn-
ingarit í nýlegum ritum sínum. (Fortíðardraumar.
Sjálfsbókmenntir á íslandi, Háskólaútgáfan
2004 og Sjálfssögur. Minni, minningar og saga,
Háskólaútgáfan 2005) Hann kallar þennan efn-
isflokk sjálfsbókmenntir og skilgreinir þær á
eftirfarandi hátt: „Sjálfsævisögur þar sem höf-
undurinn er jafnframt aðalpersónan, endurminn-
ingarit þar sem höfundurinn er annar eða önnur
en aðalpersónan, samtalsbækur sem eru yfirleitt
samvinna tveggja með aðgreindum spurningum,
skáldævisögur þar sem höfundurinn telur sig
ekki þurfa að fylgja sannfræði ævi sinnar og loks
eru ævisögur þar sem aðalpersónan er fallin frá."
(Fréttablaðið 19. nóvember 2004).
Þá hefur Sigurður skipt sjálfsbókmenntum í
nokkra undirflokka: Pólitísk sjálfssögurit, rétt-
lætingarrit, áróðursrit, játningarit, uppgjörsrit,
lífsferilsrit, sagnarit, fortíðarglýjurit, verðmæta-
vörslurit, sjálfsdýrkunarrit, hnattvæðingarit, lífs-
reynslusögur, ferðasögur, óbirtar sjálfsævisögur
út frá þeim hvötum sem lágu skrifunum að baki.
Hann tekur jafnframt fram að slík afmörkun sé
eingöngu gerð til þess að auðvelda umfjöllun um
sjálfsbókmenntir. Önnur efnisafmörkun komi
einnig til greina sem þá væri byggð á nýjum for-
sendum. (Sjálfssögur, bls. 132-178).
Afmörkun
Þessi samantekt nær til ævisagna og endurminn-
inga íslenskra lækna frá upphafi og fram til loka
ársins 2006. Nokkur vandi var á höndum varð-
andi ramma þessarar samantektar, enda mikið
efni sem liggur til grundvallar. Ákveðið var því
að miða skrána við eftirtalin atriði:
• Bækur (Sjálfsævisögur/endurminningarit)
• Ævisögukafla sem birst hafa í safnritum
• Ævisögukafla sem birst hafa í tímaritum
á borð við Andvara og Skírni
Ekki var talið fært að taka hér með viðtöl eða
frásagnir sem birst hafa í blöðum eða tímaritum
(að Andvara og Skírni undanskildum) enda erf-
itt að finna allt slíkt efni og margt hefði vænt-
anlega orðið útundan. Þá ber að taka fram að
í þessari skrá er ekki að finna minningargrein-
ar eða afmælisrit um lækna sem hafa birst í
Læknablaðinu, enda er það efni aðgengilegt.
Nokkrar undantekningar eru þó gerðar á þessum
meginreglum.
Efniviður
í lok fyrrnefndrar bókar Sigurðar Gylfa, Fortíðar-
draumar, er viðauki eftir Moniku Magnúsdóttur
bókasafnsfræðing þar sem er að finna skrá um
bókmenntir eftir fyrrnefndri flokkun frá upphafi
slíkrar útgáfu hér á landi fram til ársins 2004. Skrá
hennar nær yfir útgefin rit í bókarformi og aðeins
fyrstu útgáfu þeirra. Eru þar alls talin 1089 rit og
voru læknar þar 3% höfunda sjálfsævisagna og
endurminningarita. Hér á eftir er talsvert stuðst
við skrá Moniku, en einnig var bætt við end-
urminningum og ævisögum lækna sem birst hafa
sem sjálfstæðir bókarkaflar í ýmsum æviminn-
ingaritum og sem greinar í nokkrum tímaritum
eins og áður sagði. í þessum tilgangi var leitað
fanga í Gegni, bókasafnskerfi Landsbókasafns
íslands - Háskólabókasafns, Læknablaðinu, ritinu
Læknar á íslandi, tímaritunum Læknanemanum,
Andvara, og Skírni, í bókaflokknum Merkir
íslendingar og nokkrum fleiri ritum.
Uppbygging
I þeirri skrá sem hér fer á eftir var til hagræðis
fyrir lesendur ákveðið að hafa nöfn læknanna í
stafrófsröð en ekki höfunda ritanna ef þeir voru
aðrir en læknar. I skránni eru tekin með almenn
bókfræðileg atriði. Flest rit þau sem hér eru talin
eru gefin út í Reykjavík og þá er ekki getið um
útgáfustað þeirra, en séu þau gefin út annars
staðar er þess getið. Þá er heiti sjálfstæðra kafla í
safnritum ekki tilgreint sérstaklega.
776 LÆKNAblaðið 2007/93