Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2008, Side 11

Læknablaðið - 15.07.2008, Side 11
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKNIR Sigurður Árnason1 læknir Valtýr Stefánsson Thors25 læknir Þórólfur Guðnason2’3 bamalæknir Karl G. Kristinsson1’4 sérfræðingur I sýklafræði Ásgeir Haraldsson12 barnalæknir Lykilorð: blóðsýkingar, Streptococcus pneumoniae, pneumókokkar, sýklalyfjanæmi, Neisseria meningitidis, meningókokkar. ^Læknadeild HÍ, 2Barnaspítala Hringsins, Landspítala, 3Landlæknisembættið, 4Sýklafræðideild, Landspítala, 5Wilhelmina kinderziekenhuis, Utrecht, Hollandi Fyrirspurnir og bréfaskriftir: Ásgeir Haraldsson, Barnaspítala Hringsins, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. asgeir@landspitali. is Blóðsýkingar barna á íslandi 1994-2005 Ágrip Inngangur: Blóðsýkingar barna af völdum bakt- ería geta verið alvarlegar. Skjót greining og viðeig- andi meðferð geta skipt sköpum. Mikilvægt er að vita hvaða bakteríur eru algengastar hjá börnum á mismunandi aldri auk þess að þekkja sýkla- lyfjanæmi þeirra svo unnt sé að beita markvissri meðferð eða forvörnum. Markmið: Að draga fram helstu þætti í faralds- fræði blóðsýkinga barna á íslandi á tímabilinu 20. september 1994-16. mars 2005. Efniviður og aðferðir: Allar jákvæðar niður- stöður blóðræktana hjá bömum 0-18 ára skráðar á Sýklafræðideild Landspítalans á rannsóknar- tímabilinu voru skoðaðar. Skráður var aldur og kyn sjúklings, tegund bakteríu sem ræktaðist, dagsetning sýnatöku og niðurstöður næmisprófa. Bömin voru flokkuð í fjóra aldurshópa; nýburar (<30 daga), ungbörn (30 daga-1 árs), börn á leik- skólaaldri (1-6 ára) og börn á skólaaldri (6-18 ára). Niðurstöður blóðræktana voru flokkaðar sem mengun, líkleg mengun, líkleg sýking eða sýking. Niðurstöður: Alls ræktuðust bakteríur í 1253 sýnum frá 974 börnum á tímabilinu, 647 sýni frá drengjum og 606 frá stúlkum. Flestar jákvæðar ræktanir voru hjá bömum á fyrsta aldursári (594; 47,4%) og þar af voru 252 hjá nýburum (42,4% barna á fyrsta aldursári). Kóagúlasaneikvæðir stafýlókokkar ræktuðust í 465 tilfellum. Af þeim ræktunum sem flokkuðust sem sýkingar voru Streptococcus pneumoniae algengastar (103 tilfelli), Staphylococcus aureus (94 tilfelli) og Neisseria men- ingitidis (72 tilfelli). Ekki ræktaðist N. meningitidis af hjúpgerð C hjá neinu barni eftir að bólusetn- ing barna hófst árið 2002. Algengustu hjúpgerðir pneumókokka hjá börnum á íslandi voru 23, 6B, 7, 19 og 14. Ónæmi fyrir makrólíðum var hátt hjá pneumókokkum (19%) og streptókokkum af flokki A (33%). Alyktun: Niðurstöðurnar gefa mikilvægar upp- lýsingar fyrir meðhöndlun barna með alvarlegar sýkingar og fyrirbyggjandi aðgerðir. Vaxandi ónæmi fyrir makrólíðum hindrar notkun þeirra við blinda meðferð hjá börnum með sýklasótt. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna frábæran ár- angur bólusetningar bama gegn meningókokkum C auk þess sem þær gefa vísbendingu um mögu- lega gagnsemi af bólusetningum gegn ákveðnum hjúpgerðum pneumókokka. ■^■■■ENGLISH SUMMARY^HH Árnason S, Thors VS, Guðnason Þ, Kristinsson KG, Haraldsson Á Bacteraemia in children in lceland 1994-2005 Objective: Positive blood cultures from children suggest serious bloodstream infections. Quick medical response with targeted therapy is important, taking the child’s age and medical history into account. Antibiotic therapy and vaccination programs must be based on accurate knowledge of the prevalence and antibiotic susceptibility of the bacteria. The aim of this study was to investigate epidemiological parameters associated with positive blood cultures in children in lceland from September 20th 1994 to March 16th 2005. Materials and methods: All positive bacterial blood cultures from children 0-18 years of age identified at the Department of Clinical Microbiology of the Landspitali University Hospital during the study period. Age and sex of the children, bacterial aetiology, date of collection and results of antimicrobial susceptibility tests were registered. The children were divided into four age groups: neonates (<30 days of age), infants (30 days to one year), preschool age (1 -6y) and school age (6-18y). The blood cultures were classified as definite contamination, probable contamination, probable infection and definite infection. Results: During the study period 1253 positive blood cultures were obtained from 974 children; 647 from boys and 606 from girls. Most of the blood cultures were from children less than one year old (594; 47.4%) of which 252 were neonates (42.4% of all children <1y of age). Coagulase negative staphylococci were the most commonly isolated organisms (37%). Of positive blood cultures considered definite infections Streptococcus pneumoniae was the most common (21.7%) followed by Staphylococcus aureus (19.8%) and Neisseria meningitidis (15.2%). N. meningitidis C was not isolated in children after a meningococcal C vaccination was launched in 2002. The most common pneumococcal serotypes/serogroups were 23, 6B, 7, 19 and 14. Macrolide resistance was common in pneumococci (19%) and group A haemolytic streptococci (33%). Conclusion: The results provide important information for empirical antibiotioal therapy and prophylactic measures such as vaccination. Increasing macrolide resistance limits their usefulness as empiric antibiotics in septic children. The results demonstrate the excellent efficacy of meningococcal C vaccination. Furthermore the results help in predicting the efficacy of pneumococcal vaccination of lcelandic children. Key words: blood cultures, bacteraemia, sepsis, Streptococcus pneumoniae, antiobiotic sensitivity, Neisseria meningitidis, meningococcus. Correspondence: Ásgeir Haraldsson, asgeiri&landspitali.is LÆKNAblaðið 2008/94 523

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.