Læknablaðið - 15.07.2008, Qupperneq 41
Ú R
P
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
ENNA STJÓRNARMANNA L
Hvað um börnin
okkar í umferðinni?
Sigurveig
Pétursdóttir
sigurpet@landspitali.is
Sigurveig er
bæklunarskurðlæknir og
gjaldkeri LÍ.
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Sigurður E. Sigurðsson,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
rítari
Elínborg Bárðardóttir
Kristján G. Guðmundsson
Ragnar Freyr Ingvarsson
Sigurður Böðvarsson
Þórarinn Guðnason
í pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna U birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Öryggi og velferð barna í samfélagi okkar eru
mikilvæg. Leiðir það huga minn að tvenns konar
aðstæðum barna í umferðinni. Þegar 17 ára gömul
börn hafa ökuréttindi og öryggi bama í bíl sem er
á ábyrgð ökumanns.
Það má teljast nokkuð undarlegt í velferð-
arþjóðfélaginu á íslandi að okkur hafi yfirsést það
að hér aka börn um á bílum og bera ábyrgð á lífi
og limum fjölda manns. Þau eru hvorki lögráða né
fjárráða. Ef grunur er um að barnið sem ökumaður
hafi brotið lög gilda aðrar reglur um yfirheyrslur
en á ökumönnum sem fullorðnir eru. Þau geta
ekki borið fjárhagslega ábyrgð á skemmdum eigna
við árekstur eða önnur umferðaróhöpp þar sem
þau eru ekki fjárráða og eru ennþá á ábyrgð for-
eldra sinna.
í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur:
„í samningi þessum merkir barn hvern þann
einstakling sem ekki hefur náð átján ára aldri,
nema hann nái fyrr lögræðisaldri samkvæmt
lögum þeim sem hann lýtur."
Það fer ekki hjá því að maður velti vöngum yfir
þessari þverstæðu. Samkvæmt sáttmálanum er
mikilvægt að vemda öryggi barna og rétt þeirra.
Með því að veita þeim réttinn til að taka bílpróf
og aka um á hvaða fólksbifreið sem er, erum við
að útsetja þau fyrir mikilli hættu og einnig láta
þau axla ábyrgð á lifi og limum annarra. Er rökrétt
að meðhöndla bömin okkar á þennan hátt? Við
læknar sem hittum þessi börn eftir að alvarleg slys
hafa orðið vitum vel að þau em ekki í stakk búin til
að taka þessa ábyrgð. Þau em ennþá börn og leggj-
ast því inn á barnadeild ef þau þurfa að leggjast
inn á sjúkrahús. Margir segja að enginn geti axlað
slíka ábyrgð og má vera að það sé sannleikurinn.
Engar takmarkanir eru á hve stómm og öflugum
fólksbíl barnið má aka. Ljóst er þó að merkilegt má
þykja að siðmenntuð þjóð með háleitar hugsjónir
útsetji börnin sín fyrir þetta, en leyfi þeim ekki að
njóta áhyggjulausrar æsku sinnar.
Öryggi barna í bíl hefur verið mér hugstætt
síðan ég flutti frá Svíþjóð fyrir tæpum sex árum til
íslands. íslendingar láta ungbörn snúa baki í akst-
ursstefnuna uns þau eru á bilinu 10-13 kg, eftir það
ferðast flest þeirra með andlit í akstursstefnu. Hér
er talsverður munur á því sem almennt tíðkast í
Svíþjóð. Þar er eindregið mælt með því að böm
snúi baki í akstursstefnu til minnst fjögurra ára
aldurs. Þetta er gert þar sem helmingi minni líkur
eru á dauðsfalli í umferðarslysi ef þau ferðast á
þann hátt. Þetta virðist ekki almennt þekkt hér-
lendis.
Einnig virðist kunnáttu margra foreldra um
hversu lengi börnin eiga að sitja á sessu í bíl vera
áfátt. Flestum virðist ljóst að nauðsyn er að nota
hana á leikskólaaldri eftir að barn er vaxið upp úr
bílstól, en færri virðast vita að nauðsyn er að nota
hana þangað til barnið er að minnsta kosti 36 kg.
Fyrr er mjaðmagrind barna ekki nægilega stór til
að öryggisbelti sitji rétt.
Auðvelt ætti að vera að bæta úr þessu og
auka öryggi barnanna. Til dæmis væri hægt þar
sem börn em viktuð reglubundið, svo sem á
heilsugæslu, í leikskólum og skólum, að veita
upplýsingar um hvaða gerð öryggisbúnaðar hent-
aði þeim miðað við þyngd, í hvert skipti sem þau
væru viktuð. Þyrftu þá foreldrar ekki að leita upp-
lýsinga um hvað hæfði börnum þeirra á hverjum
tíma heldur kæmu upplýsingarnar til þeirra.
Ég skora hér með á þá aðila sem standa að
þessum málum, heilsugæslu, leikskóla, skóla og
Umferðarstofu, að koma þessu í framkvæmd sem
allra fyrst.
Mynd mánaðarins - myndatextinn
Kallað var eftir leiðréttingum á myndatexta við mynd mánaðarins sem birtist í júníblaðinu síðastliðinn, á bls. 491.
Þrjár leiðréttingar bárust: staðfest hefur verið að lengst til hægri á myndinni er Kjartan J. Jóhannsson, alþingismaður
og læknir á ísafirði, síðar héraðslæknir £ Kópavogi.
Hallgrímur Magnússon læknir á Landakoti sendi inn eftirfarandi: „Varðandi myndina af læknanemunum í
verklegri efnafræði sem birtist í Læknablaðinu þá get ég með öruggum hætti staðsett báðar konurnar. Sú sem er í öft-
ustu röð og Trausti Ólafsson skyggir á að hálfu leyti er Gerður Bjarnhéðinsdóttir en í fremstu röð til hægri er María
Hallgrímsdóttir. Ég veit þetta vegna þess að María var móðursystir mín."
Bjöm Blöndal á heilsugæslustöðinni í Árbæ sendi blaðinu þessa athugasemd: „Vegna fyrirspurnar í Læknablaðinu
í sambandi við fyrstu mynd mánaðarins varðandi nöfn lækna. Annar frá vinstri á myndinni er Þorvaldur Blöndal
afabróðir minn. Hann lést í Danmörku úr berklum árið 1934."
LÆKNAblaðið 2008/94 553