Læknablaðið - 15.07.2008, Síða 42
UMRÆÐUR 0 G FRETTIR
F I G O
Hægt að leysa
vandann með 10,2
milljörðum dollara
Talið er að kynbundnar fóstureyðingar séu framkvæmdar á einnar mínútu fresti
árið um kring. Um eitt hundrað milljónir stúlkna hafa aldrei fæðst í heiminn
vegna þessa á undanförnum árum og hlutfall fjölda pilta og stúlkna í þeim lönd-
um þar sem kynbundnar fóstureyðingar eru stundaðar hefur raskast verulega.
„Þetta segir líka meira en margt annað um viðhorf þessara samfélaga til kvenna
almennt," sagði Dorothy Shaw, forseti Figo, Alþjóðasamtaka fæðingar- og kven-
sjúkdómalækna, í samtali við blaðamann Læknablaðsins á dögunum. Dorothy
Shaw var stödd hér landi í tilefni af norrænu þingi fæðingar- og kvensjúkdóma-
lækna NFOG sem haldið var í Reykjavík dagana 14.-17. júní.
Hávar
Sigurjónsson
Figo, sem er skammstöfun fyrir International
Federation of Gynecology and Obstetrics, var
stofnað árið 1954 og nú eru aðildarfélög 105 í
jafnmörgum löndum. Dorothy Shaw er fyrsta
konan sem gegnir embætti forseta samtakanna
en eðli máls samkvæmt eru málefni kvenna, fæð-
ingarhjálp og kynheilsa, meðal mikilvægustu
baráttumála samtakanna. „Sagan sýnir okkur að
karlmenn hafa verið í meirihluta í læknastétt til
skamms tíma en það er að breytast og konur eru
að ná jöfnu víðast hvar og sums staðar eru þær
orðnar fleiri. Það hefur þó ekki skilað sér í jöfnum
hlut kvenna í stjórnunarstöðum til þessa en á von-
andi eftir að breytast," segir Dorothy.
„Markmið samtakanna er tvíþætt. Annars vegar
að stuðla að aukinni menntun lækna í þessum
greinum og hins vegar að stuðla að bættri heilsu
kvenna um heim allan. Unnið er að fyrra mark-
miðinu með því að Figo stendur að ráðstefnum á
þriggja ára fresti og með því að gefa reglulega út
klínískar leiðbeiningar samkvæmt því nýjasta og
besta sem til er í greininni. Samtökin halda einnig
úti öflugri heimasíðu (www.figo.org) og gefa út
fréttabréf mánaðarlega."
A vegum samtakanna eru starfræktar nefndir
um ákveðna þætti kvensjúkdóma- og fæðing-
arlækninga. „Ein nefndin fjallar um fistúlur, önnur
um kvensjúkdóma og sérstaklega krabbamein í
æxlunarfærum kvenna en starf þeirrar nefndar
hvílir á gömlum merg og Figo er líklega þekktast
fyrir starf hennar. Nefnd um siðfræði er einnig vel
þekkt og nefnd um rétt kvenna til ákvörðunar um
þungun og fæðingar. Þá eru starfshópar sem ég
hef áhuga á að efla meðan ég gegni forsetaembætt-
inu, en þeir eru annars vegar um fæðingarheilsu
kvenna og ungbarna og óöruggar fóstureyðingar.
Annar starfshópur einbeitir sér að vörnum gegn
leghálskrabbameini og sá þriðji að hindrun út-
breiðslu HlV-smits."
Ein af sex konum deyr vegna barnsburðar
Dorothy segir að mikilvægur hluti af starfi Figo á
næstu misserum sé að styðja við starf landsfélaga
fæðingar- og kvensjúkdómalækna í þróunarlönd-
unum þar sem skipulag félaganna og fjárráð til
umsýslu eru lítil eða engin. Hún segir að ráðinn
hafi verið sérstakur starfsmaður á aðalskrifstofu
samtakanna sem sinni þessu málefni, menntaður
kvensjúkdómalæknir sem hafi þekkingu á aðstæð-
um í þeim löndum sem um ræðir.
„Starf Figo er mjög fjölbreytt og eitt af því sem
við höfum lagt áherslu á er að vekja athygli á
hversu hátt hlutfall kvenna í þróimarlöndunum
LÆKNAblaðið 2008/94