Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2008, Side 51

Læknablaðið - 15.07.2008, Side 51
UMRÆÐUR 0 G F R É T T 1 R ÞÚSUND ÞJALA S M 1 Ð U R Konstantín með hjólfiðluna góðu sem hann smíðaöi. leikhúsið mjög nálægt tónlistinni enda hefð fyrir því að alþýðulistamenn í Rússlandi leiki og syngi jöfnum höndum." Aðspurður hvort eiginkonan hafi teymt hann útí þetta segir hann svo ekki vera enda er hún líffræðingur. „Áhuginn kviknaði hjá okkur báðum og hefur farið vaxandi. Við köllum okkur Gangandi brúðuleikhúsið og það fer þannig fram að María fer í sérstakan búning sem felur hana og hún stjórnar brúðunum og ég leik á hljóðfærið og tala við brúðumar. Þetta er samkvæmt mjög gamalli rússneskri hefð. Aðalbrúðan er kölluð Petrúska og er vel þekkt persóna í rússnesku brúðuleikhúsi. Sögurnar sem við leikum höfum við hins vegar samið sjálf þó Petrúska sé alltaf sjálfum sér líkur. Upphaflega varð þetta til þegar ég var beðirtn um að koma fram á Glastonbury tónlistarhátíð- inni í Bretlandi og langaði að gera eitthvað nýtt. Þá fengum við María þessa hugmynd að brúðu- leikhúsi og síðan hefur þetta undið upp á sig og við höfum sýnt víða, bæði hér heima og erlendis. Eftirspumin er reyndar orðin slík eftir sýningum að við ætluðum að takmarka þær við fjórar á ári til að hafa tíma til að sinna vinnu okkar og öðrum áhugamálum. En á þessu ári em sýningarnar þegar orðnar tíu enda erfitt að segja nei við fólk." mekanisma og lírukassi en sá er þó munurinn að lírukassinn leikur ávallt sama lagið en á hjólfiðl- una er hægt að spila það sem hugurinn girnist. „Það er nú reyndar fullmikið sagt að ég hafi smíð- að þetta hljóðfæri, réttara væri að segja að ég hafi sett það saman því ég keypti efnið tilsniðið. Það tók mig reyndar heilt ár að koma þessu saman enda tíminn ekki alltaf mikill. En þetta tókst að lokum og er mjög skemmtilegt hljóðfæri." Konstantin segir tónlistaráhugann hafa fylgt sér frá barnæsku og hann hafi snemma hneigst að hljóðfæraleik. „Ég var síðan svo heppinn í menntaskóla að syngja í litlum þjóðlagakór og á sumrin ferðuðumst við um sveitir Rússlands og lærðum þjóðlög af gamla fólkinu. Það var óskap- lega skemmtilegt og lærdómsríkt og þar kviknaði áhugi minn á alþýðutónlist og hljóðfærunum sem fólkið notar til undirleiks. Rússnesk alþýðu- tónlist er reyndar mikið sungin en þó eru alltaf einhver strengjahljóðfæri með, þekktast þeirra er balalækan, en einnig er leikið á fiðlur og tréblást- urshljóðfæri." Áhugi þeirra hjóna á rússnesku brúðuleikhúsi kviknaði að sögn Konstantíns fyrir tiltölulega skömmu síðan og sjálfur segist hann ekki hafa haft neina þekkingu á því fyrr. „Við María erum samferða í þeirri ferð og reyndar liggur brúðu- LÆKNAblaðið 2008/94 563

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.