Læknablaðið - 15.07.2008, Page 51
UMRÆÐUR 0 G F R É T T 1 R
ÞÚSUND ÞJALA S M 1 Ð U R
Konstantín með hjólfiðluna góðu sem hann smíðaöi.
leikhúsið mjög nálægt tónlistinni enda hefð fyrir
því að alþýðulistamenn í Rússlandi leiki og syngi
jöfnum höndum." Aðspurður hvort eiginkonan
hafi teymt hann útí þetta segir hann svo ekki vera
enda er hún líffræðingur. „Áhuginn kviknaði hjá
okkur báðum og hefur farið vaxandi.
Við köllum okkur Gangandi brúðuleikhúsið
og það fer þannig fram að María fer í sérstakan
búning sem felur hana og hún stjórnar brúðunum
og ég leik á hljóðfærið og tala við brúðumar.
Þetta er samkvæmt mjög gamalli rússneskri hefð.
Aðalbrúðan er kölluð Petrúska og er vel þekkt
persóna í rússnesku brúðuleikhúsi. Sögurnar sem
við leikum höfum við hins vegar samið sjálf þó
Petrúska sé alltaf sjálfum sér líkur.
Upphaflega varð þetta til þegar ég var beðirtn
um að koma fram á Glastonbury tónlistarhátíð-
inni í Bretlandi og langaði að gera eitthvað nýtt.
Þá fengum við María þessa hugmynd að brúðu-
leikhúsi og síðan hefur þetta undið upp á sig og
við höfum sýnt víða, bæði hér heima og erlendis.
Eftirspumin er reyndar orðin slík eftir sýningum
að við ætluðum að takmarka þær við fjórar á ári
til að hafa tíma til að sinna vinnu okkar og öðrum
áhugamálum. En á þessu ári em sýningarnar
þegar orðnar tíu enda erfitt að segja nei við fólk."
mekanisma og lírukassi en sá er þó munurinn að
lírukassinn leikur ávallt sama lagið en á hjólfiðl-
una er hægt að spila það sem hugurinn girnist.
„Það er nú reyndar fullmikið sagt að ég hafi smíð-
að þetta hljóðfæri, réttara væri að segja að ég hafi
sett það saman því ég keypti efnið tilsniðið. Það
tók mig reyndar heilt ár að koma þessu saman
enda tíminn ekki alltaf mikill. En þetta tókst að
lokum og er mjög skemmtilegt hljóðfæri."
Konstantin segir tónlistaráhugann hafa fylgt
sér frá barnæsku og hann hafi snemma hneigst
að hljóðfæraleik. „Ég var síðan svo heppinn í
menntaskóla að syngja í litlum þjóðlagakór og á
sumrin ferðuðumst við um sveitir Rússlands og
lærðum þjóðlög af gamla fólkinu. Það var óskap-
lega skemmtilegt og lærdómsríkt og þar kviknaði
áhugi minn á alþýðutónlist og hljóðfærunum
sem fólkið notar til undirleiks. Rússnesk alþýðu-
tónlist er reyndar mikið sungin en þó eru alltaf
einhver strengjahljóðfæri með, þekktast þeirra er
balalækan, en einnig er leikið á fiðlur og tréblást-
urshljóðfæri."
Áhugi þeirra hjóna á rússnesku brúðuleikhúsi
kviknaði að sögn Konstantíns fyrir tiltölulega
skömmu síðan og sjálfur segist hann ekki hafa
haft neina þekkingu á því fyrr. „Við María erum
samferða í þeirri ferð og reyndar liggur brúðu-
LÆKNAblaðið 2008/94 563