Læknablaðið - 15.07.2008, Page 53
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
AÐSEND GREIN
Friðrik E.
Yngvason
yfirlæknir á lyflækningadeild
á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Af Sögu kúgun
Sigurðar E. Sigurðsson, varaformaður LI, tekur
til vama sem slíkur fyrir Sögukerfið í síð-
asta Læknablaði. Hann hefur verið aðalverjandi
Sögunnar á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem
við störfum báðir. Hann er staðgengill lækninga-
forstjóra og hefur vísað allri gagnrýni á bug með
sömu alhæfingum og hann varar við í grein sinni.
Þau orð sem hann þá fellir eru fjarri annars kurt-
eislegum texta greinarinnar.
Tölvukerfin em nokkur og illa saman tengd og
aðgangsstýringar yfirþyrmandi. Sögukerfið er þó
miðpunktur þessara mála og það eitt og sér alger
plága þeim sem þurfa að vinna við það. Ég efast
um að SES þurfi að verja fjórðungi þess tíma sem
ég neyðist til að stagla við Sögukerfið. Því meir
sem unnið er við kerfið því stærri er plágan. Sagan
er skelfilegt verkfæri sem hefur gert vinnuum-
hverfi mitt illþolandi.
Nefnum dæmi:
1. Ónothæft lyfjakort. Slík kort eru nauðsynleg
til þess að reka nútíma lyflækningar. Það þarf að
vera hægt að skammta í lyfjabox eftir kortinu og
hægt að uppfæra það við hverja endurkomu.
2. Póstkassi þar sem öllu ægir saman. Engin
ruslpóstvörn!! Tilvísanir sem til mín eru sendar,
verður að prenta út svo hægt sé að vinna með þær,
og prentunin þar með komin frá beiðandanum
til mín!! Því næst þarf að skanna tilvísunina inn
í Söguna aftur og af því Sagan kann ekki spít-
alavinnu, er búin til samskiptalína með dagsetn-
ingunni 01.01.3000 sem í safnast rafrænn haugur
innhaldandi allt mögulegt efni sem kemur aðsent
í pappír eða úr póstkassanum. Niðurlæging
Sögunnar er í þessum kafla algjör.
3. Frágangur og sending af vinnulista, einkum
þó læknabréfa, er með slíkum ósköpum að varla
er hægt að skýra út, nema SES taki það kannski að
sér. Það þarf tugi aðgerða með mús og innslætti
fyrir hvert bréf!
Ég get nefnt fjölmörg önnur atriði. Hef sent
um þau bréf til þeirra sem ráða, en umbætur hafa
verið míkróskópískar.
Endurbætur sem ráðist hefur verið í er fyrst og
fremst að finna í þeim hluta Sögunnar sem heldur
utan um uppgjör og greiðslur. Þar sveið undan hjá
stjórnendum en vinnutæki lækna, sjúkraskýrslan
mátti halda áfram að vera í lakasta sessi.
Er hægt að láta menn vinna árum saman með
ónýt verkfæri án þes að vörnum sé við komið?
Má vinnuumhverfi vera skelfilegt og starfs-
mannastefna í tætlum? Það virðist ekki vera nein
vöm í varaformanni LI enda þjónar hann fleiri
en einum herra í þessu máli. Hann hlær að vand-
ræðum sinna félaga og hvetur menn til að una
Sögukúguninni nokkur ár enn. Kannski tíu.
Þarfir íslenskra lækna eru sömu og erlendra
þegar um sjúkraskýrslukerfi er að ræða. Við
eigum að fá þrautreynd slík erlend kerfi. Til er við-
skiptahugbúnaður sem getur séð um séríslenskar
greiðsluleiðir. Hættan er mikil að ný Saga-
Framhaldssaga verði fyrst og fremst til að tryggja
hagsmuni stjórnvalda og baunateljara í kerfinu en
öflugt sjúkraskrárkerfi verði látið víkja fyrir þeim
hagsmunum.
Ætlar LÍ enn að horfa þegjandi á þegar klafi
vondra verkfæra er lagður á félagsmenn þeirra í
heilbrigðiskerfinu?
Heimilislæknaþingið 2008
Grand Hótel Reykjavík, 17.-19. október
Félag íslenskra heimilislækna fagnar áfram 30 ára sögu sinni, næst með veglegri afmælisdagskrá á Grand Hótel Reykjavík. Fluttir verða fyrirlestrar
með fræðilegu og sögulegu ívafi. Haldnir verða umræðufundir um sjálfstæðan rekstur í heilsugæslunni og um mönnunaráform í heilsugæslu í
nánustu framtíð. Gestafyrirlesari þingsins er Niels Bentzen, prófessor í Kaupmannahöfn.
Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir og rannsóknaráætlanir, þróunarverkefni og nýjar hugmyndir í heimilislækningum í formi frjálsra
erindaog veggsþjalda. Þeirsem hafa áhuga á slíkri kynningu skulu senda ágriptil Jóhanns Ág. Sigurðssonar í rafrænu formi á póstfana: iohsig@hi.is
Ágrip skal skrifa á A-4 blað með sama sniði og á fyrri þingum félagsins. Þar skal koma fram tilgangur verkefnisins og þar sem það á við, efniviður og
aðferðir, niðurstöður og ályktanir. Skilafrestur ágripa er fyrir 1. september næstkomandi. Ágrip verða birt í sérstöku ráðstefnuriti þingsins.
Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verður auglýst síðar.
Fh. Undirbúningsnefndar
Anna Margrét Guðmundsdóttir, form.
LÆKNAblaðið 2008/94 565