Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
tveir. Fyrir ósamfelldar breytur var notast við kí-
kvaðrat próf.
Rannsóknin fór fram með leyfi sviðsstjóra
kvennasviðs Landspítala, Vísindasiðanefndar
(leyfi 06-076) og Persónuverndar (leyfi 2006/379).
Niðurstöður
Á rannsóknartímabilinu voru alls 925 konur sem
fæddu bam eftir fyrri fæðingu með keisaraskurði
og uppfylltu skilyrði rannsóknarinnar. Þar af
fæddu 346 konur (37%) um leggöng, 341 kona
(37%) með fyrirfram ákveðnum keisaraskurði
(valaðgerð) og 238 konur (26%) með bráðakeisara-
skurði (mynd 1). Hlutfall fæðinga um leggöng af
öllum fæðingum eftir einn fyrri keisaraskurð jókst
marktækt á tímabilinu (p=0,03) (mynd 2).
Alls reyndu 61% kvennanna fæðingu um leg-
göng. Af þeim tókst fæðing hjá 61% en 39% fæddu
með bráðakeisaraskurði (mynd 3). Upplýsingar
um hvort leggangafæðing var reynd eða ekki voru
ekki fullnægjandi fyrir 2% kvennanna.
Bomar vom saman þær konur sem fæddu
fyrsta barn með valkeisaraskurði, 22% kvennanna
(n=201), og þær sem fæddu fyrsta barn með bráða-
keisaraskurði, 78% (n=724), með tilliti til bráðleika
aðgerðar í fyrri fæðingu og fæðingarmáta í seinni
fæðingu. Ekki reyndust marktæk tengsl milli bráð-
leika fyrri keisaraskurðar og fæðingarmáta í seinni
fæðingu (p=0,37). Bráðleiki fyrri keisaraskurðar
reyndist einnig hvorki tengjast hlutfalli kvenna
sem gerði tilraun til leggangafæðingar (p=0,28) né
hlutfalli þeirra sem tókst sú tilraun (p=0,l) (tafla
I).
Tímalengd milli fæðinga reyndist ekki hafa
áhrif á hvort kona gerði tilraun til fæðingar og
hvort sú tilraun tókst. Meðgöngulengd hjá konum
sem fóru í valkeisaraskurð var að meðaltali 275
dagar (39 vikur og 2 dagar) en hjá konum sem
reyndu fæðingu 280 dagar (40 vikur). Meðal
þeirra kvenna sem reyndu fæðingu hafði með-
göngulengd ekki áhrif á hvort tilraun til fæðingar
bar árangur né hafði það áhrif hvort fæðing var
framkölluð. Tilraun til fæðingar um leggöng
tókst sjaldnar ef fæðingarþyngd bams var >4000
grömm (53%) heldur en ef fæðingarþyngd þess
var <4000 grömm (66%) (p<0,01). Hins vegar
reyndist höfuðummál þeirra bama sem fæddust
um leggöng ekki marktækt minna en þeirra barna
þar sem fæðing um leggöng tókst ekki (35,8 cm og
35,9 cm).
Meðal þeirra 346 kvenna sem fæddu um leg-
göng var sogklukku eða töng beitt hjá 87 konum
(25%). Fæðing var framkölluð hjá 9% heildarþýðis.
Meðal þeirra kvenna sem reyndu fæðingu um leg-
göng var fæðing framkölluð hjá 15% en 85% fóru
Mynd 2 Hlutfall kvenna semfæddu sitt annað barn um leggöng eftir fyrri fæðingu með keis-
araskurði, skipt eftir árum.
Marktækur munur var á milli áranna 2001 og 2005 (p=0,03).
Mynd 3. Skýringarmynd sem sýnir skiptingu fæðingarmáta.
í sjálfkrafa sótt. Hlutfall þeirra fæðinga sem voru
framkallaðar fjölgaði á rannsóknartímabilinu, úr
11 í 23%, p=0,054.
Sex konur fengu legbrest sem er 1% af þeim
konum sem reyndu fæðingu um leggöng. Hjá
fimm þessara kvenna hófst sótt sjálfkrafa en fæð-
ing var framkölluð hjá einni konu (framköllun
LÆKNAblaðið 2008/94 593