Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 49
U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR L í 9 0 Á R A Tómas Jónasson, meltingarlæknir, formaður LÍ 1975-1979. „Þetta er veikleiki í menntun lækna en hjúkr- unarfræðingarnir voru framsýnni og lærðu stjórn- un. Læknar hafa sopið seyðið af því." „Það er gríðarlega mikilvægt að læknar séu í forystu um þróun heilbrigðismála og að rödd þeirra heyrist vel á hverjum tíma. Það er mik- ilvægt fyrir samtök lækna að vera vakandi fyrir breytingum og laga sig að þeim þegar það á við en standa á móti ef svo ber undir," segir Tómas. „Ef ég ætti að nefna eitthvað sem ég teldi mik- ilvægast til framtíðar þá er það að gæðum mennt- unar íslenskra lækna sé ávallt fylgt til hins ítrasta og en ég vildi gjarnan sjá meiri áherslu á stjórnun og skipulag heilbrigðismála innan grunnnámsins. Það er kannski ekki það sem ungir læknar hafa mestan áhuga á en það er mikilvægt að leggja grunninn strax því þá verður auðveldara að til- einka sér þessa hluti þegar að þeim kemur í starfs- ferli læknisins," segir Sverrir. „Þessu er ég alveg sammála/' segir Þorvaldur Veigar og Tómas kinkar kolli. „Ég tók að mér formennsku í félaginu árið 1975 og þá var aðalmálið uppbygging heilsugæslunn- ar á landsbyggðinni. Það fór mikill tími og orka í þau mál. Aður en ég varð formaður hafði ég starfað fyrir félagið í fræðslunefnd og hafði mikla ánægju af því starfi. Formennskan snerist mikið um fundahöld og langvinnt pex um alls kyns mál og sem formaður lenti maður oft í því hlutverki að sætta menn og ólík sjónarmið. Þetta var frekar leiðinlegt ef ég á að vera alveg hreinskilinn," segir Tómas. Þorvaldur og Sverrir taka undir þetta. „Það fór mikill tími í alls kyns þannig mál bæði innan félagsins og utan þess." Þegar þeir eru spurðir um hvað þeir telji mikilvægast í starfi Læknafélags íslands á und- anförnum áratugum þá nefna þeir allir menntun og fræðslumál. „Þetta er auðvitað mál sem læknar hafa borið fyrir brjósti alveg frá stofnun félagsins og erfitt að setja fingurinn á ártal sem skipti sköp- um," segir Sverrir. „Þetta er kefli sem maður tekur við og ber áfram til næstu kynslóðar." „Það var mikilvægur áfangi árið 1966 þegar náðist inn í kjarasamninga ákvæði um end- urmenntun og námsferðir," segir Þorvaldur. „Fræðslustofnun lækna og árlegir Læknadagar eru einnig glæsilegur vitnisburður um þetta," segir Sverrir en Fræðslustofnun lækna var stofnuð haustið 1997 en hluti af stofnfé hennar voru fjár- munir Sjálfseignarstofnunar Domus Medica sem lögð var niður í árslok 1996. „Bygging og rekstur Domus Medica er mik- ilvægur hluti af sögu Læknafélagsins á 7. og 8. áratug síðustu aldar," segir Þovaldur en um það má lesa í í sérstöku aukablaði Læknablaðsins sem út kom 1983 (20.6.1983. 6. tbl). „Það hafa orðið gríðarlegar framfarir í fram- haldsmenntun lækna og nú er svo komið að í ýmsum greinum geta læknar tekið hluta fram- haldsnámsins hér heima. Það er mikill kostur en það er jafnframt mikilvægt að ljúka náminu með námsdvöl eða kynningu erlendis til að öðlast víð- ara sjónarhorn á læknisfræðina," segir Tómas. „Islensk læknisfræði hefur notið þess hversu víða sérfræðingar okkar hafa menntað sig," segir Þorvaldur. „Þetta er einkenni á íslenskri lækn- isfræði sem styrkir heilbrigðiskerfið okkar." LÆKNAblaðiö 2008/94 621
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.