Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 23
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
kvenna sem reyndu fæðingu um leggöng (tvö Tafla IV. Ábendingar bráðakeisaraskurða í fyrri og seinni fæðingu.
börn af 564) var þannig 3,5 %o og ekki marktækt Ábending Fjöldi í fyrri fæðingu Fjöldí í seinni fæðingu
hærri en burðarmálsdauði meðal kvenna sem ekki reyndu fæðingu um leggöng (p=0,62). Lélegur framgangur / misræmi í stærð fósturs og grindar 403 (56%) 120 (50%)
Af þeim fimm börnum sem létust höfðu tvö Fósturstreita 151 (21%) 35 (15%)
barnanna alvarlega meðfædda galla sem samræm- ast ekki lífi (annað þeirra fæddist með valkeisara- Lélegur framgangur / misræmi ÁSAMT fósturstreitu 83 (12%) 21 (9%)
skurði en hitt með bráðakeisaraskurði). Eitt barn Misheppnuð áhaldafæðing 36 (5%) 5 (2%)
var örburi og léttburi (425 gr) og fæddist með Misheppnuð framköllun fæöingar 22 (3%) 10 (4%)
bráðakeisaraskurði vegna fósturstreitu. Eitt barn Svæsin meðgöngueitrun 11 (2%) 5 (2%)
dó fyrir upphaf fæðingar og fæddist um leggöng eftir framköllun fæðingar með lyfjum. Eitt dauðs- fallanna má rekja til fæðingarmáta þar sem barnið dó í fæðingu vegna legbrests. Fyrirsæt fylgja 7 (1%) 4 (2%)
Legbrestur eða grunur um slíkan 0 (0%) 6 (3%)
Annað eða óljós ábending 6 (1%) 11 (5%)
Ekki tekiö fram 4 (1%) 21 (9%)
Umræður
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að af þeim
konum sem fæða sitt fyrsta barn með keisara-
skurði fæða 37% þeirra annað barn um leggöng.
Þessi hópur stækkaði hlutfallslega á rannsókn-
artímabilinu. Alls fara þó 63% kvenna í endurtek-
inn keisaraskurð sem er rúmlega þrefalt hærra en
tíðni keisaraskurða er almennt hérlendis (18,6%
árið 2006) (18).
Hlutfall fæðinga um leggöng eftir fyrri
keisaraskurð hérlendis er töluvert lægra en í
Hollandi (53,8%) (19) en aftur á móti mun hærra
en í Bandaríkjunum, en árið 2004 var hlutfallið
þarlendis aðeins 9,2% (20). Árið 2000 var hlutfallið
í Bretlandi 32,6% og hafði þá verið lækkandi í
nokkur ár (21).
Áður en keisaraskurðum tók að fjölga á
Vesturlöndum var almennt talið að eftir einn keis-
araskurð skyldu síðari fæðingar einnig vera með
keisaraskurði (8, 22,23). Þegar keisaraskurðum fór
að fjölga upp úr 1970 hófst fljótlega sú umræða að
sporna þyrfti gegn þeirri þróun enda fylgikvillar
eftir keisaraskurði vel þekktir (1, 24). Á þessum
tíma komu einnig fram rannsóknir sem sýndu
fram á öryggi tilrauna til leggangafæðingar eftir
fyrri keisaraskurð (8) auk þess sem tíðni legbrests
lækkaði eftir að legu skurðar í leg var breitt úr
lóðréttri skurðlínu í lárétta (25). í flestum lönd-
um hafa þær konur sem geta reynt fæðingu um
leggöng eftir einn fyrri keisaraskurð verið hvattar
til þess (26-28). f niðurstöðum þessarar rann-
sóknar kemur fram að þessi viðmiðun hefur borið
árangur hér á landi, því hlutfall þeirra kvenna sem
fæða um leggöng eftir fyrri keisaraskurð hefur
farið hækkandi.
Víða erlendis hefur þróunin á undanförnum
árum aftur á móti verið sú að ekki sé talið réttlæt-
anlegt að ráðleggja konum að reyna fæðingu um
leggöng (28-30). í Bandaríkjunum fara þannig tæp
91% kvenna nú í endurtekinn keisaraskurð (20) og
Tafla V. Tilraun til teggangafæðingar og bráðakeisaraskurð í fyrri fæðingu.. árangur meðal kvenna sem fóru í
Ábending fyrri bráöakeisaraskurðar Fjöldi Fjöldi sem reyndi fæðingu um leggöng Fjöldi sem fæddi um leggöng af þeim er reyndu
Lélegur framgangur / misræmi í stærð fósturs og grindar 403 253 (63%) 156 (62%)
Fósturstreita 151 104 (69%) 66 (64%)
Lélegur framgangur / misræmi ásamt fósturstreitu 83 48 (58%) 24 (50%)
Misheppnuö áhaldaféeðing 36 18 (50%) 8 (44%)
Annaö 51 25 (50%) 13 (52%)
Tafla VI. Afdrif barnanna.
Greiningar barna Börn kvenna sem reyndu fæðingu Börn kvenna sem ekki reyndu fæöingu p-gildi
Apgar stigun < 6 við 1 mínútu 124 (22%) 39 (11%) <0,0001
Apgar stigun < 6 við 5 mínútur 13 (2%) 5 (2%) 0,25
Fæöingaráverki 14 (3%) 2 (1%) 0,02
Öndunarörðugleikar 23 (4%) 18 (5%) 0,41
Burðarmálsdauði 2 (0,4%) 2 (1%) 0,62
hlutfall þeirra sem gerir tilraun til fæðingar um
leggöng er lækkandi þar (31, 32). Fæðingum um
leggöng eftir fyrri keisaraskurð fer eirmig fækk-
andi í Bretlandi (8). Ástæðan liggur í mismun-
andi niðurstöðum rannsókna á tíðni fylgikvilla
í tengslum við fæðingar um leggöng eftir fyrri
keisaraskurð samanborið við endurtekinn keisara-
skurð (13,17, 33, 34).
í ljósi þessa er eðlilegt að spyrja hvort það
sé réttlætanlegt að ráðleggja konum að reyna
fæðingu um leggöng eftir fyrri keisaraskurð.
Rannsókn þessi var gerð til að kanna fæðingar
eftir fyrri keisaraskurð á íslandi en upplýsingar
sem þessar hafa ekki áður verið birtar hér á landi.
Því miður var skráningu á ábendingum síðari
keisaraskurðar ábótavant og kann það að hafa haft
áhrif á niðurstöður þar að lútandi.
Hlutfall kvenna sem fæddu um leggöng af þeim
sem það reyndu var 61% í þessari rannsókn sem er
LÆKNAblaðið 2008/94 595