Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 51
U M R Æ Ð U R
O G
L í
F R É T T I R
9 0 Á R A
Háskóla íslands, Lýðheilsustöð og fleiri sem
sæju hag af því að efna til samstarfs um sýningar,
kynningar og umræðna um mál er að þeim snúa.
Markmið Seltjarnarnesbæjar er að hér verði rekið
lifandi safn og það fellur algerlega að markmiðum
Læknafélags íslands. Þetta á að verða ákveðin mið-
stöð en auðvitað setja peningar hugmyndafluginu
ákveðin takmörk í umfangi starfseminnar."
Ekki er búið að ákveða hversu margir starfs-
menn verða við safnið en Anna Þorbjörg segir að
þetta verði ekki einsmannsstofnun en heldur ekki
„risastofnun". „Einhverjir fastir starfsmenn verða
hér auk mín en ég sé frekar fyrir mér að fræðimenn
og sérfræðingar komi til starfa hér tímabundið við
ákveðin verkefni."
Anna Þorbjörg hefur ákveðnar skoðanir á hlut-
verki safna og gerir skýran greinarmun á safni og
sýningu. „Það er mjög mikilvægt að gera sér grein
fyrir í hverju þessu munur felst. Safn er fræða- og
varðveislustofnun þar sem stór hluti starfseminnar
er ekki sýnilegur. Sýningarhald er einungis hluti af
starfi safns. Þar eru rannsakaðar, skráðar og varð-
veittar minjar eftir mjög skýrri og viðurkenndri
fræðilegri aðferðafræði. Munurinn á safni og sýn-
ingu er svipaður og hómópata og lækni þar sem að
baki hinni sýnilegu starfsemi er allt örtnur og meiri
þekking. Á síðustu 100-200 árum hafa söfn lent
í samkeppni sem afþreyingarmáti við alls kyns
fyrirbæri eins og skemmtigarða og vaxmyndasöfn
svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekkert nýtt. Hér
á Islandi hefur hins vegar orðið ákveðin þróun á
síðustu 10 árum eða svo þar sem menningartengd
ferðaþjónusta hefur blandast saman við starfsemi
safna og orðið til þess að rugla marga í ríminu og
kannski ekki síst opinbera aðila þar sem verulegir
fjármunir hafa verið settir í menningartengda
ferðaþjónustu undir fjárlagaliðunum minjavarsla.
Þar er því verið að setja peninga í starfsemi sem
á meira skylt við skemmtigarða en raunverulega
fræðilega minjavörslu. Ég vil þó taka skýrt fram að
ég hef ekkert á móti menningartengdri ferðaþjón-
ustu sem slíkri en henni má ekki rugla saman við
fræðilega minjavörslu, enda er menningartengd
ferðaþjónusta oftar en ekki byggð á þjóðsögum og
munnmælum, eða þemum úr tilteknum íslend-
ingasögum. Allt er þetta góðra gjalda vert en á
lítið skylt við fræðilegt safnastarf og raunverulega
minjavörslu."
Samkeppni er hluti af nútímaumhverfi safns og
Anna Þorbjörg tiltekur nokkur atriði. „Við erum
í samkeppni við fjölmarga aðila um athygli al-
mennings. Við erum í samkeppni um fjármagnið
og þurfum að hafa æ meira fyrir því að sýna fram
á mikilvægi safnastarfseminnar. Við erum einnig í
Anna Þorbjörg Þor-
grímsdóttir, safnstjóri
Lækningaminjasafns,
meö Nesstofu í baksýn
og framtíðarstað
Lækningaminjasafnsins par
hægra megin.
LÆKNAblaðið 2008/94 623