Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 51
U M R Æ Ð U R O G L í F R É T T I R 9 0 Á R A Háskóla íslands, Lýðheilsustöð og fleiri sem sæju hag af því að efna til samstarfs um sýningar, kynningar og umræðna um mál er að þeim snúa. Markmið Seltjarnarnesbæjar er að hér verði rekið lifandi safn og það fellur algerlega að markmiðum Læknafélags íslands. Þetta á að verða ákveðin mið- stöð en auðvitað setja peningar hugmyndafluginu ákveðin takmörk í umfangi starfseminnar." Ekki er búið að ákveða hversu margir starfs- menn verða við safnið en Anna Þorbjörg segir að þetta verði ekki einsmannsstofnun en heldur ekki „risastofnun". „Einhverjir fastir starfsmenn verða hér auk mín en ég sé frekar fyrir mér að fræðimenn og sérfræðingar komi til starfa hér tímabundið við ákveðin verkefni." Anna Þorbjörg hefur ákveðnar skoðanir á hlut- verki safna og gerir skýran greinarmun á safni og sýningu. „Það er mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir í hverju þessu munur felst. Safn er fræða- og varðveislustofnun þar sem stór hluti starfseminnar er ekki sýnilegur. Sýningarhald er einungis hluti af starfi safns. Þar eru rannsakaðar, skráðar og varð- veittar minjar eftir mjög skýrri og viðurkenndri fræðilegri aðferðafræði. Munurinn á safni og sýn- ingu er svipaður og hómópata og lækni þar sem að baki hinni sýnilegu starfsemi er allt örtnur og meiri þekking. Á síðustu 100-200 árum hafa söfn lent í samkeppni sem afþreyingarmáti við alls kyns fyrirbæri eins og skemmtigarða og vaxmyndasöfn svo eitthvað sé nefnt. Það er því ekkert nýtt. Hér á Islandi hefur hins vegar orðið ákveðin þróun á síðustu 10 árum eða svo þar sem menningartengd ferðaþjónusta hefur blandast saman við starfsemi safna og orðið til þess að rugla marga í ríminu og kannski ekki síst opinbera aðila þar sem verulegir fjármunir hafa verið settir í menningartengda ferðaþjónustu undir fjárlagaliðunum minjavarsla. Þar er því verið að setja peninga í starfsemi sem á meira skylt við skemmtigarða en raunverulega fræðilega minjavörslu. Ég vil þó taka skýrt fram að ég hef ekkert á móti menningartengdri ferðaþjón- ustu sem slíkri en henni má ekki rugla saman við fræðilega minjavörslu, enda er menningartengd ferðaþjónusta oftar en ekki byggð á þjóðsögum og munnmælum, eða þemum úr tilteknum íslend- ingasögum. Allt er þetta góðra gjalda vert en á lítið skylt við fræðilegt safnastarf og raunverulega minjavörslu." Samkeppni er hluti af nútímaumhverfi safns og Anna Þorbjörg tiltekur nokkur atriði. „Við erum í samkeppni við fjölmarga aðila um athygli al- mennings. Við erum í samkeppni um fjármagnið og þurfum að hafa æ meira fyrir því að sýna fram á mikilvægi safnastarfseminnar. Við erum einnig í Anna Þorbjörg Þor- grímsdóttir, safnstjóri Lækningaminjasafns, meö Nesstofu í baksýn og framtíðarstað Lækningaminjasafnsins par hægra megin. LÆKNAblaðið 2008/94 623
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.