Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 61
FRÆÐIGREINAR ATHUGASEMD Athugasemdir vegna greinar um Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm og riðu í sauðfé Ásgeir B. Ellertsson Einar Már Valdimarsson Finnbogi Jakobsson Torfi Magnúson finnbjak@landspitali. is í síðasta tölublaði Læknablaðsins birtist athyglis- verð grein um Creutzfeldt-Jakob sjúkdóminn (CJD) og lága tíðni hans hér á landi. I greininni er annars vegar gerð grein fyrir tveimur sjúklingum sem fundust við afturskyggna rannsókn sem tók til áranna 1960-1980. Farið var yfir sjúkraskýrslur taugalækningadeildar Landspítala og leituð uppi tilfelli sem ýmist höfðu verið greind sem CJD eða þar sem rökstuddur grunur var um að sjúklingur hefði látist úr CJD. Hins vegar er sagt frá fram- skyggnri rannsókn á árunum 1980-2000 þar sem einnig fundust tveir sjúklingar. Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er að lág tíðni sjúkdómsins hér á landi bendi til þess að sauðfjárriða berist ekki í fólk. Niðurstaða rannsóknarinnar er mikilvæg í ljósi þess að riða hefur verið landlæg hér um langan aldur. Areiðanleiki niðurstöðunnar veltur á að- ferðafræði rannsóknarinnar og er grundvöllur þess að hægt sé að meta gildi hennar sem faralds- fræðilegrar rannsóknar, ekki síst þar sem CJD er fátíður sjúkdómur og sérhvert tilvik getur haft umtalsverð áhrif á niðurstöður. I afturskyggnu rannsókninni er greint frá því að þau tvö tilfelli sem fundust hafi verið skoðuð af taugalækni, Gunnari Guðmundssyni heitnum. Annað var skoðað á Kleppsspítala, hitt fyrir innlögn á Landspítalann. í báðum tilvikum samræmdist klínísk greining hans niðurstöðum krufninga. Fram kemur í greininni að á síðara tímabilinu bárust höfundum hennar tveir heilar til meina- fræðilegrar rannsóknar sem reyndust með CJD, auk heila tveggja annarra sjúklinga sem við krufningu reyndust hafa Parkinson sjúkdóm og Alzheimer sjúkdóm. Engin grein er gerð fyrir því hvernig skimun var háttað á sjúkrahúsum eða landinu öllu, hvort greinarhöfundar skoðuðu sjálfir klínískt grun- samleg tilfelli eða hvernig þeir fengu vitneskju um slík tilfelli. í greininni kemur aðeins fram að báðir sjúk- lingarnir í framskyggnu rannsókninni greindust í tengslum við legu á sjúkrahúsi, sjúkrasaga þeirra er rakin og klínísk einkenni. í báðum tilvikum var klínísk greining staðfest eftir andlát við krufn- ingu. Höfundar þessara athugasemda voru á tíma- bilinu 1980-2000 starfandi sérfræðilæknar á E-end- urhæfinga- og taugadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þeim var ekki kunnugt um að framskyggn rann- sókn væri í gangi á CJD á íslandi fyrr en áðumefnd grein birtist í síðasta tölublaði Læknablaðsins. A þessu tímabili greindust tvö tilfelli CJD á deildinni og í báðum tilvikum var klínískur grunur um CJD ástæða þess að krufning var framkvæmd. Vert er að hafa í huga að tíðni krufninga hafði minnkað mjög frá því sem áður var og því voru krufningar framkvæmdar í undantekningartilvikum í tengslum við andlát á deildinni. Fyrri einstaklingurinn með CJD greindist 1995 og hinn síðari 1997. Fyrra tilvikinu var lýst í nokkrum útdráttum hérlendis og erlendis (1-4). Fyrir innlögn var enginn grunur um CJD hjá þessum einstaklingum. Þá greiningu fengu þeir í legunni á deildinni. Báðir létust á deildinni. í báðum tilvikum vaknaði klínískur grunur um CJD sem var staðfestur með postmortem rartnsóknum sem læknar deildarinnar höfðu frumkvæði að og framkvæmd var á vegum Guðmundar Georgssonar prófessors á Keldum. CJD er erfiður í greiningu og þó að þessi sjúkdómur sé taugalæknum ofarlega í huga er óvíst hvort það gildi um lækna almennt. Mismunagreining við CJD eru aðrir og mun algengari h rö rnuna rsj ú kd ó m a r, svo sem Alzheimer sjúkdómur og Parkinson sjúkdómur. Þar sem tíðni krufninga hér á landi hefur minnkað mjög er líklegt að örfáir sjúklingar sem látast með þessar mismunagreiningar séu krufðir eða undirgangist mænuvökvarannsókn með tilliti til CJD. Aðrar greiningaraðferðir eru hins vegar óöruggar og því talsverðar líkur á að sjúkdómurinn geti verið vangreindur. Það er grundvallaratriði við faraldsfræðilega rannsókn á jafnsérstökum og sjaldgæfum sjúk- dómi og CJD er, að gerð sé glögg grein fyrir þeirri LÆKNAblaðið 2008/94 633
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.