Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 22
■ FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Tafla II. Ábendingar valkeisaraskurða í fyrri og seinni fæðingu.
Ábending Fjöldi í fyrri fæöingu Fjöldi í seinni fæðingu
Fyrri keisaraskuröur 17 (5%)
Óhagstæö lega fósturs (oftast sitjandi) 118 (59%) 38 (11%)
Grindarþrengsli / misræmi í stærö fósturs og grindar 37 (19%) 55 (16%)
Meögöngueitrun 14 (7%) 13 (4%)
Fyrirsæt fylgja 4 (2%) 2 (1%)
Fæöingarhræösla, áhættumeöganga, saga um erfiöleika tengda fæöingu 4 (2%) 29 (9%)
Vaxtarseinkun 5 (3%) 4 (1%)
Meöfæddar vanskapanir eða vöðvahnútar [ legi 4 (2%) 5 (2%)
Annaö eða óljós ábending 10 (5%) 30 (9%)
Ekki skráö 5 (3%) 148 (43%)
fæðingar með prostaglandíni, belgjarofi og oxytós-
íni). Hjá fimm konum var gerður bráðakeisara-
skurður og barni bjargað en eitt barn dó í fæðingu
vegna legbrests og fæddist það um leggöng.
Ábendingar valkeisaraskurða og tengsl við seinni fæð-
ingu
í töflu II má sjá þær ábendingar valkeisara-
skurða sem fram komu í fyrri og seinni fæðingu.
Algengasta ábending valkeisaraskurðar í fyrri
fæðingu var óhagstæð lega fósturs (59%) en í
langflestum þessara tilfella var um sitjandastöðu
að ræða. Undir flokkinn „annað" féllu tíu aðrar
ábendingar sem komu aðeins einu sinni fram hver.
Algengustu skráðar ábendingar valkeisaraskurðar
í seinni fæðingu voru grindarþrengsli eða mis-
ræmi í stærð fósturs og grindar (16%) og óhagstæð
lega fósturs (11%). Skráningu ábendingar vant-
aði hins vegar í 148 fæðingartilkynningar (43%).
Abendingin „fyrri keisaraskurður" var einungis
skráð ef hún var sérstaklega tekin fram á fæðing-
artilkynningu sem ástæða keisaraskurðar (5%).
Undir flokkinn „annað" féllu 21 önnur ábending,
hver þeirra kom fram einu sinni til þrisvar.
Þær konur sem fóru í valkeisaraskurð í fyrri
fæðingu vegna óhagstæðrar legu fósturs voru
marktækt líklegri til að reyna fæðingu um leggöng
í næstu fæðingu (70%) en konur sem fóru í val-
keisaraskurð vegna annarra ábendinga (40%)
(p<0,0001) (tafla III). Þær voru einnig marktækt
líklegri til að takast að fæða um leggöng (75% og
52%) (p=0,02).
Tafla III. Tilraun til leggangafæðingar og árangur meðal kvenna sem fóru í valkeisaraskurö
í fyrri fæðingu.
Ábending fyrri valkeisaraskuröar Fjöldi Fjöldi sem reyndi fæöingu um leggöng* Fjöldi sem fæddi um leggöng af þeim er reyndu
Óhagstæð lega fósturs (oftast sitjandi) 118 83 (70%) 62 (75%)
Aörar ábendingar 83 33 (40%) 17 (52%)
*p<0,0001
Ábendingar bráðakeisaraskurða og tengsl við seinni
fæðingu
í töflu IV eru tilgreindar þær ábendingar bráða-
keisaraskurða sem fram komu í fyrri og seinni
fæðingu. Algengustu ábendingar bráðakeisara-
skurða voru lélegur framgangur eða misræmi í
stærð fósturs og grindar (56% í fyrri fæðingu en
50% í seinni fæðingu), fósturstreita (21% í fyrri en
15% í seinni) eða hvoru tveggja (12% í fyrri en 9%
í seinni). Legbrestur var ábending í sex tilvikum
í seinni fæðingu, í fimm tilvikum reyndist um
raunverulegan legbrest að ræða. Undir „annað"
féllu 13 aðrar ábendingar.
Ekki reyndust vera tengsl milli ábendingar
bráðakeisaraskurðs í fyrri fæðingu og fæðing-
armáta í seinni fæðingu. Þær konur sem fæddu
með bráðakeisaraskurði í fyrri fæðingu vegna
fósturstreitu voru marktækt líklegri til að reyna
fæðingu um leggöng (69%) heldur en ef ábending
bráðakeisaraskurðs var misheppnuð áhaldafæð-
ing (50%) (tafla V) en ekki reyndist marktækur
munur á hlutfalli þeirra kvenna sem tókst tilraun
til fæðingar um leggöng eftir því hver ábending
bráðakeisaraskurðs í fyrri fæðingu var.
Afdrif barnanna
Meðalfæðingarþyngd fyrsta bams var 3657 ±
749 grömm en annars bams 3730 ± 608 grömm
(p=0,02). Enginn munur var á Apgar stigun barna
við fimm mínútna aldur eftir því hvort fæðing var
reynd eða ekki (p=0,25) (tafla VI). Fæðingaráverkar
voru algengari ef fæðing var reynd, hvort sem sú
tilraun tókst eða ekki, en þegar fæðing var ekki
reynd (3% og 1%; p=0,02). Ekki var munur á tíðni
öndunarörðugleika milli hópanna (p=0,41).
Úr þessum hópi létust fimm böm og var burð-
armálsdauði því 5,4%o. Tvö barnanna fæddust
um leggöng, eitt með valkeisaraskurði og tvö
með bráðakeisaraskurði. í þeim tilfellum þar
sem bráðakeisaraskurði var beitt hafði ekki verið
gerð tilraun til fæðingar. Burðarmálsdauði meðal
594 LÆKNAblaðið 2008/94