Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 46

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 46
U M R Æ Ð U R L í 9 0 Á R A 0 G F R É T T I R Menntunin er mikilvægust Þeirri hugmynd skaut upp þegar væntanlegt 90 ára afmæli Læknaf élagsins bar á góma í fyrravor að gaman væri að fá þrjá fyrrverandi formenn félagsins til að spjalla og rifja upp starfið í þágu félagsins. Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Tómas Árni Jónasson og Sverrir Bergmann tóku allir vel í hugmyndina en það reyndist ekki einfalt að finna tíma þar sem allir þrír voru á lausu. Það kom í ljós að þrátt fyrir virðulegan aldur eru þeir sífellt á ferð og flugi bæði heima og erlendis, frískir og skarpir, og Sverrir stundar enn lækningar á stofu sinni í Domus Medica. Hávar Sigurjónsson Allir hafa þeir gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á starfsferli sínum sem ekki verða tíunduð hér utan hvenær þeir gegndu stjórnar- og formennskustörf- um fyrir Læknafélag Islands. Tómas Árni var formaður Læknafélags Islands árin 1975-1979, Þorvaldur Veigar tók við af honum og var formaður til ársins 1985 og Sverrir tók sæti í stjórn Læknafélagsins 1984 og gegndi for- mennsku árin 1991-1997. Samanlagður stjórnar- og formennskutími þeirra þriggja spannar því vel á þriðja áratug og gott betur ef farið væri nánar í saumana á öllum störfum þeirra í þágu félagsins í gegnum tíðina. Launamál lækna hafa verið í brennidepli á þessu sumri og því ekki að furða að umræðan snú- ist í fyrstu um launamál. Þeir rifja upp launadeilu frá árinu 1981 þar sem allir starfandi sérfræðingar á Landspítala og Borgarspítala sögðu upp starfi sínu. „Við höfðum engan verkfallsrétt og þetta var eina leiðin í stöðunni. Fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds, neitaði að tala við okkur í fyrstu en gaf sig á endanum en þá vildi hann ekki ræða nein- ar breytingar á grunntöxtum. Við samþykktum það en ekki voru allir sáttir í okkar hópi," segir Þorvaldur sem var formaður á þessum tíma. Félagið kolfelldi síðan samning sem var lagður fyrir og þá þurfti að fara aftur að borðinu og á end- anum hafðist þetta í gegn. Það náðist nú sitthvað fram en margir voru ekki sáttir." „Þetta er sennilega síðasta alvarlega launadeil- an sem læknar hafa staðið í við ríkið þar til núna," bætir Sverrir við. „Það er nú líka meira en að segja það að fara út í aðgerðir," segir Þorvaldur. Launa- og kjaramál „Árið 1991 stóðum við einnig í kjarabaráttu við ríkið," segir Sverrir. „Okkur var legið á hálsi fyrir að rjúfa þjóðarsáttina með kröfum okkar en það var ekki rétt. í þeim samningum náðist mikilvæg- ur áfangi í lífeyrismálum lækna með hækkun grunnlauna." Sverrir rifjar upp skýrslu sem ríkisendurskoð- un gerði á launamálum lækna árin 1996-97 í heil- brigðisráðherratíð Sighvatar Björgvinssonar. „Niðurstaða þeirrar skýrslu var einfaldlega sú að við læknar værum aldrei í vinnunni. Við værum á fullum launum á stofnunum en værum í rauninni að vinna útí bæ og helst á mörgum stöð- um í einu. Þetta var mjög heitt mál og Sighvatur hafði sig mjög í frammi um þetta. Þetta hafði þau áhrif að ráðningarsamningum lækna við ríkisspít- alana var breytt en þá breyttust launin líka og í framhaldi af þessu verður ákveðin launaþróun sem í rauninni hefur ekki verið ágreiningur um síðan." „Fyrr en núna," skýtur Tómas inn í. Þegar litið er yfir aðalfundargerðir Læknafélags íslands frá liðnum árum og áratugum er ljóst að læknar hafa ávallt verið vel vakandi um heilbrigð- ismál þjóðarinnar í víðasta skilningi. Spurning er hins vegar hvort læknar og samtök þeirra hafi náð athygli ráðamanna og þjóðarinnar í þeim málum sem helst hafa brunnið á. „Það hafa orðið svo miklar breytingar á þjóð- félaginu að læknar eru ekki lengur eina stéttin sem hefur haldgóða þekkingu á heilbrigðismálum. Það eru fjölmargir aðrir sem hafa menntun og þekkingu á þeim sviðum. Áður fyrr var sertnilega hlustað meira á okkur læknana einfaldlega af þessum ástæðum," segir Þorvaldur Veigar. Þeir eru sammála um að áður hafi meira verið hlustað á einstaklinga í röðum lækna og ákveðnir menn hafi haft talsverð persónuleg áhrif. „Ég 618 LÆKNAblaðið 2008/94

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.