Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 47

Læknablaðið - 15.09.2008, Side 47
U M R Æ Ð U R 0 G L í F R É T T I R 9 0 Á R A Þorvaldur, Tómas og Sverrir slá á létta strengi. gæti nefnt 4-5 menn sem höfðu slík áhrif á síð- ustu öld. Þeir nutu virðingar og höfðu áhrif langt út fyrir okkar raðir. Vissulega getum við læknar notið virðingar í dag en það er einkenni á sérfræð- ingaþjóðfélaginu að sífellt fleiri hafa skoðanir á öllum hlutum. Hver og einn hefur minni áhrif fyrir vikið/' segir Tómas. „Vissulega lítur maður yfir farinn veg og spyr sig hvort maður hafi haft einhver áhrif eða ekki. Allar tillögurnar og ályktanirnar sem gerðar hafa verið, hverju hafa þær skilað? Til að meta það þyrfti að fara í mjög nákvæma skoðun. Skipulag, gæða- eftirlit, ráðstöfun fjármuna til heilbrigðismála og fjölmargt fleira er meðal þess sem samtök lækna hafa tjáð sig um. Sumt hefur náð fram að ganga og annað ekki eins og gengur," segir Sverrir. „Það voru gerðar mjög ítarlegar ályktanir og lagðar fyrir ráðuneytið, ár eftir ár," segir Tómas. „Ég hygg að það hafi alltaf verið litið á það sem frá okkur kom." „Við vildum að ráðuneytisstjóri heilbrigðis- ráðuneytisins væri læknir. Páll Sigurðsson var læknir en eftir að hann lét af störfum hefur ekki verið læknir í þessari stöðu. Við vildum líka að læknar stjórnuðu heilbrigðisstofnunum. Ef ekki einir, þá í samstarfi við aðra í efsta þrepi. Við hvöttum lækna til að mennta sig í stjórnun. Við vildum efla áhrif lækna innan kerfisins og töldum okkur geta gert eins vel og jafnvel betur en aðrir í krafti þekkingar okkar." Fræðslustofnun lækna Þeir eru sammála um að þetta hafi ekki gengið eftir eins og ítrustu vonir stóðu til þó vissulega séu læknar í stjómunarstöðum innan sjúkrahús- kerfisins. „Yfirlæknar deilda og sérgreina hafa það líka nokkuð í hendi sér hverju þeir vilja ráða og ég man dæmi þess að þeir hafi látið öðrum eftir að taka ákvarðanir um rekstur deilda af því þeir voru bara uppteknari af öðru," segir Þorvaldur. „Þannig töpuðu þeir smám saman völdum. Ég tal- aði talsvert mikið fyrir því á sínum tíma að innan læknadeildarinnar ætti að taka upp nám í stjórnun og uppbyggingu sjúkrahúsa og heilbrigðiskerf- isins. Það var ekkert hlustað á það. Ég talaði líka fyrir því í Félagi yfirlækna að það stæði fyrir nám- skeiði í stjórnun. Það varð ekkert úr því." LÆKNAblaðið 2008/94 61 9

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.