Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.09.2008, Blaðsíða 59
Sögusvar UMRÆÐUR 0 G FRÉTTIR SJÚKRASKRÁR Sigurður E. Sigurðsson ses@fsa.is Höfundur er svæfinga- og gjörgæslulæknir við FSA. Hann er varaformaður Læknafélags íslands. Minn ágæti samstarfsmaður hér á Sjúkrahúsinu á Akureyri, FSA, Friðrik E. Yngvason, skrifar grein í síðasta tölublaði undir fyrirsögninni Af Sögu kúgun og fer þar mikinn. Hann vill með því svara grein minni um Söguna sem ég hafði skrifað í 6. tölublað þessa árs. Það var nú aldrei meining mín að hefja ritdeilur, þvert á móti vildi ég reyna að koma umræðunni um Söguna á eitthvert plan þar sem reynt væri að taka málefnalega á hlutunum en ekki með alhæfingum og gífuryrðum. Mér virðist ekki hafa lukkast það sérstaklega vel ef miðað er við þann anda sem grein FEY er skrifuð í. Friðrik nefnir nokkur atriði í Sögukerfinu sem, að því er honum finnst, gera það illa nothæft og sóa tíma hans sem betur væri varið í annað. Fyrst má nefna að lyfjakortið er ekki nothæft. Þarna er ég alveg sammála FEY að það er verulega bagalegt að ekki sé vel nothæft lyfjakort í rafrænu sjúkraskrárkerfi en get samtímis upplýst að með upptöku rafrænna lyfjafyrirmæla sem stefnt er að á næstu mánuðum hér á FSA ætti nothæft lyfjakort að vera til staðar í kerfinu. Þá nefnir FEY póstlistann og reikna ég með að þar eigi hann við skilaboðaskjóðuna sem ómögulegt sé að vinna með vegna ruslpósts meðal annars. Því er til að svara að skilaboðaskjóðan hefur ekki sinnt því hlutverki sem skyldi, fyrst og fremst vegna þess að margir læknar hreinlega neita að nota hana og telja sig ekki geta skoðað pósta í tveimur kerfum, þ.e. sínu eigin og þessu í Sögunni. Síðan er það með ruslpóstinn en þar geri ég ráð fyrir að FEY eigi við að í hans pósthólf komi póstur sem ekki á erindi til hans. Því er til að svara að það stafar sennilega nánast í öllum tilfellum af því að menn hafa ekki gefið sér tíma til að læra á kerfið og senda póst sem dreifist til of margra við- takenda. Hvað varðar frágang og sendingar læknabréfa þá kannast ég ekki við tugi innslátta til að senda læknabréf en kannski höfundur hafi fært örlítið í stílinn til að leggja áherslu á orð sín. Hvað varðar aðgangsstýringar veit ég ekki alveg hvað FEY er að fara því að ekki veit ég betur en hann hafi aðgang að öllum gögnum sem hann þarf, ef frá er skilin geðdeildin. Þessi umræða um Söguna hjá FEY er í sjálfu sér ágætis innlegg í það sem betur mætti fara en þar er ekki látið staðar numið og vill FEY nú helst líka fjalla um undirritaðan persónulega í þessu sam- hengi. Það er vissulega rétt að ég skrifaði greinina um Framhalds-Söguna og er þar að auki formaður innleiðingarnefndar rafrænnar sjúkraskrár á FSA og hef sem slíkur þurft að standa fyrir því sem að slíku lýtur. Hins vegar veit ég ekki til þess að ég hafi verið með ókurteisi eða að ég hlæi að fólki vegna vandamála sem lúta að Sögukerfinu eins og FEY ýjar að. Vissulega hef ég ekki alltaf verið sammála viðmælendum mínum og ef FEY telur það ókurteisi þá er ég sekur. Ég tel mig einnig sæmilega lífsglaðan mann og á til að brosa og jafn- vel hlæja öðru hverju en get fullvissað FEY að það er ekki vegna vandræða annarra með Sögukerfið. Það að ég hvetji menn til að una „Sögukúguninni" í tíu ár í viðbót er sennilega þannig komið til að ég hef sagt að vilji menn skipta um kerfi og að ef finnst betra kerfi og ef stjórnvöld ákveða að breyta um kerfi, finnst mér ekki ólíklegt miðað við það fjármagn og vinnu sem hingað til hefur verið lagt í þetta, að þá taki þau umskipti 5-10 ár. Þarna væri ég manna fegnastur að hafa rangt fyrir mér og að nýtt kerfi, sem öllum þóknast og væri hægt að inn- leiða á mun styttri tíma, liti dagsins ljós sem fyrst. Friðrik gerir einnig athugasemd við það að ég sem varaformaður LÍ hafi ekki stokkið til varnar fyrir hann gagnvart Sögukerfinu. Því er helst til að svara að LI hefur ekki haft á stefnuskrá sinni að berjast gegn Sögukerfinu eða „vernda" lækna fyrir því. Stjórn LÍ hefur heldur engin erindi fengið frá læknum þess efnis svo ekki hef ég þar brugðist skyldum mínum sem stjórnarmaður. Hins vegar get ég glatt FEY enn meira með því að nefna það að kjörtímabili mínu sem varaformaður lýkur nú í haust og hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi stjórnarsetu. Til að fyrirbyggja mis- skilning var þessi ákvörðun tekin löngu áður en þessi umræða fór af stað. Reyndar hafði ég hugsað mér að segja mig úr stjórn LÍ strax og ég tók að mér verkefni sem staðgengill framkvæmdastjóra lækn- inga á FSA en núverandi formaður óskaði eftir að ég lyki mínu kjörtímabili og varð ég við því. Það er því ljóst að tækifæri eru fyrir gott fólk með skoð- anir á hlutunum að bjóða sig fram í stjórn LÍ nú í haust á aðalfundi og vil ég hvetja menn til þess. Að lokum þetta: Ég stend við fyrri orð mín um að farsælast sé að umræðan um rafræn sjúkraskrárkerfi fari fram á öfgalausum og skyn- samlegum nótum. Ég held að það sé öllum ljóst að ekki verður aftur snúið til pappírsgagna og hvort kerfið heitir Saga eða eitthvað annað verður fram- tíðin að skera úr um. LÆKNAblaðið 2008/94 631
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.