Læknablaðið - 15.04.2009, Side 3
Ögmundur Jónasson heilbrigöisráðherra og Jón Snædal læknir og fráfarandi forseti WMA, alþjóðasamtaka lækna, hlýða á
erindi á fundi WMA sem haldinn var í Reykjavík 8.-9. mars. Aðalumræðuefni fundarins var verkfærsla milli heilbrigðisstétta en
alþjóðasamtök lækna hafa lagt áherslu á að móta tillögur og hugmyndir um hvernig þetta megi gerast án þess dragi úr gæðum
þjónustu eða menntunar heilbrigðisstarfsfólks. Framundan eru fundir WMA í Tel Aviv i vor þar sem áfram verður unnið að
tillögum og er gert ráð fyrir að þær verði lagðar fram á ársfundi samtakanna í Kampala í Úganda í haust.
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
R itstjórnarf u I Itrú i
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@iis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@iis.is
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Upplag
1800
Myndlistarmaðurinn Birta Guðjónsdóttir (f. 1977) kemur
gjarnan fram í eigin persónu í Ijósmyndaverkum sínum
og hér er hún með grímu fyrir munninum. Verkið er frá
því 2004 og ber heitið Jain.
Það sver sig í ætt við önnur
verk Birtu þar sem hún
horfir nánast svipbrigðalaus
í Ijósmyndavélina - og
þar með í augu áhorfenda
- ásamt því sem hún bætir
við sjónrænu lítilræði af
einhverju tagi, skynvillu,
tilvísun í táknmynd eða
öðru sem vekur forvitni.
Hún leikur sér gjarnan með
speglun og samhverfu
eða beinir sjónum að
náttúrulögmáli sem maður
gengur að sem vísu. Þessi
verk eiga rætur að rekja
til fagurfræði sjöunda og
áttunda áratugarins þegar
líkami listamannsins varð
hluti af verkum hans.
Skemmst er að minnast
Ijósmyndaverka Sigurðar
Guðmundssonar þar sem
hann setti sjálfan sig í
mótstöðu við umhverfið eða
apaði eftir því. Birta fæst
einnig við annars konar miðla, myndbönd og skúlptúr,
en mest hefur borið á Ijósmyndum upp á síðkastið. Þá
starfar hún einnig sem sýningarstjóri jafnt alþjóðlega sem
innanlands.
Heiti verksins Jain vísar til trúarbragöa á Indlandi
sem einkennast af ótæmandi virðingu fyrir öllu sem lífs
er. Iðkendur þessarar trúar bera gjarnan skýlur fyrir vitum
sínum til þess að forðast
að gleypa óvart flugur. Á
ferðum sínum um Indland
kynntist Birta þessari venju
og henni varð meðal annars
minnisstætt portretmálverk
af fjölskylduföður einum sem
hékk utan á húsi hans þar
sem hann bar klút fyrir nefi
og munni. Eftir að hafa gert
Ijósmyndaverkið öðlaðist
það sjálfstætt líf og líkast til
dettur fæstum áhorfendum
í hug þessi sérstæðu
trúarbrögð nema að það
fylgi sögunni. Það kveikir
að öllum líkindum aðrar
hugrenningar í því samhengi
sem það birtist nú í málgagni
læknavísindanna. Þá felst í
verkinu einfaldur leikur að
formum, ferhyrndur hvítur
klútur fyrir miðju andliti og
síðan dökkt hárið þar sem
toppurinn er klipptur í 45
gráðu halla. Klipping Birtu
stangast á við samhverfu
andlitsins og gerir það að verkum að maður staldrar
ósjálfrátt við tiltölulega hreinar og beinar sjálfsmyndir
hennar og kemur í kjölfarið auga á fleiri smáatriði.
Markús Þór Andrésson
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) og Journal Citation
Reports/Science Edition.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) and Journal Citation
Reports/Science Edition.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 251