Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2009, Page 21

Læknablaðið - 15.04.2009, Page 21
Hugbrigðaröskun - yfirlitsgrein Ólafur Árni Sveinsson12 læknir Sigurjón B. Stefánsson1 sérfræðingur í geðlækningum og klínískri taugalífeðlisfræði Haukur Hjaltason1 sérfræðingur í taugasjúkdómum Lykilorð: hugbrigðaröskun, starfræn einkenni, starfræn segulómmyndataka, endurhæfing. Taugalækningadeild Landspítala, 2taugadeild Karolinska sjúkrahússins, Stokkhólmi. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Ólafur Sveinsson, taugadeild Karolinska sjúkrahússins, Stokkhólmi, Svíþjóð. olafur.sveinsson@ karolinska.se Ágrip I nútímalæknisfræði er oft talað um starfrænar truflanir þegar vísað er til einkenna sem ekki finnst vefræn skýring á. Rannsóknir hafa sýnt að allt að helmingur sjúklinga sem leitar sér læknisaðstoðar hjá sérfræðingum í heimilislækningum og um þriðjungur allra sjúklinga sem sækja til tauga- lækna utan spítala hafa slík einkenni. Þessir sjúklingar ganga oft á milli lækna og undirgangast óþarfa rannsóknir og meðferðir með litlum árangri. Vandinn getur orðið langvinnur og haft í för með sér færniskerðingu og minnkuð lífsgæði. Til er flokkun í bæði DSM IV og ICD 10 greiningarkerfunum sem inniheldur raskanir er fela í sér líkamleg einkenni þar sem ekki er hægt að sýna fram á vefræna orsök. Til þessa hóps raskana telst hugbrigðaröskun þar sem einstaklingar hafa einkenni frá taugakerfinu á borð við lamanir og skyntruflanir án þess að vefræn orsök finnist. Hér verður veitt yfirlit yfir nútímahugmyndir um orsök, greiningu, meðferð og horfur hugbrigðaröskunar. Inngangur Líkamleg einkenni sem engin vefræn skýring finnst á með aðferðum læknisfræðinnar eru oft sögð vera starfræn (functional). í geðlæknisfræði er slíkt ástand kallað röskun (disorder).1' 2 Hér verða notuð hugtökin starfræn einkenni og starfræn truflun í þessari merkingu. Ekki er útilokað að sú nafngift eigi eftir að breytast með aukinni þekkingu, en að okkar og annarra áliti henta þessi hugtök best umræddum truflunum.3 I þessari grein verður fjallað um þau einkenni sem felld hafa verið undir hugtakið eða sjúkdómsgreininguna hugbrigðaröskun (conversion disorder) sem er ein undirgrein starfrænna einkenna. Aður var notað hugtakið hysteria en það heyrir nú sögunni til enda merking þess gildishlaðin og neikvæð. Hér verður ekki rætt sérstaklega um aðrar starfrænar truflanir eins og líkamsgervingarheilkenni (somatisation disorder) eða heilsukvíða (hypochondriasis). Heilsukvíði einkennist af þrálátum kvíða þar sem fólk telur sig haldið alvarlegum sjúkdómi þrátt fyrir að skoðun og rannsóknir bendi til annars. I líkamsgervingarheilkenni er gjarnan um að ræða ungan einstakling (undir 30 ára) sem hefur haft fjölda líkamlegra einkenna sem leiða til endurtekinna læknisheimsókna. Öfugt við heilsukvíða er einstaklingurinn gagntekinn af einkennunum frekar en mögulegum undirliggjandi sjúkdómi. Algeng einkenni eru verkir, meltingaróþægindi og óþægindi frá kyn- og æxlunarlíffærum. Allar ofannefndar raskanir eru skyldar og heillavænlegast er að líta á þær sem róf raskana sem hafa ekki alltaf skörp skil sín á milli. Mikilvægt er að læknar þekki vel til starfrænna raskana en fyrir því má í fljótu bragði finna þrjár ástæður. I fyrsta lagi eru þær algengar. Rannsóknir hafa sýnt að allt að helmingur sjúklinga sem leitar til heimilislækna kemur vegna starfrænna einkenna.4'5 Um þriðjungur allra sjúklinga sem sækja til taugalækna á göngudeildir hafa starfræn einkenni.6-71 öðru lagi hafa margir sjúklinganna ríka tilhneigingu til að festast í hlutverki sjúklingsins. Vandinn verður því gjarnan langvinnur og hefur í för með sér færniskerðingu og minnkuð lífsgæði sambærileg við að einkennin væru af vefrænum toga.8’10 í þessu sambandi er gagnlegt að gera greinarmun á sjúkdómi (disease) og veikindum (illness). Þó að sjúklingar með starfrænar truflanir hafi ekki vel skilgreindan vefrænan sjúkdóm eru þeir eigi að síður veikir og þurfa sannarlega hjálp, ekki síst vegna þess að þeir hafa tilhneigingu til að upplifa sig veikari í samanburði við sjúklinga með sambærileg einkenni af vefrænum toga.11 í þriðja lagi fara sjúklingar með starfræn einkenni oft á milli lækna, undirgangast endurtekið óþarfa rannsóknir, jafnvel aðgerðir, og reyna margvísleg lyf. Þetta getur verið kostnaðarsamt og áhættusamt án þess að leiða til nokkurrar niðurstöðu og fest sjúklinginn enn frekar í sjúklingshlutverkinu. Hugbrigðaröskun Conversion disorder hefur verið þýtt sem hugbrigðaröskun (íslensk þýðing ICD 10 grein- ingarkerfisins) eða sefasýki og munum við notast LÆKNAblaðið 2009/95 269

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.