Læknablaðið - 15.04.2009, Page 41
UMRÆÐUR 0 G F R É T T 1 R
WMA-FUNDUR Á í S L A N D 1
Læknirinn leiðir teymið
Yoram Blachar frá Israel er forseti Alþjóðasamtaka
lækna WMA og tók við sl. haust af Jóni
Snædal. Yoram er jafnframt formaður ísraelska
læknafélagsins en það hefur talsvert haft sig í
frammi á undanförnum misserum í umræðu um
mannréttindi og brot á þeim í átökum Israelshers
við Palestínumenn á Vesturbakkanum.
„Eg vil fyrst af öllu lýsa þeirri skoðun minni að
hvorki ísraelska læknafélagið né Alþjóðasamtök
lækna eru mannréttindasamtök. A hinn bóginn
er eitt af hlutverkum WMA að fylgjast með því
að aðildarfélögin um heim allan fari eftir þeim
siðareglum sem WMA setti sér fyrir mörgum
árum."
Blachar segir augljóst að Israelsku læknasam-
tökin séu ópólitísk. „Innan okkar félags eru 20 þús-
und meðlimir og þeir tilheyra öllu litrófi
stjórnmálanna. Við tökum engan þátt í stjóm-
málaumræðunni í landinu og erum ekki í neinni
stöðu til að hafa áhrif á stefnu ríkisstjómar landsins.
Við gegnum hins vegar mjög mikilvægu hlutverki í
að leggja áherslu á og fylgjast með því að allir sem
á þurfa að halda fái sem besta læknisþjónustu. Þá
gildir einu hvort um er að ræða ísraleska gyðinga,
ísraelska araba eða Palestínumenn. Við gemm allt
sem í okkar valdi stendur til að tryggja að farið
sé eftir siðareglum lækna í því ástandi sem ríkt
hefur í landinu. Ymsar ásakanir hafa verið settar
fram erlendis frá, sérstaklega frá Bretlandi, um
að ísraelskir læknar og heilbrigðisstarfsfólk hafi
bmgðist hlutverki sínu og ekki virt siðareglur
lækna. Við höfum ekki fundið neinar vísbendingar
um þetta og leggjum áherslu á að læknar í okkar
félagi fari að siðareglum í hvívetna. Við höfum
starfrækt símaráðgjöf þar sem læknar geta sótt
stuðning og ráð í erfiðum málum. Þau em af
margvíslegum toga og ég nefni sérstaklega að
læknar sem starfa innan fangelsanna í Israel lenda
oft í mjög erfiðum aðstæðum."
Mikilvægt að WMA fjalli um færslu verka
Blachar segir eitt brýnasta verkefni WMA vera
að móta hugmyndir og taka afstöðu til færslu
verka milli heilbrigðisstétta. „Þessi umræða er
hins vegar tvískipt og verður að ræða þannig.
Við höfum fullan skilning á stöðu Afríkuríkja þar
sem skortur á heilbrigðisstarfsfólki kemur í veg
fyrir að hægt sé að veita lágmarksþjónustu og
grunnþjálfun leikmanna gerir gæfumuninn. Þar er
færsla á verkefnum hrein lífsnauðsyn og á fundum
í Addis Ababa og Kampala að undirlagi WHO
m ___ iMkm i Jf—tr i
með þátttöku 57 heilbrigðisráðherra Afríkuríkja
kom fram fullur skilningur á þessu. Þetta eru
neyðarlausnir. Samtímis þessu er mikilvægt að
leggja áherslu á menntun og þjálfun lækna og
hjúkranarfólks þannig að eftir nokkur ár verði
ekki einungis leikmenn að störfum með mjög
takmarkaða þekkingu og yfirborðskunnáttu á
einföldustu læknisverkum. Þarna er því annars
vegar verið að bregðast við mjög aðkallandi
vanda sem ógnar lífi og heilsu milljóna manna í
Afríku en hins vegar þarf að horfa til lengri tíma
svo heilbrigðisþjónustan komist upp úr því fari
neyðarlausna sem nú ríkir."
í þróuðum löndum þar sem heilbrigðisþjónusta
er fyrir hendi hefur á undanförnum áram æ meira
verið talið um teymisvinnu og verkfærslu innan
teymanna. Verkin færast frá læknum til annarra
innan teymisins.
„Teymisvinna er einkenni á nútímaheil-
brigðisþjónustu en það er ljóst að í hverju teymi
verður að vera einn leiðtogi. Það er sjálfsagt og
eðlilegt að það sé læknirinn. Læknirinn sér um að
samhæfa teymið og skipuleggja samstarfið. Hjá
WMA erum við að móta tillögur varðandi þetta og
ég á von á því að þær liggi fyrir á aðalfundi WMA í
haust eftir að við höfum haldið vinnufund í Tel Aviv
í vor. Mín skoðun er sú að læknirinn eigi að vera
ábyrgur fyrir verkum hvers teymis og það er fátt
því til fyrirstöðu að aðrir innan teymisins fá fleiri
verk að vinna ef það er sameiginlegur skilningur
á því að læknirinn beri á endanum ábyrgðina. Við
megum heldur ekki missa sjónar á aðalatriðinu sem
er velferð sjúklingsins og samvinna innan teymisins
verður ávallt að taka mið af því."
Forseti WMA er ísraelski
læknirinn Yoram Blachar.
LÆKNAblaðið 2009/95 289