Læknablaðið - 15.07.2009, Page 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 blöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsíðu í eftirtal-
inni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af net-
inu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang fræði-
legra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
RITSTJÓRNARGREINAR
Gísli H. Sigurðsson
Næring gjörgæslusjúklinga
487
Útreiknuð stöðluð orkunotkun hjá mikið veikum sjúklingum
er ónákvæm og því er mjög mikilvægt að mæla raunverulega
orkunotkun hvers og eins.
Hulda Harðardóttir
Lyfjamál á krepputímum 489
- tækifæri til úrbóta
Má heimfæra erlendar rannsóknir um klíníska
lyfjafræðiþjónustu á íslenskan veruleika? Klisjan um tækifæri
í kreppu er margtuggin þessa dagana en það felst í henni
sannleikskorn.
FRÆÐIGREINAR
Bjarki Kristinsson, Kristinn Sigvaldason, Sigurbergur Kárason
Orkunotkun og næring gjörgæslusjúklinga
Orkunotkun gjörgæslusjúklinga er minni en búast mætti við að teknu tilliti til streituálags vegna
alvarlegra veikinda eða áverka. Breytileiki er mikill milli einstaklinga og hjá sama einstaklingi og
því mikilvægt að mæla orkunotkun fremur en að áætla hana til þess að næringarmeðferð verði
markviss.
Hilmir Ásgeirsson, Kai Blöndal, Þorsteinn Blöndal, Magnús Gottfreðsson
Fjölónæmir berklar á íslandi - tilfellaröð og yfirlit
í Ijósi aukinna fólksflutninga og vaxandi lyfjaónæmis í heiminum er líklegt að tilfellum
fjölónæmra berkla eigi eftir að fjölga á Islandi með tilheyrandi sjúkdómsbyrði sjúklinga og
kostnaði fyrir heilbrigðiskerfið. fslenskir læknar þurfa að vera meðvitaðir um berkla og nota
greiningartækin eins og við á.
Bylgja Kærnested, Ólafur Skúli Indriðason, Jón Baldursson avíð 0 Arnar 509
Endurlífgun á sjúkrahúsi. Umfang og árangur
endurlífgunarstarfsemi á Landspítala
Endurskipulagning hefur verið gerð á fyrirkomulagi og framkvæmd endurlífgunartilrauna á
Landspítala. Vinnubrögð á Hringbraut og í Fossvogi samræmd, mönnun endurlífgunarteyma
endurskoðuð og tækjabúnaður endurnýjaður. Árangur af endurlífgun innan veggja á spítalans er
þokkalega góður og sambærilegur við það sem gerist í nágrannalöndunum.
Trausti Óskarsson, Björn Árdal, Sigurður Kristjánsson 515
Tilfelli mánaðarins: Drengur með undarleg útbrot
484 LÆKNAblaðið 2009/95