Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2009, Síða 14

Læknablaðið - 15.07.2009, Síða 14
RÆÐIGREINAR A N N S Ó K N Tafla IV. Magn og samsetning næringarmeðferðar ásamt orkujafnvægi. Ekki tekst að ná jákvæðu orkujafnvægi fyrstu þrjár vikur gjörgæsiumeðferðar. 1. vika 2. vika 3. vika Heildarnæringagjöf (kcal/dag) 1002 ±421 1571 ±61,2 1618 ±79 % úr sondunæringu 41% 65% 66% % úr própófól 25% 8% 7% % úr glúkósa lausnum 28% 17% 17% % úr næringalausn gefin í æð 5% 9% 9% % úr LGG 1,4% 1,4% 1,6% Hlutfall sondunæringar 43% 66% 68% Hlutfall næringar í æð 58% 34% 32% Uppsafnað orkujafnvægi (koal) -5725 -7469 -8881 Tafla V. Meðaltalsmagn gefinna næringarefna á dag fyrstu þrjár vikur meðferðar og allt mælingartímatímabilið, en mælingar náðu fram á 65. dag. Ráðlagður dagskammtur af próteinum fyrir heilbrigðan einstakling er 0,8g/kg/dag, en próteinþörf sjúklings á gjörgæsiu er líklega meiri. Meðalgjöf næringarefna 1. vika (g/dag) 2. vika (g/dag) 3. vika (g/dag) Allt tímabilið (g/dag) Allt tímabilið (g/kg/dag) Prótein 25 ± 14 50 ± 2,0 52 ± 4,2 34 ±17 0,44 ± 0,26 Fita 40 ±14 61 ± 2,4 60 ± 3,0 46 ± 18 0,60 ± 0,28 Kolvetni 132 ±59 205 ± 8,5 212 ±11 154 ±60 2,01 ± 0,97 Næringarmeðferð Meðalnæringargjöf reyndist vera 67% af mældri orkunotkun (p<0,001, r = 0,26). Þegar skoðað er hversu stór hluti sjúklinga fékk næringu í samræmi við orkunotkun sést að 10,7% fengu næringu sem var <40% af orkunotkun, 58,9% sjúklinga fengu næringu sem var 40-80% af orkunotkun, 30,4% fengu næringu sem var 80-120% af orkunotkun, en enginn fékk næringu >120% af orkunotkun. Reynt var að gefa öllum sjúklingunum nær- ingu um magasondu en vegna vanstarfsemi melt- ingarvegar þurfti að notast við næringu gefna í miðbláæðarlegg hjá 12 þeirra (21,4%). Blóðsykur og insúlíngjöf Dagar á gjörgæslu “ Blóösykur meö insúlíngjöf — Blóösykur ón Insúlingjafar 100,00 90,00 80,00 70,00 60,00 50,00 40,00 30,00 20,00 10,00 0,00 -Magn insúlíngjafar Mynd 2. Sýnt er meðnltal ú blóðsykursgildnm sjúklinga semfengu insúlíngjöf og þeirra sem ekkifengu insúlínmeðferð. Á mynd sést einnig meðalinsúlínmagn sem sjúklingar fengu. Viðmiðunarmörk blóðsykurs eru 4,4-6,lmmól/L. Næringargjöf í sondu hófst yfirleitt á öðrum til þriðja sólarhring eftir innlögn á deildina eða að meðaltali 2,8 sólarhringum frá innlögn. Samræmið á milli magns sem læknir ávísaði af sondunæringu og þess sem sjúklingur raunverulega fékk var athugað. Raunveruleg gjöf var 84% af ávísuðu magni fyrstu tvær vikurnar (79% í fyrstu viku og 88% í annarri viku). Fyrsta sólarhring var orkugjöf aðallega með lausnum sem gefnar voru í æð, það er própófól (65%) og glúkósa (23%). Einungis lítill hluti kom úr sondunæringu (9%) fyrsta daginn. Þegar leið á dvöl sjúklings á deildinni jókst hlutur sondunær- ingar og hlutur næringarlausna í æð minnkaði (sjá töflu IV). Tafla V sýnir samsetningu næringar, það er innihald próteina, fitu og kolvetna. Sjúklingar fengu að meðaltali 0,44 g/kg af próteinum á dag. Sykurstjórnun Meðalblóðsykur sjúklinganna var 7,3 ± 0,95 mmól/L en 69,6% (n=39) sjúklinga fengu insúlín dreypi í æð (Actrapid®), sjá mynd 2. Þeir sjúklingar sem fengu insúlín voru með meðaltalsblóðsykur 7,4 ± 1,0 mmól/1 (max=9,9; mín=5,7) yfir alla leguna, en sjúklingar sem ekki voru meðhöndlaðir með insúlín dreypi voru með meðalsykur 7,0 ± 0,76 mmól/L (max=8,7; mín=5,9). Samanburður á orkunotkun og næringargjöf Á gjörgæsludeildum er hefð fyrir því að trappa upp næringargjöf yfir einhvern tíma. Á mynd 3 má sjá hvernig næringargjöf þróast með tíma. Næringargjöf nálgast orkunotkun eftir því sem líður á gjörgæsluleguna, en nær henni aldrei alveg. Orkunotkunin er svipuð allan tímann. Eins og sjá má á myndinni er munurinn mestur fyrstu vikuna. Sjúklingar eru því í neikvæðu orkujafn- vægi, það er fá minni orku en þeir nota. Eftir fyrstu vikuna er samanlagt orkujafnvægi að meðaltali -5725 kcal (sjá töflu IV). Einnig er smávægilegur munur á þeirri nær- ingu sem er læknir ávísar á sjúkling og þeirri sem hann fær. Lélegt samræmi er á milli áætlaðrar og mældrar orkunotkunar eins og sést á mynd 4. Harris-Benedict-jafna vanmetur orkunotkun að meðaltali um 11,3% (p<0,001, r=0,64). Hins vegar er um 15,3% ofmat að ræða þegar útkoma Harris-Benedict-jöfnunnar er margfölduð með streitustuðli 1,3. Umræða Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er mæld orkunotkun gjörgæslusjúklinga að meðal- 494 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.