Læknablaðið - 15.07.2009, Page 41
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
HEILBRIGÐISRÁÐHERR
snúa til baka. Til þess að það sé hægt þarf að efna
til víðtæks samstarfs lækna, heilbrigðisyfirvalda,
heilbrigðisstétta og síðast en ekki síst fulltrúa
almennings og sjúklinga. Mér finnst læknar
almennt vera tilbúnir til þess og langflestir sem ég
tala við líta ekki á sjúklinga sem „viðskiptavini"
og læknisþjónustuna sem „vöru".
Það er að draga úr þeim bumbuslætti einka-
væðingar sem var eins og þægilegt suð í sumra
eyrum. Eðli efnahagshrunsins breytti þessu. Þetta
er annar og nýr tónn sem varð til á síðustu fáum
árum. Almenningur vill þetta ekki. Við viljum
vera sjúklingar og leita okkur lækninga þegar á
þarf að halda. Engirtn hefur áhuga í veikindum
sínum að hefja „viðskiptasamband" við lækninn.
Alls ekki.
Kostnaður sjúklinga hefur vaxið hlutfallslega
mest hjá þeim sem sækja sér læknisaðstoð hjá
þeim sem ekki eru á samningi við ríkið. Þar kann
gjaldtakan og kostnaðarþátttakan að hafa aukist úr
hófi. Eg nefni mikinn mun á þjónustu tannlækna
sem dæmi, þó þeir séu ekki innan Læknafélags
Islands. Það finnst mér reyndar að þeir ættu að
vera því fyrir mér eru tennurnar jafnmikil-
vægur hluti skrokksins og aðrir líkamshlutar
og því erfitt að sjá hvers vegna tannlækningar
eru aðskildar eins og raun ber vitni. Okkar
vandi í dag og á næstu árum verður fólginn í
því hversu naumt stakkurinn er skorinn. Þess
vegna er ég að tala um hið víðtæka lýðræðis-
lega samráð. Ef við stöndum ekki öll saman
vörð um heilbrigðisþjónustuna, ef okkur tekst
ekki að bræða saman á lýðræðislegan hátt,
alla hagsmunina sem liggja í heilbrigðisþjónust-
urtni er hætt við að við glötum því sem í venjulegu
ári er okkur afar mikilvægt, og samfélagslega lífs-
nauðsynlegt í krepputíð."
Margir hafa bent á að góðærið undanfarin misseri
hafi ekki birst í rekstri heilbrigðiskerfisins. Þar hafi jafnt
og þétt verið skorið niður undanfarin ár og því kannski
ekki af meiru af taka nú þegar gerð er krafa um mesta
niðurskurð sem þekkst hefur.
„Það er bæði rétt og rangt. Góðærið hefði mátt
skila sér betur inn í heilbrigðiskerfið og til eru
stofnanir sem hafa verið tálgaðar inn í bein. Hins
vegar eiga öll kerfi að vera í stöðugri þróun og
Enginn hefur áhuga í
veikindum sínum að hefja
„viðskiptasamband" við
lækninn, segir
Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra.
LÆKNAblaðið 2009/95 521