Læknablaðið - 15.03.2011, Síða 21
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
síður alvarlega bráða berkjungabólgu og má rekja
það bæði til líffræðilegra og félagslegra þátta.3-35
Einkenni og gangur sjúkdóms
Fyrstu einkenni bráðrar berkjungabólgu koma
frá efri öndunarvegum. Þessi einkenni eru kvef-
einkenni og oft er hiti til staðar, þó oftast sé hann
vægur. Fljótlega í kjölfarið koma fram einkenni
frá neðri öndunarvegum, hósti, vaxandi öndunar-
erfiðleikar og hvæsandi öndun. Öndunartíðni og
hjartsláttartíðni hækkar og á þessu stigi sjúkdóms-
ins nærast bömin oft illa.2-5'21 Brjóstkassinn er
útþaninn vegna þess að loft lokast inni í lungna-
blöðrum og inndrættir milli rifja og ofan og neðan
brjóstkassa geta sést.
Við lungnahlustun greinist lengd útöndun og
hvæsandi hljóð heyrast oft í útöndun og jafnvel
í innöndun. í lok innöndunar getur heyrst fínt
brak. Fijá börnum yngri en tveggja mánaða geta
sést öndunarstopp í lengri eða skemmri tíma og er
hættan á því enn meiri hjá þeim bömum sem eru
fædd fyrir tímann. Röntgenmynd af lungum hjá
börnum með bráða berkjungabólgu sýnir oftast
þanin lungu og gisnar portgrenndar (perihilar)
íferðir.5
Bráð berkjungabólga er oftast vægur sjúkdóm-
ur5 9 en meðallengd veikinda hjá bömum yngri
en 24 mánaða em 12 dagar. Nokkur hluti barna
er lengur með einkenni, eftir 21 dag eru 18%
barnanna ennþá með einkenni og 10% þeirra eftir
fjórar vikur.9
Dánartíðni vegna bráðrar berkjungabólgu er
mjög lág. í Bandaríkunum er dánartíðnin tvö börn
af hverjum 100.000 lifandi fæddum.38 Það eru
helst böm sem em miklir fyrirburar og/eða með
undirliggjandi sjúkdóma sem látast vegna bráðrar
berkjungabólgu.5'38
Greining og rannsóknir
Bráð berkjungabólga er greind samkvæmt sjúk-
dómsmynd, sjúkrasögu og skoðun sjúklings.
Rannsóknir eins og röntgenmynd af lungum,
veirusýni og blóðprufur geta stutt við greiningu
en eru oftast óþarfar ef klínísk greining liggur
fyrir.3'6'7'17,18
Mörg börn með bráða berkjungabólgu eru með
gisnar ósértækar íferðir á röntgenmynd af lung-
um, sem veimr valda í flestum tilfellum (mynd 1
og 2). Því getur röntgenmyndataka af lungum leitt
til óþarfa notkunar sýklalyfja og hafa rannsóknir
staðfest það.17-40
Þær blóðrarvnsóknir sem oft eru gerðar hjá
bömum með öndunarfærasýkingar á bráðamót-
tökum eru blóðhagur og CRP (C-reactive protein)
mæling. Rannsóknir hafa bent á að aukning á
hvítum blóðkornum í blóði hefur lága sértækni og
jákvætt forspárgildi varðandi mismunagreiningu
á milli bakteríu- og veirusýkinga.17'41 Mæling á
CRP kemur að litlu gagni við greiningu bráðrar
berkjungabólgu en ýmsar rannsóknir benda þó til
þess að mikil hækkun á CRP geti verið vísbend-
ing um alvarlega bakteríusýkingu. Hafa ber það í
huga ef bamið er verulega veikt.42
Til em margar aðferðir til að greina hvaða
veira veldur bráðri berkjungabólgu, en það hefur
ekki áhrif á hvaða meðferð er veitt að vita hver
sýkillinn er. Margar stofnanir leita að RS-veirunni
hjá sjúklingum með öndunarfæraeinkenni til
þess að finna og einangra þá sem eru með smit
af veirunni og reyna þannig að hindra útbreiðslu
veirunnar. Rannsóknir hafa þó ekki sýnt fram
á að þetta gagnist til þess að hindra smit á milli
sjúklinga á sjúkrahúsi og bent hefur verið á að
betra sé að einangra öll ung böm með bráða neðri
loftvegasýkingu, óháð orsök.3,6'7'17
Bakteríudreyri (bacteremia) og blóðsýking (sep-
sis) í kjölfar bráðrar berkjungabólgu eru mjög
Mynd 3 Flæðirit fyrir
meðhöndlun berkjukvefs
með teppu. Miðcist við börn
yngri en tveggja ára með
einkenni berkjukvefs með
teppu ífyrsta eða annað
sinn.
LÆKNAblaðið 2011/97 153