Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 50
UMRÆÐUR O G FRÉTTI LÆKNAKENNSLA R Kennsla er ekki sama og nám I tilefni af 100 ára afmæli læknadeildar Háskóla Islands var efnt til málþings á Læknadögum þar sem Óttar Guðmundsson flutti erindi um 250 ára sögu læknakennslu á íslandi og Kristján Erlendsson fjallaði um læknakennslu í nútímanum, markmið og árangur. Edwin Zalniraitis prófessor í barnalækningum við University of Connecticut fjallaði um þróun læknakennslu í nútímanum og John Sandars prófessor við læknadeild háskólans í Leeds í Englandi ræddi framtíðarhorfur í læknakennslu tölvukynslóðarinnar, notkun sýndarsjúklinga og færnibúðir. Fundarstjóri var Guðmundur Þorgeirsson forseti læknadeildar. Hávar Sigurjónsson Læknablaðið ræddi við Kristján Erlendsson formann kennsluráðs læknadeildar og framkvæmdastjóra Vísinda-, mennta- og gæðasviðs Landspítala um hvernig umræðan á málþinginu gæti nýst hér heima. „I erindi sínu vakti John Sandars athygli á því að í dag skiptir meira máli að hugsa um nám en kennslu. Það er nefnilega ekki alltaf það sama. Sandars benti á að nú eru nemendur oftast komnir lengra í tæknilegu tilliti en kennararnir, hvað varðar nám. Kennarar og háskóladeildir halda með sér fundi um það sem kallað er E-learning og vísar til rafrænnar tækni. Unga fólkið í dag hefur gríðarlega mikið vald á slíkri tækni, það er fætt og uppalið við hana, þekkir ekki annað, og við sem eldri erum þurfum að hafa okkur öll við til að standa jafnfætis þeim." Fyrirlestrum fækkað um 30% Kristján segir að nemendur tileinki sér námsefni á allt annan hátt en fyrir nokkrum árum og bendir á að hefðbundnar lesstofur standi stundum auðar en í kaffistofunni framan við sitji hópur stúdenta saman fyrir framan tölvuskjá, ræði efnið, vinni verkefni og læri saman. „Einstaklingsbundið nám, við lestur á þögulli lesstofu á alls ekki alltaf við í dag. Hefðbundnir fyrirlestrar eru að hluta til óþarfir enda hefur þeim fækkað um 30% í lyflækningum og handlækningum í læknadeild HI þótt námsefnið hafi fremur aukist en minnkað. Það virðist ekki skaða árangur nemendanna nema síður sé. Tæknin veitir nemendum einnig tafarlausan aðgang að slíku magni upplýsinga að annað eins hefur aldrei þekkst í veraldarsögunni. Það er verið að gera samninga um að setja allar stóru læknisfræðilegu textabækurnar, mörg þúsund blaðsíður í sumum tilfellum, inn í tölvutækt umhverfi, þannig að nemendur munu hafa aðgang hvar og hvenær sem er að þessu efni í gegnum tölvur og síma." Þá bendir Kristján á að tölvutæknin nýtist á fleiri vegu þar sem er síaukin áhersla á þjálfun læknanema með sýndarsjúklinga og í færnibúðum þar sem tölvur eru nýttar í ýmsum tilgangi. „Læknanemar æfa sig á tölvustýrðum dúkkum og í mjög fullkomnum hermum þar sem hægt er að gefa lyf og gera aðgerðir af ýmsu tagi. A vegum Evrópusambandsins hafa verið í gangi mjög spennandi verkefni þar sem sett eru upp í tölvulíkön um læknisfræðileg vandamál sem nemendur geta spreytt sig á með ýmsum hætti. Þarna fæst læknaneminn við sjúkling sem svarar spurningum og hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um fyrri meðhöndlun og lyfjagjöf. Læknaneminn þarf síðan að koma með tillögur um meðferð og inngrip og vonandi verður það til þess að bæta líðan sjúklingsins. Ef læknaneminn lendir í vandræðum getur hann farið til baka og leiðrétt mistök, sem er hluti af námsferlinu. í bandarísku sérfræðiprófunum er svipuðum aðferðum beitt þar sem sett er upp vandamál sem læknirinn verður að fylgja eftir og leysa úr. Þessi áhersla á tæknina er að nokkru leyti tilkomin vegna þess að í nútímaumhverfi sjúkrahúss er ekki mikil þolinmæði gagnvart því að læknanemar prófi sig áfram á raunverulegum sjúklingum. Rekstur nútímasjúkrahúsa snýst um hagkvæmni og sparnað, legudögum hefur fækkað verulega, og inniliggjandi sjúklingar eru yfirleitt mjög veikir og því er læknanemum síður hleypt að sjúklingum vegna þess tíma og umsjónar sem það útheimtir. Því miður hefur ekki tekist að skapa læknanemum nógsamleg tækifæri til starfsnáms utan spítala. Læknanámið er enn mjög sjúkrahúsmiðað og í dag er stundum sagt að sjúklingamir séu farnir af spítölunum en læknanemarnir séu þar enn. Aherslan í lækningum nú á dögum er á göngudeildir, dagdeildir og heilsugæslu en læknanemarnir eru ennþá inn á legudeildunum. Það skiptir því máli að skapa námsumhverfi þar sem hægt er að þjálfa læknanemana til fulls án þess að vera alltof háður sjúkrahúsumhverfinu. Þó er það ennþá þannig hér á íslandi að 182 LÆKNAblaðið 2011/97
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.