Læknablaðið - 15.03.2011, Page 50
UMRÆÐUR O G FRÉTTI
LÆKNAKENNSLA
R
Kennsla er ekki sama og nám
I tilefni af 100 ára afmæli læknadeildar Háskóla Islands var efnt til málþings á Læknadögum
þar sem Óttar Guðmundsson flutti erindi um 250 ára sögu læknakennslu á íslandi og Kristján
Erlendsson fjallaði um læknakennslu í nútímanum, markmið og árangur. Edwin Zalniraitis
prófessor í barnalækningum við University of Connecticut fjallaði um þróun læknakennslu
í nútímanum og John Sandars prófessor við læknadeild háskólans í Leeds í Englandi ræddi
framtíðarhorfur í læknakennslu tölvukynslóðarinnar, notkun sýndarsjúklinga og færnibúðir.
Fundarstjóri var Guðmundur Þorgeirsson forseti læknadeildar.
Hávar
Sigurjónsson
Læknablaðið ræddi við Kristján Erlendsson formann
kennsluráðs læknadeildar og framkvæmdastjóra
Vísinda-, mennta- og gæðasviðs Landspítala um
hvernig umræðan á málþinginu gæti nýst hér
heima.
„I erindi sínu vakti John Sandars athygli á því
að í dag skiptir meira máli að hugsa um nám en
kennslu. Það er nefnilega ekki alltaf það sama.
Sandars benti á að nú eru nemendur oftast komnir
lengra í tæknilegu tilliti en kennararnir, hvað
varðar nám. Kennarar og háskóladeildir halda
með sér fundi um það sem kallað er E-learning og
vísar til rafrænnar tækni. Unga fólkið í dag hefur
gríðarlega mikið vald á slíkri tækni, það er fætt
og uppalið við hana, þekkir ekki annað, og við
sem eldri erum þurfum að hafa okkur öll við til að
standa jafnfætis þeim."
Fyrirlestrum fækkað um 30%
Kristján segir að nemendur tileinki sér námsefni á
allt annan hátt en fyrir nokkrum árum og bendir
á að hefðbundnar lesstofur standi stundum auðar
en í kaffistofunni framan við sitji hópur stúdenta
saman fyrir framan tölvuskjá, ræði efnið, vinni
verkefni og læri saman. „Einstaklingsbundið
nám, við lestur á þögulli lesstofu á alls ekki alltaf
við í dag. Hefðbundnir fyrirlestrar eru að hluta
til óþarfir enda hefur þeim fækkað um 30% í
lyflækningum og handlækningum í læknadeild
HI þótt námsefnið hafi fremur aukist en minnkað.
Það virðist ekki skaða árangur nemendanna
nema síður sé. Tæknin veitir nemendum einnig
tafarlausan aðgang að slíku magni upplýsinga að
annað eins hefur aldrei þekkst í veraldarsögunni.
Það er verið að gera samninga um að setja
allar stóru læknisfræðilegu textabækurnar, mörg
þúsund blaðsíður í sumum tilfellum, inn í
tölvutækt umhverfi, þannig að nemendur munu
hafa aðgang hvar og hvenær sem er að þessu efni í
gegnum tölvur og síma."
Þá bendir Kristján á að tölvutæknin nýtist
á fleiri vegu þar sem er síaukin áhersla á
þjálfun læknanema með sýndarsjúklinga og í
færnibúðum þar sem tölvur eru nýttar í ýmsum
tilgangi. „Læknanemar æfa sig á tölvustýrðum
dúkkum og í mjög fullkomnum hermum þar
sem hægt er að gefa lyf og gera aðgerðir af ýmsu
tagi. A vegum Evrópusambandsins hafa verið í
gangi mjög spennandi verkefni þar sem sett eru
upp í tölvulíkön um læknisfræðileg vandamál
sem nemendur geta spreytt sig á með ýmsum
hætti. Þarna fæst læknaneminn við sjúkling sem
svarar spurningum og hægt er að nálgast ítarlegar
upplýsingar um fyrri meðhöndlun og lyfjagjöf.
Læknaneminn þarf síðan að koma með tillögur um
meðferð og inngrip og vonandi verður það til þess
að bæta líðan sjúklingsins. Ef læknaneminn lendir
í vandræðum getur hann farið til baka og leiðrétt
mistök, sem er hluti af námsferlinu. í bandarísku
sérfræðiprófunum er svipuðum aðferðum beitt
þar sem sett er upp vandamál sem læknirinn
verður að fylgja eftir og leysa úr. Þessi áhersla á
tæknina er að nokkru leyti tilkomin vegna þess
að í nútímaumhverfi sjúkrahúss er ekki mikil
þolinmæði gagnvart því að læknanemar prófi
sig áfram á raunverulegum sjúklingum. Rekstur
nútímasjúkrahúsa snýst um hagkvæmni og
sparnað, legudögum hefur fækkað verulega, og
inniliggjandi sjúklingar eru yfirleitt mjög veikir og
því er læknanemum síður hleypt að sjúklingum
vegna þess tíma og umsjónar sem það útheimtir.
Því miður hefur ekki tekist að skapa læknanemum
nógsamleg tækifæri til starfsnáms utan spítala.
Læknanámið er enn mjög sjúkrahúsmiðað og
í dag er stundum sagt að sjúklingamir séu
farnir af spítölunum en læknanemarnir séu
þar enn. Aherslan í lækningum nú á dögum er
á göngudeildir, dagdeildir og heilsugæslu en
læknanemarnir eru ennþá inn á legudeildunum.
Það skiptir því máli að skapa námsumhverfi
þar sem hægt er að þjálfa læknanemana til fulls án
þess að vera alltof háður sjúkrahúsumhverfinu.
Þó er það ennþá þannig hér á íslandi að
182 LÆKNAblaðið 2011/97