Læknablaðið - 15.03.2011, Side 30
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI/ YFIRLIT
marka. Fram komu vægir erfiðleikar í verkefnum
sem reyna á stýringu (executive function).
Aðrar rannsóknir
Gerð var tölvusneiðmyndarannsókn við bráða-
komu sjúklings í Fossvog og segulómun af
höfði tveim vikum síðar eða um líkt leyti og
taugasálfræðiprófunin fór fram. Niðurstöður
tölvusneiðmyndarannsóknar voru eðlilegar. Við
segulómun var notast við T2 vigtaðar myndir við
segulstyrk 1.5 T og lögð áhersla á skoðun milliheila
(diencephalon) og annarra minnistengdra svæða.
Ekki komu fram sjúklegar segulskinsbreytingar
í heilavef, heilastofni né litla heila (cerebellum) í
þeim rannsóknum.
Niðurstaða og eftirfylgd
Hvað minni áhrærir þá kom fram í sögu afturvirkt
minnisleysi fyrir síðastliðnum 12 árum og að
auki stutt tímabil af framvirku minnisleysi sem
talið var í klukkustundum fremur en dögum
skömmu eftir að konan týndist. Henni var ráðlagt
að fylgjast með þegar minningar færu að koma til
baka og hún hvött til að skrá þær niður í dagbók.
Líklegt var talið að afturvirka minnisleysið myndi
ekki endilega koma að fullu til baka og henni tjáð
það.
Engin vefræn skýring fannst á þessu óvenju
langvinna afturvirka minnisleysi, hvorki í
myndgreiningu né taugasálfræðilegum prófum.
Minnið kom að verulegu leyti til baka á 10-12
vikum, en þó alls ekki að öllu leyti. Hún man
til dæmis enn ekki eftir fólki sem hún hittir
og hafði kynnst á tímabilinu 1997 til 2009, og
einnig man hún ekki eftir meiriháttar viðburðum
innan fjölskyldunnar eins og andláti og útför
móðurömmu sem lést 2005. Hún man nú vel eftir
hundi sem fjölskyldan átti en ekki eftir ákveðnum
þáttum sem tengdust honum og því hvers vegna
fjölskyldan varð að láta hann fara að lokum. Hún
virðist enn detta aðeins í og úr hvað varðar minni
á þetta tímabil samkvæmt móður sem segist af og
til þurfa að rifja ýmislegt upp með henni.
Yfirlit
Sálrænt minnisleysi (psychogenic eða dissociative
amnesia) er klínískt heilkenni sem einkennist
af minnisröskun sem á sér ekki greinanlegar
vefrænar skýringar. Algengi heilkennisins er lágt
en nákvæmar algengistölur hafa ekki verið settar
fram. Fyrstu skráðu tilfellunum var lýst á seinni
hluta 19. aldar, en svo virðist sem fjöldi greindra
tilfella hafi aukist á síðari árum. Tvenns konar
ástæður hafa verið settar fram sem skýring á
þessari aukningu. Annars vegar aukin vitund um
greininguna meðal heilbrigðisstarfsmanna, hins
vegar kemur til greina að um ofgreiningu geti verið
að ræða hjá sefnæmum einstaklingum.7 Sálrænt
minnisleysi getur ýmist verið aðstæðubundið eða
almennt.8'9 Aðstæðubundið minnisleysi (situation
specific amnesia) vísar til minnisleysis sem nær yfir
ákveðna atburði eða afmarkaða hluta tiltekins
atburðar. Þetta geta verið aðstæður eins og þegar
framinn er alvarlegur glæpur (til dæmis morð)
eða einstaklingur verður fómarlamb alvarlegs
glæps eða ofbeldis (til dæmis kynferðisofbeldis).
í flestum tilfellum leiða þessir atburðir þá
einnig til áfallastreituröskunar (post-traumatic
stress disorder). Almennt sálrænt minnisleysi
(global psychogenic amnesia) einkennist hins vegar
af skyndilegu minnisleysi á sjálfsævisögulega
atburði. í flestum tilfellum nær minnisleysið þá
mörg ár aftur í tímann og því fylgir oft tímabil
ráps (wandering) þar sem einstaklingarnir tapa
oftar en ekki þekkingu á sjálfum sér tímabundið.10
Tilgreindir hafa verið þrír meginflokkar
vandamála sem teljast algengir undanfarar
sálræns minnisleysis: 1. áföll, 2. þunglyndi og
loks 3. fyrri saga um tímabundið minnisleysi af
vefrænum toga. Hvað áföllin snertir er helst um
að ræða alvarlegan streituvaldandi atburð eins
og hjónabandserfiðleika, vemlegt tilfinningalegt
ósætti eða fjárhagsvandræði. Þunglyndið er þá
djúpt, með eða án sjálfsvígshugsana, og virðist
alvarlegt þunglyndi gera einstaklinga viðkvæmari
fyrir áhrifum streitu og áfalla á minni. Saga um
tímabundið minnisleysi af vefrænum toga er til
dæmis þekkt í kjölfar flogaveiki, raflækninga,
höfuðáverka eða misnotkunar áfengis.11
Klínísk einkenni þessara einstaklinga og
frammistaða þeirra í taugasálfræðilegum verk-
efnum getur verið áþekk því þegar um minnis-
leysi af vefrænum toga er að ræða. Til að mynda
muna þeir í sumum tilfellum einstaka atburði
frá tímabilinu sem minnisleysið nær yfir en lýsa
þessum minningum oft sem undarlegum og
framandi.9 Rannsóknir hafa sýnt að frammistaða í
minnisverkefnum er nokkuð breytileg hjá þessum
hópi.10 Afturvirkt sjálfsævisögulegt minni mælist
skert eins og gefur að skilja, en aðrir þættir eins
og framvirkt minni og merkingarminni (semantic
memory) virðast ýmist sýna skerðingu eða vera
innan eðlilegra marka.1215 Skammtímaminni og
ómeðvitað minni eru í langflestum tilfellum innan
eðlilegra marka líkt og aðrir þættir hugrænnar
fæmi, svo sem einbeiting, athygli og stýring.9'10,16
1 62 LÆKNAblaðið 2011/97