Læknablaðið - 15.03.2011, Síða 31
FRÆÐIGREINAR
SJÚKRATILFELLI/ YFIRLIT
Umræða
I tilfelli konunnar sem rakið var að ofan er ljóst
að hún er með þætti úr öllum flokkunum þremur
sem nefndir voru sem áhættuþættir hér að ofan.
Hún var undir miklu álagi vegna langvinns
þunglyndis og sjálfsvígshugsana, svaraði ekki
meðferð, unnusti sagði henni upp í gegnum netið
og hún fékk neitun við því að fara í þá meðferð
við þunglyndinu sem hún taldi líklegasta til að
bæta líðan sína, raflækningar. Hún hafði einnig
fengið skammvinna minnistruflun í tengslum
við raflækningameðferð og töku ofskammta af
lyfjum í sjálfsvígstilgangi nokkrum árum áður en
minnistruflunin kom fram.
Margvíslegar kertningar hafa verið settar fram
um undirliggjandi orsakir sálræns minnisleysis
og hefur tilvist heilkennisins jafnvel verið
dregin í efa.17'20 Enn skortir á þekkingu á tilurð
tilfinningatengdra minninga og vitneskju um
hvaða svæði heilans liggja þar að baki. Þrátt fyrir
þetta virðist vera sátt um að þegar rætt er um
sálrænt minnisleysi og minnisleysi af vefrænum
toga sé ekki um tvo aðskilda flokka minnisraskana
að ræða heldur samverkandi þætti sem ekki sé
alltaf auðvelt að greina að.21 Sýnt hefur verið fram
á að streituvaldandi þættir geta haft áhrif á þau
svæði heilans (temporal/diencephalic system) sem
gera okkur kleift að tileinka okkur og festa í minni
nýja þekkingu. I samræmi við þetta hefur verið
bent á að hið sama geti átt við um önnur svæði
heilans, svo sem framheilann. Framheilinn gerir
okkur kleift að skipuleggja og stjóma daglegum
athöfnum, þar á meðal að kalla fram minningar.
Samkvæmt þessum hugmyndum geta streita og
áföll haft hamlandi áhrif á skipulagshæfni og
stýringu (control/executive system) framheilans
og þar af leiðandi getu hans til að kalla fram
sjálfsævisögulegar minningar. Líkumar á að
þetta gerist eru taldar aukast til muna eigi
einstaklingurinn sér fyrri sögu um þunglyndi og
minnisleysi af vefrænum toga sem síðan leiðir til
afturvirka minnisleysisins.11
Ljóst er að sálrænt minnisleysi er margslungið
heilkenni með breytilegu birtingarformi. Oft á
tíðum getur verið torvelt að aðgreina það frá
mirtnisleysi af vefrænum toga. Þegar meta á
afturvirkt minnisleysi er því mikilvægt að hafa
í huga jafnt sálfélagslega sem vefræna þætti svo
greining og meðferð verði sem traustust.
Þakkir
Höfundar þakka Maríu K. Jónsdóttur tauga-
sálfræðingi fyrir yfirlestur yfirlitshluta handrits
og ábendingar og Kristínu Hannesdóttur tauga-
sálfræðingi fyrir yfirlestur handrits og ábendingar.
Heimildir
1. Ribot T. Les maladies de la memoire (English translation:
Disease of memory). Appleton-Century-Crofts, New York
1881.
2. Reed JM, Squire LR. Retrograde amnesia for facts and events:
findings from four new cases. J Neurosci 1998; 18: 3943-54.
3. Kapur N, Brooks DJ. Temporally-specific retrograde amnesia
in two cases of discrete bilateral hippocampal pathology.
Hippocampus 1999; 9: 247-54.
4. Squire LR. Memory systems of the brain: a brief history and
current perspective. Neurobiol Leam Mem 2004; 82:171-7.
5. Squire LR. Memory and brain systems: 1969-2009. J Neurosci
2009; 29:12711-6.
6. Markowitsch HJ. Psychogenic amnesia. Neuroimage 2003; 20
Suppl 1: S132-8.
7. American Psychiatric Association: Diagnostic and Statistical
Manual of Mental Disorders Fourth Edition, Tex Revision ed.
American Psychiatric Association, Washington DC 2000.
8. Kopelman MD. Amnesia: organic and psychogenic. Br J
Psychiatry 1987; 150: 428-42.
9. Kopelman MD. Disorders of memory. Brain 2002; 125: 2152-
90.
10. Serra L, Fadda L, Buccione I, Caltagirone C, Carlesimo
GA. Psychogenic and organic amnesia: a multidimensional
assessment of clinical, neuroradiological, neuropsychological
and psychopathological features. Behav Neurol 2007; 18:
53-64.
11. Kopelman MD. Focal retrograde amnesia and the
attribution of causality: An exeptionally critical view. Cogn
Neuropsychol 2000; 17: 585-621.
12. Kessler J, Markowitsch HJ, Huber M, Kalbe E, Weber-
Luxenburger G, Kock P. Massive and persistent anterograde
amnesia in the absence of detectable brain damage:
anterograde psychogenic amnesia or gross reduction in
sustained effort? J Clin Exp Neuropsychol 1997; 19: 604-14.
13. Mackenzie Ross S. Profound retrograde amnesia following
mild head injury: organic or functional? Cortex 2000; 36: 521-
37.
14. Markowitsch HJ, Calabrese P, Fink GR, et al. Impaired
episodic memory retrieval in a case of probable psychogenic
amnesia. Psychiatry Res 1997; 74:119-26.
15. Markowitsch HJ, Kessler J, Russ MO, Frolich L, Schneider B,
Maurer K. Mnestic block syndrome. Cortex 1999; 35: 219-30.
16. Baird AD, McKay RT. Psychological factors in retrograde
amnesia: self-deception and a broken heart. Neurocase 2008;
14: 400-13.
17. De Renzi E, Lucchelli F, Muggia S, Spinnler H. Persistent
retrograde, amnesia following a minor trauma. Cortex 1995;
31: 531-42.
18. Lucchelli F, Muggia S, Spinnler H. The 'Petites Madeleines'
phenomenon in two amnesic patients. Sudden recovery of
forgotten memories. Brain 1995; 118:167-83.
19. Stracciari A, Ghidoni E, Guarino M, Poletti M, Pazzaglia P.
Post-traumatic retrograde amnesia with selective impairment
of autobiographical memory. Cortex 1994; 30: 459-68.
20. Tasman A, Goldfinger SM, ed. American Psychiatric
Press Review of Psychiatry. American Psychiatric Press,
Washington DC 1991.
21. Markowitsch HJ. Organic and psychogenic retrograde
amnesia: two sides of the same coin? Neurocase 1996; 2:357-
71.
22. Wechsler D. WMS-III Administration and Scoring Manual.
The Psychological Corporation, San Antonio Tex 1997.
23. Strauss E, Sherman, EMS, Spreen OA. Compendium of
Neuropsychological Tests: Administration, Norms, and
Commentary. 3 ed. University Press, Oxford 2006.
24. Meyers J, Meyers, K. Rey Complex figure and the Recognition
Trial: Professional manual. Supplementary norms for
children and adolescents. Psychological Assessment
Resources, Odessa FLA1996.
25. Kaplan E, Fein D, Morris R, Delis DC. WAIS-R as a Neur-
opsychological Instrument. The Psychological Corporation,
Harcourt Brace Jovanovich, Toronto 1991.
26. Karlsson AÖ. íslensk viðmiðunargildi fyrir orðaflæðispróf.
Háskóli íslands, Reykjavík 2004.
27. Tombaugh TN. Trail Making Test A and B: normative data
stratified by age and education. Arch Clin Neuropsychol
2004; 19: 203-14.
28. Wechsler D. Wechsler Adult Intelligence Scale - Revised. The
Psychological Corporation, New York 1981.
LÆKNAblaðið 2011/97 163