Læknablaðið - 15.03.2011, Side 43
Ú R
_____UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR
PENNA STJÓRNARMANNA LÍ
Orri Þór Ormarsson
otormarsson@hotmail.com
Höfndur er
barnaskurðlæknir á
Landspltala
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir
formaöur
Valgeröur Á Rúnarsdóttir
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir
gjaldkeri
Anna K. Jóhannsdóttir
ritari
Ágúst örn Sverrisson
Árdís Björk Ármannsdóttir
Orri Þór Ormarsson
Ragnar Victor Gunnarsson
Þórey Steinarsdóttir
í pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna LÍ birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Kerfið er gott, merkilegt nokk
Það sérfræðiþjónustukerfi lækna sem við búum
við í dag er gott.
Eftir að ég fór að starfa með samning við
Sjúkratryggingar Islands geri ég mér sífellt betur
grein fyrir því hversu sjálfstætt starfandi sér-
fræðilæknum er gert erfitt fyrir með því að setja
afkomu okkar og þeirra sem með okkur starfa í
uppnám reglulega.
Allflestir sérfræðilæknar hafa reynslu af heil-
brigðiskerfum í öðrum löndum, bæði sem starf-
andi læknar en ekki síður sem fjölskyldufólk með
börn. Það er í ljósi þeirrar reynslu sem ég fullyrði
að sérfræðiþjónustukerfi lækna sem við búum við
á Islandi er gott.
Hér er kerfi sem byggist á því að sérfræðilæknar
vinna eftir fyrirfram ákvörðuðum töxtum sem
semja þarf um við Sjúkratryggingar. Þeir taxtar
sem þannig fást og unnið er eftir eru ekki of háir
svo ekki sé minnst á afsláttarkerfið.
Sérfræðilæknar geta haft viðunandi tekjur
af stofurekstri en eingöngu með miklu vinnu-
framlagi, miklu sjúklingaflæði og ekki síst
hagkvæmum rekstri á læknastofum. Af þessu
leiðir að Sjúkratryggingar fá keypta bæði ódýra,
góða og ekki síst skilvirka þjónustu. Þetta hefur
svo í för með sér gott aðgengi Islendinga að
sérfræðilæknum.
Þannig njóta allir góðs af uppbyggingu þessa
kerfis, ekki síst íslendingar sem fá betri heil-
brigðisþjónustu en gerist og gengur í öðrum
löndum vegna betra aðgengis að sérfræðilæknum.
Annars staðar eru kerfi sem byggjast á dýrri og
óskilvirkri sérfræðiþjónustu með löngum bið-
listum fyrir flesta en betra aðgengi fyrir útvalda
sem geta keypt sig áfram í kerfinu.
Við höfum nærtækt dæmi um hvernig kerfið
gæti verið verra fyrir alla og þá er ég að tala um
hvernig tannlæknaþjónustan er uppbyggð. Það
hafa allir fullan aðgang að tannlæknum en af
einhverjum ástæðum erum við með eina verstu
tannheilsu barna á öllum Norðurlöndum og þótt
víðar væri leitað. Og það er ekki tannlæknunum
að kenna og það er ekki við foreldrana að sakast.
Viljum við samskonar kerfi fyrir restina af heil-
brigðisþjónustunni?
Nú er stýrihópur á vegum velferðaráðuneytis-
ins að móta tillögur að heildarskipulagi sérfræði-
þjónustu lækna á Islandi. Nefndin var skipuð 9.
desember 2010 og átti að skila fyrstu tillögum 1.
febrúar 2011. Það verður spennandi að sjá hvað
kemur frá þessum hópi. Skilvirkt tilvísunarkerfi
gæti verið góður valkostur en þær grunnforsendur
sem slíkt kerfi byggir á þurfa að vera til staðar. Þær
eru klárlega ekki til staðar í dag og verða ekki til
staðar í nánustu framtíð.
Ekkert kerfi er svo gott að ekki sé hægt að bæta
það og ef hægt er að koma með annars konar kerfi
sem hefur sömu kosti og núverandi kerfi, ef ekki
fleiri, þá mun ég fagna því.
Eg tek því hins vegar ekki fagnandi þegar
gerðar eru breytingar breytinganna vegna.
Ég tek því heldur ekki fagnandi ef það á að
gera breytingar sem leiða til verri og dýrari
heilbrigðisþjónustu fyrir Islendinga.
Allir hafa skilning á ástandinu í þjóðfélaginu og
vita að það kemur til með að bitna á þeim á einn
eða annan hátt. Sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar,
líkt og allir aðrir rekstraraðilar, hafa þurft að
taka á sig hærri skatta og gjöld samfara miklum
hækkunum á aðföngum.
Það hafa hins vegar ekki allir gefið frá sér tæpa
10% fyrirfram umsamda leiðréttingu að auki.
Ég skora á stjórnvöld að sýna skynsemi þegar
kemur að samningum við sjálfstætt starfandi
sérfræðilækna og vona að þau átti sig á því,
sérstaklega í ljósi þess hvemig ýmsu öðru hefur
verið hagað á íslandi, að við búum við gott
sérfræðiþjónustukerfi lækna í dag, merkilegt
nokk.
Til sölu eða leigu húsnæði fyrir heilsutengda
starfsemi við Álfabakka 12
í Mjóddinni. Upplýsingar veitir Sigurður Þór í síma 823 7079
Húsnæðið er 231 m2. að stærð og er tilvalið fyrir heilsutengda starfsemi, meðferðarstofur, nuddara, sjúkraþjálfara eða læknastofur. Lyfta er
í húsinu og gott aðgengi. Nánari lýsing: Húsnæðið skiptist í 7 lokaðar vinnustofur sem eru á bilinu 7-20 m2, sal (sem áður var skurðstofa),
eldhús, innréttaða móttöku og tvö salerni (annað með sturtu). Dúkur á gólfi, lagnastokkar með veggjum og kerfisloft. Ekki vsk. húsnæði.
Húsnæðið er til sölu eða langtímaleigu.
LÆKNAblaðið 2011/97 175