Læknablaðið - 15.03.2011, Qupperneq 47
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
OFBELDI GAGNVART BÖRNUM
sáttir við foreldra sína þrátt fyrir refsingarnar. Sá
eini sem ekki var sáttur lýsir í rauninni allt annarri
og alvarlegri reynslu, þar sem um var að ræða
tilefnislaust, alvarlegt og síendurtekið líkamlegt
og andlegt ofbeldi."
Breyttar refsingar
Jónína segir að viðmælendur hafi einnig verið
spurðir ítarlega úti í uppeldi eigin barna og hvort
þeir hafi beitt þau líkamlegum refsingum. „Ég á
reyndar eftir að taka þær niðurstöður endanlega
saman en hef lesið viðtölin mjög vandlega.
Það er þó alveg ljóst að margir viðmælendur
segjast hafa byrjað að beita sömu refsingum
og þeir voru beittir í æsku en hafi hætt því,
enda umburðarlyndi samfélagsins fyrir slíku á
undanhaldi og nú séu slíkar refsingar bannaðar.
Einn ungur maður, fæddur á 8. áratugnum, segir
frá því að hann hafi alist upp hjá móður sinni sem
beitti hann líkamlegum refsingum, endurteknum
flengingum eins og hann lýsti sjálfur, og þegar
harrn svo eignaðist sjálfur böm byrjaði hann
að refsa þeim með flengingum að hætti móður
sinnar. Þá var hún farin að vinna með börn og
sagði honum að það þætti ekki gott lengur að
flengja börnin. Hann fór að hennar ráðum og
lokaði börnin inni í refsingarskyni í staðinn.
Mamman sagði þá við son sinn að það væri
heldur ekki gott að loka böm irrni og enn tók hann
sönsum og segist nú refsa þeim með því að taka
af þeim leikjatölvuna og farsímann. Þessi frásögn
lýsir ágætlega breytingaferlinu sem verður í
samfélaginu gagnvart líkamlegum refsingum. En
það sem er skemmtilegt við þessa frásögn er að
það er móðir föðurins sem stjómar ferðinni."
Að sögn Jónínu gerist viðhorfsbreytingin í
samfélaginu til líkamlegra refsinga mjög hratt.
„í dag er annars konar refsingum beitt við
uppeldi. Algengt er að foreldrar svipti börn
einhverjum hlutum eða forréttindum. Mér heyrist
að skammarkrókurinn í breyttri mynd sé að koma
aftur sem aðferð til að aga börn heima. Hafa
ber í huga að ofangreind rannsókn um reynslu
íslendinga af ofbeldi og refsingum er eigindleg
og því ekki hægt að yfirfæra niðurstöður hennar
á þjóðina í heild. Megindleg rannsókn er í vinnslu
og byggist hún á úrtaki úr þjóðskrá. Það væri mjög
áhugavert að skoða hvernig þetta er í dag."
Afleiðing ofbeldis
Jónína bendir á að það þurfi að fræða og upplýsa
fólk um breytt lagaumhverfi og áhrif ofbeldis
hverskonar á heilsu bama. Önnur rannsókn sem
Jónína og Geir hafa unnið í samvinnu við Álfgeir
Loga Kristjánsson og Ingu Dóru Sigfúsdóttur snýr
að áhrifum þess á heilsu og vellíðan 14 og 15 ára
unglinga að hafa orðið vitni að deilum og ofbeldi
á milli foreldra eða forsjáraðila sinna. Þetta var
stór rannsókn þar sem upplýsingum frá 3515
unglingum var safnað árið 2003 af Rannsóknum
og greiningu og bíður birtingar í Child Abuse &
Neglect.
„Tölurnar úr þessari rannsókn segja okkur
að um fimmtungur unglinganna höfðu orðið
vitni að alvarlegu rifrildi foreldranna og um
þriðjungur hafði rifist alvarlega við foreldra
sína. Um 7% höfðu orðið vitni að líkamlegum
átökum fullorðinna á heimilinu og 6% höfðu
sjálf lent í líkamlegum átökum við fullorðna á
heimili sínu. Reynsla unglinganna af þessu jók
líkur á einkennum um þunglyndi, reiði eða kvíða,
auk þess að hafa neikvæð áhrif á sjálfsmynd
unglinganna. Slík reynsla barna hefur því
langtímaáhrif á heilsu og vellíðan þeirra. Það
er því full ástæða til að huga sérstaklega vel að
velferð og líðan barna og unglinga þar sem vitað
er að ofbeldi og líkamleg átök hafa átt sér stað eða
eiga sér stað á heimilum þeirra."
„Langflestir töldu að
þeir hefðufengið ósköp
hefðbundið íslenskt
uppeldi," segir jónína
Einarsdóttir prófessor í
mannfræði um rannsókn
á reynslu íslendinga af
refsingum í uppeldi.
LÆKNAblaðið 2011/97 179