Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREIN Uppskerum eins og við sáum Árið 2006 kynnti Háskóli íslands langtíma- markmið um afburðaárangur í menntun og vísindum. Leiðarljós var sú uppbygging sem átt hafði sér stað frá stofnun skólans og framtíðarsýn um mikilvægi öflugs háskóla til að stuðla að verðmætasköpun, hagsæld og heilbrigðu samfélagi. Fyrsta skref var að setja stefnu til fimm ára með ýtarlegri aðgerðaáætlun um hvað þyrfti að gera til að komast áleiðis. Nú á aldarafmælisári skólans, þegar ljóst er að langflestum áfangamarkmiðum sem sett voru fyrir fimm árum hefur verið náð, hefur Háskóli íslands ítrekað langtímamarkmið sitt og sett stefnu til næstu fimm ára, til ársins 2016. Starfsfólk og stúdentar heilbrigðisvís- indasviðs1 Háskóla íslands hafa með metnaði sínum, staðfestu og óþrjótandi vinnuframlagi lagt verulega af mörkum til að skólinn næði markmiðum sínum, þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Þannig hefur fjöldi birtinga vísindagreina í kröfuhörðustu alþjóðlegu tímaritum og fjöldi tilvitnana tvöfaldast á fimm árum, hvoru tveggja staðfest af alþjóðlegum gagnagrunnum. Doktorsnemum í heilbrigðisvísindum hefur fjölgað verulega og fjármagn úr erlendum samkeppnissjóðum þrefaldast. Þessi víðtæki árangur hefur náðst með gjöfulu samstarfi við fjölmargar innlendar og erlendar vís- indastofnanir og fyrirtæki. Árangurinn skilar íslensku atvinnulífi betur menntuðu fólki og eykur virðingu Háskóla Islands á alþjóðavettvangi og gerir hann eftirsóttan til samstarfs. Háskóli Islands og Landspítali hafa um árabil átt nána samvinnu sem miðar að því að efla kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindagreinum og bæta þjón- ustu við sjúklinga og aðstandendur. Með því að sameina krafta hafa þessar stofnanir átt mikilvægan þátt í að skapa hér afbragðsgóða heilbrigðisþjónustu og skapað einn öflugasta þekkingarklasann í íslensku vísindasamfélagi. Nemendur í heilbrigðisvísindagreinum hafa fengið inngöngu til framhaldsnáms í bestu og kröfuhörðustu háskóla heims. Þeir hafa aimennt staðið sig mjög vel, vakið athygli og oft fengið tilboð um starf að námi loknu. Sendinefndir frá virtum háskóla- og spítalastofnunum hafa heimsótt Landspítala og Háskóla íslands og óskað eftir samstarfi, bæði í kennslu og rannsóknum. Þetta eru allt góðar vísbendingar um gæði náms í heilbrigðisvísindum. Eitt stærsta samstarfsverkefni Land- spítala og Háskóla íslands um þessar mundir er bygging nýs háskólasjúkrahúss og húsnæðis fyrir heilbrigðisvísindadeildir skólans. Þetta mun gjörbreyta aðstæðum á spítalanum og háskóladeildunum til hins betra og leiða til nánari samþættingar í starfi spítala og skóla. Þetta gerir einnig fært að tengja betur saman starf heil- brigðisvísindadeilda skólans sem eru nú með starfsemi á mörgum stöðum. Ef litið er 100 ár aftur í tímann, sést hvað framtíðarsýn, stórhugur og ein- beittur vilji geta kallað fram. Háskóli íslands var stofnaður árið 1911 við afar þröngar aðstæður í samfélaginu. í fyrstu voru fjórar deildir starfræktar við skólann; guðfræðideild, læknadeild, lagadeild og heimspekideild. Fyrsta haustið innrituðust 45 stúdentar, þar af ein kona, Kristín Ólafsdóttir, sem átti eftir að útskrifast sem læknir, fyrst kvenna. Háskóli íslands er afar þakklátur íslenskum læknum fyrir að hafa gefið skólanum málverk af Kristínu til minningar um frumkvöðul og afrekskonu. Margt hefur breyst frá því Kristín innritaðist í Háskóla íslands. Stúdentar eru nú 14.000 og konur eru í meirihluta á öllum námsstigum, þar á meðal í doktorsnámi. Deildir skólans eru orðnar 25 talsins og skólinn hefur þróast í að vera alþjóðlegur rannsóknarháskóli. íslendingar hafa náð mikilvægum árangri í uppbyggingu heilbrigðiskerfis og vísindaþekkingar sem er bakhjarl þess. Um fátt ríkir meiri sátt í samfélaginu en mikilvægi heilbrigðiskerfisins og þess að það þjóni samfélaginu öllu. Því er brýnt að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur og halda sókninni áfram. Sum viðfangsefnin eru þekkt, svo sem krabbamein, lífsstílssjúkdómar, öldrunar- þjónusta, lyfjaónæmi, geðsjúkdómar og fleira. En við verðum einnig að byggja upp heilbrigðismenntakerfi sem gerir fært að fást við ný og óþekkt viðfangsefni. Umfram allt verðum við að leggja sérstaka áherslu á að styðja við afreksfólk á sviði vísinda. Hver einasta íslensk fjölskylda nýtur þjónustu heilbrigðiskerfisins. Við viljum að þessi þjónusta sé framúrskarandi. Það verður hún ef stjómvöld og þeir sem bera ábyrgð á menntun, vísindum og þjónustu heilbrigðiskerfisins sameinast um skýra framtíðarsýn og ásetning um uppbyggingu af metnaði. Heimild 1. Ingólfsdóttir K. Nýtt heilbrigðisvísindasvið Háskóla íslands og háskólasjúkrahúsið Landspítali. Læknablaðið 2008; 94: 657. Harvest as we sow editorial written on occasion of University of lceland's centennial. Kristín Ingólfsdóttir — President and Rector of University of lceland. LÆKNAblaðið 2011/97 347
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.